Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 26
24 ÁrbókVFÍ 1990/91
legast dæmi um þetta er fundur um
yfirvofandi landeyðingu við Jök-
ulsá á Breiðamerkursandi, sem
haldin var af stjórn Byggingar-
verkfræðideildar VFÍ. Væntanlega
verður framhald á þessu.
Kynningarnefnd lagði til við
stjóm VFÍ í skýrslu sinni fyrir einu
ári að taka upp svonefnt talsmanna-
kerfi. Núverandi kynningarnefnd
hefur stutt það og er nú svo komið
að innan skamms verður hægt að
hrinda því í framkvæmd. Að öðru
leyti vísast til skýrslu stjórnar um
talsmannakerfið.
Á næsta starfsári verður margt í gangi á vegum félagsins í tilefni 80 ára afmælisins og mun
kynningamefndin taka þátt í mörgu af því sem þá verður á dagskrá og mörg tækifæri munu
gefast til að kynna félagið. Það er von okkar að félagsmenn liggi ekki á liði sínu og taki þátt í
Mynd 14 Samgönguráðherra Steingrímur J. Sigfússon á
ráðstefnu um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð 7. 3.'91.
starfinu t.d. með því að koma með góðar hugmyndir.
Að lokum er rétt og skylt að þakka ölum þeim fjölmörgu sém hafa lagt nefndinni lið á
síðasta starfsári en að öðrum ólöstuðum er þáttur þeirra Arnbjíirgar og Guðríðar á skrifstofunni
mestur. Stjórn félagsins er og þakkað gott samstarf.
Þorsteinn Þorsteinsson (sign.)
7.3 Útgáfumál
Þann 30. apríl 1990 voru eftirtaldir skipaðir í útgáfunefnd VFÍ til 1. maí 1991 af fram-
kvæmdastjórn VFI.
dr. Steindór Guðmundsson formaður Stefán Ingólfsson
Birgir Jónsson Haukur Már Stefánsson
Ríkharður Kristjánsson Ragnar Ragnarsson
7.3.1 Inngangur
Útgáfunefnd hélt á síðasta ári áfram þeirri stefnu sem mörkuð var af fyrri útgáfunefnd (1989 -
1990). Haldið var áfram útgáfu Fréttabréfsins, og útgáfa Árbókar var undirbúin. Af ýmsum
ástæðum varð því miður dráttur á útgáfu hennar, en reynt verður að sjá til þess að næsta Árbók
komi á réttum tíma.
Verktækni kom út í óbreyttri mynd á árinu, en útgáfunefnd lagði fram tillögur um að þeirri
útgáfu yrði breytt á árinu 1991. Fékkst samþykki bæði VFÍ og TFÍ fyrir breyttri útgáfu, a.m.k.
árið 1991. Voru gefin út tvö stór, litprentuð temablöð í ár, eitt að vori og annað að hausti. Efni
blaðanna tengdist ráðstefnum sem verkfræðingar og tæknifræðingar stóðu fyrir, eða tóku
mikinn þátt í.
7.3.2 Útgáfustarf og fjárhagsrammi fyrra árs
Útgáfunefnd tókst á árinu að halda sig innan ramma fjárhagsáætlunar, og skilar jafnvel
einhverjum afgangi.
FréttabréFið, VFÍ fréttir. Fréttabréfið kom út í 16 tölublöðum í stað áætlaðra 18. í áætlun
var reiknað með að skrifstofan tæki yfir stærsta liluta útgáfustarfsins, og kostnaður við það