Unga Ísland - 01.10.1919, Side 5
UNGA tSLAND
77
JÞau eru orð-
in fjölskrúðug,
samgöngutækin,
núna. Vagnar,
skip, bilar og
flugvjelar. Þetta
höfum við sjeð
alt hjer á ís-
landi. Bílarnir
eru orðnir fjölda
margir. Flugvjel
kom hingað í
sumar, og flaug
um allar tryssur.
Hana hafa öli
j'kkar sjeð sem
búið á suðvest-
ur horni lands-
ins. En eitt sam-
göngutækið, sem
algengast er ann-
arsstaðar, befir
enn ekki sjest
hjerna. Jeg á
við járnbraut-
irnar. Hún er
ekki teljandi litla
járnbrautin uppi
í Öskjuhlíð, sem
var notuð við
hafnargerðina í
Reykjavík. Það
hefðu sumir
svarið fyrir að
flugvjelarmyndu
koma hingað á undan járnbrautum.
En svona fór. Járnbrautirnar breiða
sig eins og þjelt net um nágranna-
lönd okkar. í borgunum er ekki rúm
fyrir þær á götunum. Þá eru grafin
göng undir göturnar og eftir þeim
fara lestirnar. Á myndinni sjást þrjú
op inn í slík göng. Svo þjóta vagnar
og bílar um göturnar ofan á járn-
brautarlestunum eins og ekkeit sje.
í stórborgunum ferðast menn i jörð
og á. — Það verður vonandi ekki
langt þar til við förum að sjá járn-
brautarlestir þjóta um landið okkar.
Hjer er nóg pláss fyrir þær ofan-
jarðar. Liklega kemur einhverntíma
á næstu áx-um járnbraut milli Reykja-
víkur og Árnessýslu.