Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 56
54 Arbók VFI 1990/91
Björn Oli Östrup
Haitksson
Björn Oli Östrup Hauksson, (V 1990) f. 11. maí 1961 í Reykjavík.
Faðir K. Haukur Pjetursson, mælingaverkfræðingur f. 15. mars 1917 í
Reykjavík, Leifssonar, ljósmyndara og Steinunnar Bjartmarsdóttur,
kennara. Móðir Jytte Lis Östrup, kennari f. 14. maí 1917, dóttir L.C.
Östrup, skylmingameistara og íþróttakennara og Marta Marie Östrup.
Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og Civ. ing. í rekstrar-
verkfræði Álborg Universitetscenter 1989.
Störf: Stjórnunarstörf við CIM-verkefni hjá Álaborgarháskóla
1990. Sendifulltrúi Alþjóðlega Rauða Krossins í írak frá apríl til nóv-
ember 1991, í vinnu við vatnsveitugerð í Nassiryah og Bagdad eftir
Persaflóastrfð.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 19. júní 1990.
Dagbjartur Helgi
Guðmunclsson
Dagbjartur Helgi Guðmundsson (V 1991) f. 19.mars 1962 íKeflavík.
Foreldrar Guðmundur Ásgeir Jónsson rafvirki og verkstjóri f. 21. janúar
1926 látinn 13. júní 1982 og Dagbjört Jónsdóttir frá Ásmúla Rangár-
vallasýslu f. 6. desember 1921.
Foreldrar föður Jón Ágúst Guðmundsson ostagerðarmaður og
vitavörður og Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja og vitavörður. For-
eldrar móður Jón Jónsson bóndi og Ólöf Guðmundsdóttir húsfreyja.
Stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1982 og próf í byggingar-
verkfræði frá Háskóla íslands 1987.
Maki Þórunn Ósk Rafnsdóttir verslunarmaður f. 22. apríl 1965.
Foreldrar Rafn Sigurðsson smiður f. 2. aprfl 1940 í Reykjavík og Pál-
ína Óskarsdóttir sjúkraliði f. 8. desember 1945 í Reykjavík. Foreldrar
föður Sigurður Björnsson húsasmiður og Málfríður Halldórsdóttir
húsfreyja. Foreldrar móður Óskar Pálsson járnsmiður og Þórunn
Guðmundsdóttir húsfreyja.
Skyldleiki við aðra félagsmenn: Bræður Dagbjarts eru Brynjólfur
Stefán Guðmundsson og Jón Ágúst Guðntundsson.
Geir Guðmundsson (V 1991) f. 1. apríl 1965 í Reykjavík. Foreldrar
Guðmundur Jónsson vélfræðingur og yfirvélstjóri í Reykjavík f. 4. maí
1922 að Kambi í Reykhólasveit, A. Barðastrandasýslu látinn 11. maí
1988 og Ásta Ingunn Tliors fulltrúi f. 16. júní 1936 að Korpúlfsstöðum
íMosfellssveit. ForeldrarföðurJón Hjaltalín Brandsson bóndiaðKambi
og Sesselja Stefánsdóttir húsfreyja. Foreldrar móður Lorentz Thors,
bústjóri að Korpúlfsstöðum síðar verslunarmaður í Reykjavík og Gyða
Jónsdóttir Thors.
Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1985 og vélaverkfræði-
próf frá Háskóla íslands 1990.
Geir Guðmundsson