Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 150
3-8
Póstur og sími
Árið 1990 var gott ár fyrir Póst og síma hvað rekstrarafkomu varðar og hefur fjárhagsleg staða
fyrirtækisins styrkst hin síðustu ár. Þessu má fyrst og fremst þakka arðsömum fjárfestingum
sem hafa leitt af sér aukna notkun símkerfisins. Hér hafa haldist í hendur nýjar þjónustugreinar
og bætt þjónusta, en mikið átak hefur verið gert innan fyrirtækisins til að bæta þjónustuna.
Árið hefur þó ekki verið með öllu áfallalaust og er skemmst að
minnast eldsvoðans í efstu hæð Landsímahússins við Austurvöll
en hann olli talsverðum skemmdum á húsnæði og truflunum á
símasamböndum. Vel gekk þó að koma símasambandi í samt
lag aftur og öll endurbygging tók skamman tíma. Innan fárra
vikna var starfsemin í húsinu komin í eðlilegt horf.
1 Landupplýsingakerfiö (LUK)
í byrjun ársins 1988 hófst formlegt samstarf Pósts og síma við Reykjavíkurborg um atliuganir
á því að tölvuvæða alla vinnu við kortagerð hjá þessum aðilum þar sem, auk kortagerðar, hin
ýmsu gagnasöfn yrðu tengd kortunum á tölvutæku formi. Eftir mikla undirbúningsvinnu var
tölvukerfi sett upp í apríl 1990. í fyrsta áfanga er Póstur og sími með tvær vinnustöðvar en
Reykjavíkurborg hefur samtals átta vinnustöðvar og er ætlunin að þær verði allar samtengdar
með háhraða gagnaneti. Þegar þetta kerfi verður komið í gagnið verður hægt að fá á einum
stað allar upplýsingar, t.d. allar lagnir í götu, hvort heldur þær eru frá Hitaveitunni, Rafveit-
unni, Vatnsveitunni eða Pósti og síma.
2 Sjálfvirkar stöðvar
Á árinu 1990 voru settar upp fimm stafrænar útstöðvar á Neskaupstað, Blönduósi, Lauga-
bakka, Minniborg og Álftanesi. Auk þess voru settar upp símstöðvar í færanlegum húsum á
Hvammstanga og á Höfn í Hornafirði. í árslok voru tæp 40% símanúmera tengd stafrænum
stöðvum.
3 Örbylgjukerfið
í árslok 1990 voru stafræn örbylgjusambönd á landinu 29 talsins og samtals 679 km. Þau sem
bættust við á árinu voru á milli Patreksfjarðar og Hænuvíkurháls, Hvolsvallar og
Vestmannaeyja, Þrándarhlíðafjalls og Blönduvirkjunar og Selfoss og Minniborgar.
4 Símasamband við útlönd
Árið 1990 voru sett upp stafræn símasambönd um Skyggni við jarðstöðina Tanum í Svíþjóð og
við jarðstöðina Etam í Bandaríkjunum. Um þessi sambönd l'ara nú allar talrásir við Norðurlönd
og við AT&T í Bandaríkjunum. Á báðum samböndum er fjölrásabúnaður, sem gerir kleift að
nýta hverja rás í gervitunglinu fyrir 3-4 talrásir í einu. í árslok var samtals 301 lína til útlanda