Unga Ísland - 01.03.1933, Qupperneq 6

Unga Ísland - 01.03.1933, Qupperneq 6
34 UNGA ÍSLAND inna manna er annaðhvort óholl fæða, eða of lítil fæða í maganum. Sofni mað- ur fjórum stundum eftir kvöldverð, er hætt við, að maginn segi til sín áður en morgnar og trufli svefnfriðinn. Eitt epli, heit mjólk eða annað létt og holt, sem neytt er um háttatíma, bætir svefn- inn og hvíldina. 6) Nægur hiti er nauðsynlegur. Svo kalt ætti aldrei að vera í svefnherbergi, að maður þyrfti að hafa mjög mikil sængurföt. Mikill þungi ofan á líkaman- um varnar honum að slaka á ög kom- ast í fullkomið hvíldarástand; og fiður- sængur hindra loftstraum að' líkaman- um. Svo vel sé, þarf að sameina þetta tvent, hreint loft og nægan líkamshita, án þess þó að ofþyngja sér með sæng- urfötum. 7) Hve lítill hávaði sem er, hindrar svefninn. Jafnvel þó að maður vakni alls ekki, losar hann svefninn og kemst úr fullkomnu hvíldarástandi. 8) Liturinn á svefnherberginu þarf að vera friðandi. Sterka, skæra liti ætti að varast. Rauðir og gulir litir fjörga og eru því ekki góðir. Bestir eru föl- grænir eða bláir veggir gljáalausir. 9) Náttfötin hafa mikla þýðingu. Rannsóknirnar benda á, að best sé að sofa nakinn. En þá er oft ókleift að halda nægum hita. Allir ættu að sofa í öðru en þeir ganga í á daginn. 10) Hvernig maður snýr sér, þegar maður sofnar, virðist hafa litla þýðingu, því að eftir 15 mínútur hreyfir hann sig, hvort sem er. 1 ]) Draumar virðast hafa minni áhrif á hvíld og svefn, en menn hafa haldið. Til .eru margar tegundir drauma, og lít- ið vita menn um eðli þeirra. Sumir virð- ast vera bjargar-ráðstöfun náttúrunnar, til þess að veita útrás því, sem óþægindi vökulífsins hafa valdið. 12) Svefntíminn þarf að vera reglu- bundinn. Nauðsyn á að kofna á sama tíma. Sumir heilsufræðingar halda því fram, að sú óregla og æsing, sem fylgir nútíðarlífi f jöldans í borgum, geri svefn- inn síst notadrýgri en svefn feðra okk- ar, sem sváfu í nærfötunum í pestar- lofti undir haug af dún. 13) Bóklestur hefir bjargað mörgum frá andvökum. Hræðsla við að geta ekki sofnað, er versti óvinur svefnsins. Vel valið lesefni getur hjálpað til að gleyma henni. Vakni maður um miðja nótt og verði andvaka, ætti hann að taka strax það ráð, að lesa sig í svefn, í stað þess að velta sér í áhyggjum. 14) Maður getur lifað mánuð án mat- ar, en hverjum, sem er svefnlaus í viku, er bani búinn. Lærum því á ungum aldri listina, að sofa vel. Pétur gamli varð andvaka og gat'ekki sofnað fyrr en komið var undir morg- un. Þessvegna er hann nú í afleitu skapi. Reynið að koma honum í betra skap. * * * Húsbóndinn hoppar æandi um allt búsið, og heldur um þumalfingurinn. Húsfreyja: Þú berð í þumalfingurinn á þér, góði minn, hvert einasta skifti, sem þú rek- ur nagla. Húsbóndi: Hvemig á ég að geta varast það 1 Húsfreyja (rólega) : Með því að halda báð- um höndunum um hamarsskaftið.

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.