Unga Ísland - 01.03.1933, Page 16
44
UNGA ísland
fllheims
„ W o r 1 d -
1 9
mót skáta
Jamboree"
3 3
Með fjögurra ára millibili eru haldin
alþjóðaskátainót eða »Jamboree«, en
svo eru þau kölluð. Á mót þessi streyma
þúsundir af skátum víðsvegar úr hinum
menntaða heimi, fullir af eftirvæntingu
og tilhlökkun, enda verða þeir ekki fyrir
vonbrigðum, því mót þessi eru stór-
viðburðir í sögu skátahreyfingarinnar, og
bera ljósan vott um þroska hennar og
framgang. Fyrsta skátamótið (Jamboree)
var haldið í Englandi árið J 921. Annað
var í Danmörku 1924, voru þar eitthvað
5000 skátar. Hið þriðja var í Englandi
1929. Það var haldið í skemmtigarði
skammt frá Birkenhead, sem er lítil borg
andspænis Liverpool. Þar voru kringum
50,000 skátar samankomnir, þar á meðal
32 frá íslandi. Hið fjórða Jamboree verð-
ur haldið í Ungverjalandi í borg sem
heitir Göddöllö, og er 25 km frá Buda-
pest. Til þess að gera mót þetta sem
fullkomnast og best hefir verið við
hafður geysimikill undirbúningur, svo
sem: Lagðir vegir, leitt vatn, sími o. fl.
Einnig verður útvarpað ræðum o. fl. með-
an mótið stendur yfir. Þá hafa og verið
haldin mörg námskeið undanfarin tvö
ár meðal ungverskra skáta til þess að
gera þá sem hæfasta til þess að vera
leiðbeinendur og stjórnendur á þessu
skátamóti. Mótið stendur yfir frá 1.—15.
ágúst i sumar. Fyr-
irkomulagið á þessu
móti verður nokk-
uð svipað því og
var 1929, að skipt
veröur niður í tjald-
búðahéruð — Sub
camp — með 2500
til 3000 skátum í
hverju.
Á móti þessu er
gert ráð fyrir, að
esperanto verði
notað mikið sem
hjálparmál, enda verður flokkað niður
eftir því, hvaða mál af fjórum; ensku,
þýsku, frönsku eða esperanto menn vilja
tala. í tilefni af mótinu hefir alþjóða-
bandalagið gengist fyrir bréfaskriftum
miili skáta víðsvegar um heim, sem
væntanlega munu komast í persónulega
kynningu á Jamboree. Á mótinu verða
allskonar sýningar, svo sem: Sundr og
aðrar íþróttasýniagar og sýningar frá
skátalífinu á útisamkomusvæðinu. Einn-
ig verður sýnt svifflug.
Dagskrá mótsins verður í stórum
dráttum þessi:
Gata á Jamboree 1929.