Unga Ísland - 01.06.1942, Side 12
Lrtyrra/iafsins
Undanfarandi vikur og mánuð'i
hafa eyjarnar í Kyrrahafinu oft ver-
ið nefndar í fréttum vegna orustu
þeirrar, sem þar er háð. Nú er bar-
áttunni um Filipseyjar lokið a. m.
k. í bili með sigri Japana. En þetta
er ekki í fyrsta sinn, sem barizt er
um Filipseyjar. Eyjarnar liggja suö-
austur af meginlandi Asíu og hafa
um nokkurt skeið tilheyrt Bandaríkj-
unum. Þær eru óhemju margar —
full þrjú þúsund — og er Luzoney
stærst og liggur nyrzt, en lengst mót
suðri er Mindanaoey. Magellan fann
eyjarnar 1521 og um langt skeið til-
heyrðu þær Spánverjum og bera nafn
Filipusar II. Spánarkonungs. En ár-
ið 1898 lentu Spánverjar í styrjöld
við Bandaríkin og misstu þá yfirráð
eyjanna til hinna síðarnefndu, sem
geröu þær aö nýlendu sinni. Var í
fyrstu nokkuö róstusamt um stjórn-
ina, því aö eyjaskeggjar höfðu treyst
því, að Bandaríkin tryggðu þeim
fullt frelsi, en sú von brást með öllu.
Uppreisnir uröu því tíðar um skeið,
en árið 1907 fengu íbúarnir nokkum
íhlutunarrétt um stjórn eyjanna og
síðan þá hefur allt verið með kyrr-
um kjörum. Á eyjunum finnast mörg
hagnýt efni í jöröu svo sem brúnkol,
járn, gull, silfur, platín, kopar og
biý. Steinolía er þar einnig og enn-
fremur steinsalt. Ræktimarskilyrði
eru þar afargóö og eru ræktaðar þar
ýmsar nytjajurtir t. d. rís, mais,
manillahampur, sykur, tóbak o. fl. o.
fl. Það er því ekkert furðulegt, þó
UngliÖar á Filipseyjum
sýna dans á s^emmtun,
sem haldin er til ágóða
jyrir starjsemi U. R. K.
UNGA ÍSLAND
8fi