Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 11
INNGANGUR RITSTJÓRA
Þessi árbók er hin nítjánda í röðinni, en sú fyrsta kom út árið 1988.
Fyrstu árin var bókin prentuð í svarthvítu, að undanskilinni kápu,
en árið 2002 var hún fyrst gefin út í lit. Það er ánægjulegt að vita
til þess að margir félagsmenn VFÍ og TFÍ hafa látið í ljós hrifningu
á frágangi bókarinnar og jafnframt hrósað innihaldi hennar.
í fyrsta kafla bókarinnar er greint frá félagsstörfum innan VFÍ og
TFÍ og í öðrum kafla, tækniannálnum, er farið vítt og breitt yfir
tæknisviðið. í þriðja kafla er fyrirtækjum gefinn kostur á að kynna
starfsemi sína með því að segja frá því markverðasta eða birta
tæknigreinar er varða fyrirtækin. í fjórða kafla eru birtar ritrýndar
vísindagreinar en þeim fimmta almennar tækni- og vísindagreinar.
Ahugi fyrirtækja og stofnana á því að fá birtar kynningar- eða tæknigreinar í árbókinni
hefur aukist ár frá ári. Sömuleiðis hefur áhugi hjá félagsmönnum aukist á því að birta
tækni- og vísindagreinar eftir sig í árbókinni. Að þessu sinni eru birtar 23 kynningar- og
tæknigreinar frá fyrirtækjum í þriðja kafla bókarinnar. í fjórða kaflanum eru birtar fimm
ritrýndar vísindagreinar og í þeim fimmta 14 almennar tækni- og vísindagreinar.
Ritstjóri leggur áherslu á, eins og kostur er, að efni í árbókinni sé fjölbreytilegt og höfði til
félagsmanna VFÍ og TFÍ. Vegna takmarkaðs pláss eru höfundar beðnir um að koma efni
frá sér í sem stystu máli, en þó án þess að það komi að sök að því er varðar gæði þess.
Jóhönnu Hörpu Árnadóttur, formanni VFÍ, Steinari Friðgeirssyni, fyrrverandi formanni
VFÍ, og Bergþóri Þormóðssyni, formanni TFÍ, ásamt öðrum félagsmönnum sem lögðu
hönd á plóginn, er hér þakkað fyrir gott samstarf við gerð árbókarinnar. Logi
Kristjánsson framkvæmdastjóri og allt starfsfólk á skrifstofu félaganna fá þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf á árinu, svo og Pétur Ástvaldsson sem annaðist allan prófarkalestur
bókarinnar.
Höfundum vísinda- og tæknigreina er þakkað fyrir vandaðar greinar og enn fremur rit-
rýnendum vísindagreina. Loks eru fyrirtækjum og stofnunum færðar þakkir fyrir fróð-
legar kynningar- og tæknigreinar og fjárframlög til gerðar bókarinnar.
Það er von mín að félagsmenn hafi ánægju og fróðleik af lestri árbókarinnar og óska ég
þeim öllum velfarnaðar á nýju ári.
Félagsmál Vfí/TFÍ
9