Unga Ísland - 01.06.1942, Síða 11
TVÖ KVÆÐI
Rís þú sól
Rís þú sól úr dimmu djúpi,
dagur fyrir stafni er,
upp á háan himinboga
hraöa ferð gegn stjamaher.
Lýstu og skín meö. -skærum ljóma
skín og sýndu guðs míns verk.
Leystu jörð úr dauðans dróma.
Dagsins sól, þín hönd er sterk.
Ljósið sigri, ljósið ríki,
lífsins kraftur deyði nótt,
dagur rísi úr dimmu húmi,
dauöans afl nú sigrist skjótt.
Sólarljós nú sendu geisla
sárum mönnum lífsins stríðs.
Lát öllum hitna um hjartarætur.
Helga drottni blessun lýðs.
Sof þú
Sofðu meöan dagsins ljósiö dvínar.
Dökkir skuggar læðast hljótt um grund,
sVífa í leynum sorgir næturinnar
á svörtum vængjum hverja húmsins stund.
\
Sofðu unz af sólu birtir aftur
og sendir geisla um drungahaldna jörö
og’ að nýju lífsins kynngikraftur
klæðir blómum visin móabörð.
Högni Egilsson (11 ára)
Suðureyri við Súgandafjörð.
85
UNGA ÍSLAND