Unga Ísland - 01.03.1933, Side 10

Unga Ísland - 01.03.1933, Side 10
38 UNGA ÍSLAND MaSurinn, sem stendur við stóra pottinn hérna á myndinni, heitir Ólafur Þórðarson. En þið skul- uð elcki láta ykkur detta í hug, að potturinn sé grautarpottur, heldur er þetta stóri blýpotturinn hans Ólafs. — Þegar bú- ■ið er að setja Unga Is- land á vél og prenta það, eru allar línurnar, sem vélin steypti, látnar i þennan pott. Og þegar potturinn er orðinn fuil- ur, er kyntur gaseldur undir pottinum, og línurnar brœddar upp. Og þegar blýmálmurinn er orðinn fljótandi í pott- inum, er honum rennt í mót, sem eru í hring utan um pottinn að neðan. Þar storknar blýið í lclumpa, sem sjást til hœgri á myndinni. Svo eru þessir lclumpar brotnir í þrennt og iátnir í pottinn í setningarvélinni, sem bræðir þá aft- ur og steypir úr þeim nýjar línur. Svona geng- ur þetta koll af kolli ■—■ þetta er hringferð blýsins, er hann Ólafur brœðir í stóra pottinum! ir séu handfljótir — en ekki þykir gott, að þeir hafi „marga þumalfingur“! Ef ykkur langar til að vita, hversu mörg handtök það eru fyrir prentarann að setja Unga ísland, þá skuluð þið telja stafina, en ekki megið þið sleppa bilun- um á milli orðanna, því að í þau verð- ur hann að setja stíla, sem til þess eru ætlaðir, og þá vitið þið, að handtökin eru a. m. k. eins mörg og stafirnir, en þó í rauninni miklu fleiri. Hugsunin, sem færð er í letur á pappírnum og afhent vélsetjaranum í handriti, hefir nú verið steypt í ákveðn- ar línur. Þessar línur mynduð þið ekki eiga gottmeð að lesa, þær eru svo gljá- andi, og þið mynduð segja að stafirn- ir stæðu á höfði. En prentaramir eru á annari skoðun. Þegar búið er að setja lesmálið, er því raðað niður í síður o. fl., sem ætlað ar, strik, myndir o. fl., sem ætlað er til prýði. Þetta er kallað „aS brjóta um“. Allar síðurnar verða að vera jafnlangar og jafnbreiðar, eins og gef- ur að skilja. Að þessu loknu er blaðið fyrst „tilbú- ið til prentunar". í nœsta hefti uerður sagt frá, hvernig verkinu miðar áfram í prentvélasalnum og bókbandsvinnustofunni og loks sagt frá ferðalagi heftanna í póstpokunum. Skrifið Unga íslandi og iátið í Ijósi, hvort þið eruð ánægð með það. Sendið ritstjórninni fyrirspurnir um efni, sem ykkur langar sérstaklega til að fræðast um, og þið haldið að aðrir unglingar hafi áhuga fyrir. Unga ísland mun eftir. föngum leysa úr spurningum, sem máli skipta.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.