Unga Ísland - 01.03.1933, Qupperneq 11

Unga Ísland - 01.03.1933, Qupperneq 11
UNGA ÍSLAND 39 MAÐURINN, SEM STAL FRÁ SMÁBÖRNUNUM. Framhald. „Læknirinn segir, að hann borði lítið. Eg er voða hrædd um, að eitthvað gangi að honum“. „Hann þarf líklega að gera sér eittkvað til gamans. Haltu veislu, og bjóddu hinum börnun- um, til þess að reyna að hafa betta úr honum'‘. „Æi, ekki held ég það, pabbi' ‘. „Jú, gerðu það, dóttir mín. Skrifaðu á lista nöfnin ,á þeim, sem verður boðið' ‘. Pálína gerði þetta. Hún sýndi föður sínum listann. Hann tók eftir því, að engu barni var boðið frá heldrimanpa h'eimilunum, svo að hann bætti við mörgum nöfnum. Og svo var öllu þessu fólki boðið. Bankastjórinn gleymdi nú öllu saman, en mæðgurnar gleymdu því ekki. Þær sárkviðu fyrir veislunni, og Karl litli, sem veislan var gerð fyrir, fór að gráta, þegar minnst var á hana. Þó að afi hans ætti annríkt, þá hafði hann þó tíma til að angrast út af þessu háttalagi harnsins; hann grunaði, að hér væri ekki allt oieð felldu. Hann vann mvrkranna á milli, og allt virtist ætla að ganga að óskum með fyrirtækið. Hann vonaði, að óvildarmenn hans færu að koma aft- ur til hans. Hann ákvað, að hafa nú öll við- skiftin hrein og heiðarleg, það fannst honum vera aðal-atriðið. Einn morgúnn sagði Karl við dóttur sína: •■Nú skrepp ég út að fósturskólanum til að sjá, hvernig Karli litla líður, og helst koma með hann heim“. Klukkan tólf kom hann heim að skólanum. Eörnin voru öll úti í garði, en hann fann ekki Karl litla. Það var nú leitað að honum og kallað. Loks- fannst hann inni í skólastofu. Þar sat hann aJe>nn úti í horni, og hann sýndist vera svo Utill og einn og yfirgefinn. "Karl litli“, sagði kennslukonan. „Hann aíi þinn er kominn. Hví ert þú liér einn og kemur ekki út með hinum börnunum f ‘ Karl stökk þá til kennslukonunnar og leit til afa síns, eins og hann væri hræddur við hann. „Komdu, litli vinur“, sagði afi hans. „Hvað gengur að þér ? Þú ert þó ekki hræddur við mig?“ „Nei, afi“, sagði barnið; en röddin skalf. Bankastjórinn sneri sér nú að kennslukon- unni og spurði hana, hvernig drengnum gengi við námið. „Honum gengur heldur vel“, sagði hún. „Hann var feiminn fyrst í stað, en það lag- aðist fljótt“. „Semur hann sig að hinum börnunurn?“ „Ekki get ég sagt það. Þau stríða hvert öðru, og hann er víst vanari við að umgangast full- orðna, svo að hann þolir þeim lítið“. „Móðir hans hefir víst haldið honum of mik- ið frá' öðrum börnum. En ég skal nú sjá um að það breytist“. Þeir nafnar fóru nú af stað. Þegar þeir komu heim, var drengurinn veikur. Móðir hans hátt- aði hann ofan í rúm, og þar grét hann sig í svefn. Þegar afi hans kom heim um kvöldið, fór hann strax inn í harnaherbergið, til þess að vita, hvemig drengnum liði. En þegar hann kom inn í dyrnar, fór eins og áður, að barnið fór að gráta. Afa hans gramdist. „Eg vil ekki hafa þetta“, sagði hann. „Segðu mér óðara, hvernig stendur á því, að þú lætur svona' ‘. Mamma hans greip um handlegg föður síns og sagði: „Vertu ekki svona hastur. Hann getur orðið veikur aftur“. „Ég er orðinn þreyttur á þessu, og ég vil fá að vita, af hverju hann lætur svona“. Barnið var nú búið að missa alla stjórn á sér og hágrét. A milli grátkviðanna stundi hann upp: „Mamma, láttu hann ekki meiða mig, passaðu mig, mamma. Ég vil ekki eiga afa, sem stelur frá litlu bömunum. Hann er þjófur. Passaðu mig. Strákarnir kalla á eftir mér og segja, að afi steli. Þeir vilja ekki lofa mér að vera með, og fela gullin sín og segja, að ég ætli að stela þeim. Láttu mig ekki í skólann, mamma. Ég vil ekki fara þangað. Öll börnin hlæja að mér, af því að ég ætla að hafa af- mælisveislu. Enginn vill koma í veisluna, af því að afi hefir stolið peningunum þeirra' ‘. Móðir hans grét, en afi hans stóð náfölur og tautaði: „Grimmdin í bömunum og blindni kennaranna' ‘.

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.