Árbók VFÍ - 01.01.1992, Síða 135
Reykjavíkurborg 133
6 Vélamiðstöð
Framkvæmdafé Vélamiðstöðvar fór nálega allt (79,7 m.kr.) í að kaupa nýja bíla og vinnuvélar.
7 Rafmagnsveita Reykjavíkur
Til almennra hverfisveituframkvæmda var varið 461,4 m.kr. Þær framkvæmdir tengjast að
mestu nýbyggingarhverfunum í sveitarfélögum á orkuveitusvæði rafmagnsveitunnar. Mest var
framkvæmt í Kópavogi, 196,8 m.kr. þar af 174,6 m.kr. í aðveitustöðvar.
8 Vatnsveita Reykjavíkur
8.1 Nýframkvæmdir
Uppbyggingu í Heiðmörk var haldið áfram fyriralls 63 m.kr. Verkþættir voru þessir: háspennu-
kerfi, fjarmælingar, varafl, virkjunarframkvæmdir, boranir fjögurra vinnslu- og rannsóknar-
holna í Vatnsendakrikum, auk jarðvinnu og snyrtingar á svæðinu.
Nýjar aðalæðar voru lagðar fyrir 33 m.kr., nýlagnir í dreifikerfi fyrir 28 m.kr., dælustöðvar
(Keldnaholt) 10 m.kr. og brunahanar 11 m.kr. Aðalbækistöð Vatnsveitunnar 14 m.kr.
8.2 Endurnýjun.
Dreifiæðar og brunahanar voru endurnýjaðir fyrir alls 18 m.kr. Stofnæðar voru endurnýjaðar
fyrir 45 m.kr. og var stærsta verkefnið lagnir í Sæbraut ásamt tengingum og lokabrunni.
9 Hitaveita Reykjavíkur
9.1 Nesjavallaveita
Framkvæmdum við virkjun Nesjavalla og Nesjavallaæð lauk að mestu á árinu. Virkjunin var
formlega gangsett 29. september 1990.
9.3 Annaö
Vinna við útsýnishús á Öskjuhlíð gekk nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Reiknað er með, að
húsið verði fullgert á árinu 1991.
11 Reykjavíkurhöfn
Langmestu eða um 87% af framkvæmdafé Reykjavíkurhafnar var veitt í nýja flutningahöfn í
Sundahöfn, þ. e. í Vatnagörðum og Kleppsvík.
í Vatnagörðum (59,3 m.kr.) var unnið við byggingu sporbita á Kleppsbakka, gerð skjólgarðs
og landgerð á Klettasvæði og austan Kleppsbakka. Þá lauk á árinu framkvæmdum við lengingu
Kleppsbakka.
í Kleppsvík (92,7 m.kr.) var unnið að byggingu Vogabakka, dýpkun aðsiglingar og snún-
ingssvæðis og landfrágangi.
12 Strætisvagnar Reykjavíkur
Keyptir voru 5 nýir vagnar á árinu fyrir 60,7 m.kr. og er það um 88% af framkvæmdafé fyrir-
tækisins.