Unga Ísland - 01.10.1927, Qupperneq 7

Unga Ísland - 01.10.1927, Qupperneq 7
UNGA ÍSLAND 79 Veggirnir eru fagurlega skreyttir með útskurði, og á þeim hanga myndir af skáldum þjóðarinnar. Frh. Heilræði. Úrval úr Varabúlki. Tilfinningum haft á haf, hugrenningar vanda. Geðshræringum æstum af óhamingjur standa. Hugsaður, hvað sem hel'st þú að, hvort það staðist fái, og viljir glaður þola það þig hver maður sjái. Ljót er seyra, að leggja á menn last, sem þeir ei eiga. Talaðu fleira ekki en allir heyra mega. Vopni andans beittu best bæg frá grandi illu, áriðandi met þjer mest mót að standa villu. # Ti’úðu aldrei neinu illu um nokkurn mann, án þess að hafa óyggjandi sannanir fyrir að það sje satt. Og þótt þær fáist, þá segðu samt ekki öðrum frá því, nema þú finnir að brýnasta nauðsyn krefji þess, og Guð hlýði a meðan þú segir frá. Ilenrij Van Dyke. * Sagan af silkinu. Endur fyrir löngu voru Kínverjar einu mennirnir i heiminum, sem lcunnu að búa til silki. Elstu sagnir þeirra segja, að Sen-ling-she drotning hafi ofið úr því og hafi hún fundið upp fyrsta vefstólinn. Þeir hjeldu að- farðinni vandlega leyndri, til þess að fá enga keppinauta. Þá var líka silki svo dýrt, að það var lagt á aðra vog- arskálina og jafnvægi þess af gulli á móti. Það er fært í frásögur, að drotn- ing Aurelíusar keisara í forn-Róm- verska ríkinu hafi beðið mann sinn að útvega sjer silkikjól, en hann hafi svarað, að hann hefði ekki efni á því. Þó var hann ríkasti maður í heimi og rjeð yfir flestum þektum löndum. Sagt var að Japanar hafi komist að leyndarmálinu 300 árum fyrir Krists fæðingu, og hafi menn frá Kóreu kent þeim silkiræktina. Þjóðsagnir Indverja segja, að leynd- armálið hafi borist nokkru seinna til þeirra með kínverskri kóngsdóttur. Hafi hún ílutt fræ mórberjatrjes og egg silkifiðrildisins undir fóðri á höf- nðbúnaði sínum. Frá Indlandi barst það til Persíu og ríkjanna í Mið-Asiu. Grikkland, Róm og Ryzantíum (Iíonstantinopel) fengu silki frá Persalandi. Jústinían keisari reyndi að ná versluninni úr höndum Persa og gerði til þess samninga við konungssoninn í Abvssiníu, en tilraun- in mistókst. Árið 551 komu tveir íhunkar til Konstantinopel. Þeir höfðu stundað nám austur í Kína, og lært þar silkirækt. Þegar þeir fóru úr land- inu voru þeir rannsakaðir, og fanst ekkert á þeim, en engan grunaði að

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.