Unga Ísland - 01.12.1918, Page 7

Unga Ísland - 01.12.1918, Page 7
UNGA ÍSLAND 95 heilsa henni, og ef hún spyr þig hvað það kosti, þá segðu henni að eg ætli ekkert að taka fyrir að sauma það. Eg get ekki verið að setja neilt upp á það, hún er altaf eitthvað að gefa ykkur hvort sem er; svona, farðu nú og flýttu þér af stað, Lilja mín, á meðan veðrið er golt, því það getur skeð að hann geri byl þá og þegar, hann er orðinn þykkur«. Lilja Iét ekki segja sér þelta tvis- var. Hún þaut af stað og hljóp altaf þangað tii hún nam staðar fyrir framan dyrnar hjá Elínu. Hún barði á dyrnar. Elín kom til dyra. »Komið þér sælar«, sagði Lilja. »Nei, sæl vertu, Lilja mín«. »Mamma bað að heilsa yður, og eg átti að fá yður fötin«. »Jæja, góða mín! Hvað kostar það?« »Hún sagði að hún ætlaði ekkert að taka fyrir það«. »Er það nú vit; altaf er hún eins, að vilja ekkert taka fyrir vinnu sína; jæja, bíddu svolítið við, Lilja mín«, sagði Elín og fór inn með fötin. Eftir dálítinn tíma kom hún aftur. »Fáðu henni mömmu þinni þessar 5 kr. Það er ekki of mikið; eg veit að hún á bágt með að sauma mikið, þó að hún geri það, og hérna eru 2 kr. handa þér fyrir hlaupin«. »Eg þakka yður fyrir«, sagði Lilja og bljóp upp um hálsinn á henni og kysti hana, »það er ekkert að þakka, Lilja min; »eg bið kærlega að heilsa henni mömmu þinni með þakklæti fyrir fötin«, sagði Elín. »Verið þér nú sælar«, sagði Lilja og hentist út úr dyrunum. Elín horfði brosandi á eftir henni, litlu stelpunni sem henni þótti svo vænt um. Hún óskaði þess jafnvel að hún befði fengið að hafa hana hjá sér, því hún átti ekkert barn. Nú var Lilja glöð og ánægð. Hún stansaði við í einni búðinni og keypti spil, kerti og sælgæti fyrir 75 aura. Síðan flýtli hún sér heim, en lét mömmu sína ekki vita af því, sem hún keypti. »Jæja, mamma mín«, sagði hún þegar hún kom heim. »Elfn bað að heilsa þér með þakklæti fyrir, og hér eru 5 kr., sem eg átti að fá þér«. »Guð blessi hana; altaf er hún eins«, sagði mamma hennar. »Er Ingvi inni?« spurði Lilja. »Nei, hann er að skila kjólnum til hennar Rósu, en hann kemur nú vist bráðum aflur, eg er hissa hvað hann er búinn að vera lengi«, sagði mamma hennar. Þær mæðgurnar sátu nú saman i rökkrinu og töluðu um hitt og þetta. þégar þær höfðu setið hátt upp i klukkustund kom Ingvi litli inn. »Ósköp ertu búinn að vera lengi, barnið mitt«, sagði mamma hans; »hvers vegna varslu svona lengi?« »Eg var að leika mér«, sagði Ingvi. »Komstu ekki með peningana frá henni Rósu, Ingvi minn?« spurði mamma hans. »Nei, hún sagðist skyldi senda þér þá seinna«, sagði Ingvi og fór fram. »Eg held að eg verði nú að fara að kveykja, svo við gelum farið að gera eitthvað«, sagði mamma þeirra. Eftir dálitinn tima kom Ingvi inn aftur. Hann settist á stól, eins og hann var vanur. Hann fór altaf að leika sér á kvöldin, þegar hann þurfti ekki að læra, því þau voru bæði í skóla, en höfðu fengið frí fyrir þrem dögum. En nú sat hann á stólnum og talaði ekki orð; við og við rann tár niður kinnar hans. það var virki- lega eitthvað sem hrygði hann. þegar búið var að borða, fór hann strax að hátta. Hann grúfði sig undir sæng- ina og bylti sér á allar hliðar, en gat með engu móti sofnað. Klukkan slóll.

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.