Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 228
226 Árbók VFÍ 1990/91
kostnaðaráætlanir eru tæki til að hjálpa stjórnandanum til að ná markmiðum verkefnisins. Þær
eru ekki spennitreyja, sem ekki er hægt að breyta.
3 Kostnaðaráætlanir
Samanburður kostnaðartalna er ávallt erfiður og varhugaverður ef um misgamlar áætlanir er að
ræða. Sérstaklega hefur þetta verið erfitt hér á landi vegna óstöðugs verðlags, bæði vegna
verðbólgu og ótryggs gengis. Undanfarin misseri hefur þó orðið á stórbreyting til batnaðar og
horfir sem stendur vel í þessum málum.
Nauðsynlegt er að allur samanburður fari fram á jafnverðmætum krónum, sem þýðir að það
verður að umreikna þau verð, sem bera á saman, til sama verðlagstímabils. Geta má þess hér
að Ríkisendurskoðun leggur til að notað sé í skilamötum verðlag í júlí 1987 við samanburð
byggingarkostnaðar opinberra bygginga, en í júlí 1987 var byggingarvísitalan síðast færð í 100
stig. Við erum ekki þeir einu, sem nota eldri grunn til viðmiðunar. Matsmenn í Þýskalandi nota
til dæmis grunn frá 1913 í sínum útreikningum.
Kostnaðaráætlanir eru af ýmsum toga og það er algengara en hitt að menn séu að bera sam-
an &jörólíkar kostnaðaráætlanir, byggðar á ólíkum forsendum og unnar á mismunandi tímum.
Til þess að freista þess að koma hér fastari skipan á og auka líkur á raunhæfum samanburði,
höfum við, sem höfum sérhæft okkur í verkefnisstjórnun, sameinast um vísi að viðmiðun og
samræmdu formi á framsetningu kostnaðaráætlana. Er það kennt við Pétur Stefánsson, ráð-
gjafarverkfræðing.
Samkvæmt því skiptast kostnaðaráætlanir í þrjá nákvæmniflokka.
3. gráðu áætlun; byggir á lauslegri frumhönnun eða forkönnun og er nánast aðeins „vís-
bending um stærðargráðu“, kr/m2, kr/m3. Líkleg skekkjumörk: -15/+35 % (PMI = -30/+50 %)
2. gráðu áætlun; byggir á mótuðu mannvirki, þegar helsti búnaður hefur verið ákveðinn,
hönnun er lokið að 35-50 % . Líkleg skekkjumörk: -10/+20 % (PMI = -5/+30 %)
■o
E
50
40
30
20
10
0
- 10
-20
-30
— Frumhönnun ▼ 3 — Forhönnun r i — Verkhönnun Verklok t
— PS (Pétur Stefánsson) pM| pgjör jrklok Igert nnvirki
▲ i — 3. gráöu áætlun Vísbending um stæröargraöu L i 2. gráöu áætlun Mótaö mannvirki L l 1. gráöu áætlun Up f V) Fullhannaö mannvirki Fu ma
Mynd 2 Nákvœmi kostnaðaráœtlana.