Árbók VFÍ - 01.01.1992, Side 15
Skýrsla stjórnar 13
um tilfellum verið skuldugir við félagið undanfarin ár, mörg ár sumir hverjir, aðrir búa erlend-
is. Stærsti hópurinn eru raunvísindamenn; stærðfræðingar, náttúrufræðingar og aðrir, sem ekki
eiga aðgang að SV og finnst þar að auki að áhugamál og félag verkfræðinga falli ekki að þeirra
hagsmunamálum. Látnir félagar á árinu eru 7. Á síðasta aðalfundi voru skráðir félagsmenn
1.041.
Á starfsárinu yfirfór Menntamálanefnd og framkvæmdastjórn gögn 86 manna og mælti
framkvæmdastjórn með því við iðnaðarráðherra að 85 fengju leyfi til að kalla sig verkfræð-
inga. Þá mælti stjórnin með því við fé 1 agsmáIaráðherra að 9 verkfræðingar fengju löggildingu
til að gera uppdrætti skv. byggingarlögum.
5 Samstarf viö TFÍ
Samstarf milli VFÍ og Tæknifræðingafélags íslands hefur verið talsvert á árinu. Haldnir hafa
verið tveir samráðsfundir stjórna félaganna, þar sem sameiginleg mál félaganna eru rædd. Þar
má nefna útgáfu á Verktækni, samstarf um COMETT og innan íslandsnefndar FEANI (evrópu-
samtök verk- og tæknifræðinga) þar á meðal í svokallaðri eftirlitsnefnd sem fylgjast á með
kennslu í verk- og tæknifræði í HÍ og TÍ. FEANI hefur nú flokkað eða metið nám í verk- og
tæknifræði í HÍ og TÍ í sambandi við svonefndan EUR-ING titil, sent sækja má um til félag-
anna. Sameiginleg ráðstefna VFÍ og TFÍ var 7. mars 1991. Auk þessara reglulegu funda voru
haldnir sérstakir fundir annars vegar um framtíð Verktækni og ltins vegarum samstarf COM-
ETT. Haldnir hafa verið þrír sameiginlegir félagsfundir, sjá lista ylir fundi.
6 Starfsemi VFÍ og stefna 1990/1991
í upphafi starfsársins var lögð fram verkefnaskrá stjórnar. Verkefnum skiptu stjórnarmenn á
milli sín og var hver og einn gerður ábyrgur fyrir framgangi þeirra verkefna sem honum voru
falin. Sjá verkefnaskrá.
Framkvæmdastjóm var umhugað unt að starfsemi félagsins væri fagleg og félagsleg. Með
því er átt við að félagið standi vörð um verkfræðingstitilinn og að félagar rnegi liafa gagn.
faglega og félagslega, af því að vera í félaginu og taka þátt í starfsemi þess.
6.1 Verndun verkfræöingstitilsins
Allar umsóknir um inngöngu í félagið frá öðrum en þeint sent lokiö hafa verkfræðiprófi frá
Verkfræðideild HÍ eru vandlega yfirfarnar hjá Menntamálanefnd félagsins. Inntökuferlið hefur
nú verið í gildi í frá því í júlí 1988. Sjá skýrslu Menntamálanefndar.
Verkfræðingafélagið hefur sem og árið á undan fengið upplýsingar og ábendingar um
vinnustofur, þar sem gefið er í skyn beint eða óbeint að um verkfræðistofur sé að ræða. Enn-
fremur hafa komið ábendingar um að starfsheitið verkfræðingur sé misnotað, þ.e. að þeir sem
ekki eru verkfræðingar séu litlaðir verkfræðingar eða séu í stöðu sem feli í sér verkfræðings-
titilinn. Öllu slíku hefur Verkfræðingafélagið mótmælt kröftuglega, og hafa viðkomandi aðilar
í flestum tilvikum leiðrétt þetta eða munu væntanlega gera það. Þess má geta, að nokkuð ber á
því, að í símaskránni sé notað heitið verkfræðistofa þar sem það á ekki við. Stjórnin skipaði
nefnd til að fylgjast með og gera bragarbót þar sent starfsheitið er ranglega notað en verkfræð-
ingar sjálfir þurfa að vera vel á verði gagnvart þessu, því það er mikið hagsmunamál fyrir
stéttina að verkfræðingstitillinn, sent er lögvemdað starfsheiti, sé hafður í heiðri.