Unga Ísland - 01.10.1927, Síða 14

Unga Ísland - 01.10.1927, Síða 14
86 U N G A t S L A N D Fornöld og nútíð. Við tölum um gullöld íslendinga. Það eru fyrstu mannsaldrarnir eftir að landið var albygt. Ekki er það að- eins af því, að á landinu var þá meira gull og grænir skógar, en síðar varð, heldur hefir sú öld þótt bera af öðr- um timiun, sem gull af eyri. Nú virðist ný gullöld vera að renna yfir landið. Ef lil vill langtum gull- vægari en hin fyrri. En til þess að svo verði þurfa synir þess og dætur að duga því sem best. Landið er sjálf- stætt ríki eins og á gullöldinni. Nú kallast það að sönnu konungsríki en þá lýðvekli. Þó mun nú frelsið ahnenn- ara. Þá var það eign einstakra höfð- ingja. Konur voru jafnan mikils virt- ar borið sariian við það sem var víða annars staðar. Þær áttu oft upptök að stórmálum. Nú ber þó kvenfrelsi langt aí' því sem var á gullöldinni, því nú hafa þær að lögum fult jafnrjetti við karla. Menning eða mentun var mikil á gullöldinni. Fjöldi mánna fór til út- landa og kom svo heim með fjölda nýrra hugmynda. Bækur voru ekki til eii menn mundu betur. Þá voru að gerast sögurnar, sem síðar voru skráð- ar, og við höfum orðið frægastir fyrir. Nú erum við að verða kunnir fyrir nútíðarbókmentir. Eigum við þar ef til vill eins mikið ágæti og nokkuð það, sem fyr var skráð. Nú annast og ríkið um fræðslu allra barna landsins, Þá er hin efnalega afkoma langt um betri. Þjóðarauðurinn langtum meiri. Land- ið á mannvirlci, sem enginn hefði getað trúað, að það gæti eignast, þótt þvi hefði vcrið spáð fyrir nokkrum manns- ölduin. Atvinnuvegir eru tryggari, einkum búskapur. Skepnum er trygt löður og húsaskjól og lögð við hegn- ing, el' illa er farið með þær. Þá eru íþróttir. Þar hefir okkur skort einna mest á til jafns við forfeðurna. En á. siðustu árum er hjer einnig að verða stór breyting. Glímur, hlaup, stökk, knattleikir og sund og fleiri iþróttir hafa tekið miklum framförum. Er það fagnaðarefni. íþróttir eru einna best fallnar til þess að halda við gleoi æsku og heilbrigði þjóðarinnar. En þær systur eru bestu hjúin á bænum. Hjer birtist mynd af sunddroiningu íslands, sem mun vera sundfærust kona á landinu. (Sjá fyrstu síðu). Leng'st sinnar æfi hefir íslensk kven- þjóð verið ósundfær með öllu, eða frá gullöld Islands og fram á vora daga. í fornöld hefir sund verið almenn íþrótt, bæði með körlum og konum. Einna merkust er sagan af sundi Helgu jarlsdóttur. Hún hefir fylgt manni sínum, Herði í útlegð. Þau hafa hafst við í Geirshólma á Hvalfirði. Hann og fjelagar hans hal'a verið unn- ir með svikum og' vegnir allir. Hún er ein eftir með börn sín í skálanum úti i hólmánum. Þá segir í sögunni, að Helga lagðist til lands úr Hólm- inum um nóttina og' flutti með sjer Björn son sinn fjögurra vetra gamlan til Bláskeggsár. Þá fór hún móti Grím- katli syni sínum átta vetra gömlum, því að honum dapraðist sundið, og flutti hún harin til larids. Þar heitir nú Helgusund. Það er mikið gleðiefni, að nú er aft- ur að lifna yfir þessari fögru og gagn- legu íþrótt. Sund þurfa allir íslending- ar að kunna. Mun það verða gert að skólaskyklu, þegar tímar líða og hægt verður að kenna það i sveitum lapds-

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.