Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 39
Á stofnfundinum var kosin þriggja martna stjórn til eins árs. Stjórnin skipti þannig með
sér verkum að formaður er Steindór Guðmundsson en meðstjórnendur eru þau Olafur
Hjálmarsson og Bergþóra Kristinsdóttir.
Með fyrstu verkefnum nýrrar stjórnar var að kynna félagið og að halda ráðstefnu um
hljóðhönnun bygginga.
Gert er ráð fyrir að koma á samstarfi við norrænu fagfélögin. Stjórn félagsins hefur haft
til athugunar, í samvinnu við norska félagið, að halda norræna hljóðráðstefnu hér á landi
árið 2008. Ráðstefnan er haldin á vegum norrænu fagfélagamia annað hvert ár. Eystra-
saltslöndin hafa átt aðild að henni síðastliðinn áratug.
Eins og áður segir er ætlunin að halda faghópnum opnum öllum þeirn sem áhuga hafa á
hljóðhönnun og hljóðvist. Þeim sem ekki komust á stofnfundinn en hafa áhuga á að
starfa með félaginu, er bent á að skrá sig á póstlista faghópsins hjá skrifstofu VFI/TFÍ.
Norðurlandasamstarf
Um nokkurt árabil hefur VFÍ tekið þátt í samstarfi Norrænu systurfélaganna með því að
formaður og framkvæmdastjóri sæki árlega „Nordisk Ingeniörmöde" (NIM). Á árinu
2003 var sú breyting gerð að ellefu félög verkfræðinga og tæknifræðinga stofnuðu
NORDING. Kemur það félag í stað NIM-fundanna sem verkfræðingar og tæknifræð-
ingar héldu hvorir í sínu lagi.
NORDING
Á árinu 2006 var NORDING haldið í Kaupmannahöfn 24. til 26. ágúst. Á fundinum var
m.a. rætt um breytta heimsmynd og alþjóðavæðingu. Verkefni tæknifræðinga og verk-
fræðinga bjóða upp á að þeir starfi í öðrum löndum en sínu heimalandi. Efnt var til pall-
borðsumræðna um alþjóðavæðingu tæknifræðinnar og verkfræðinnar (Nording respons
on globalisation) þar sem boðið var til leiks Lars Pallesen, rektor DTU, Lars Mikkelgaard-
Jens, forstjóra IBM í Danmörku, Anne Marie Damgaard, starfsmanni Danska verslunar-
ráðsins sem er með starfsstöð í Brussel, og Kristian Phil Loventzen, þingmanni Venstre á
danska þinginu og varaformanni Norrænu þingmannanefndarinnar. Fram kom í máli
þeirra að alþjóðavæðing er staðreynd og tæknifræðingar og verkfræðingar verða að laga
sig að breyttum aðstæðum.
Forstjóri IBM sagði að fyrirtækið leitaði eftir því að verkefni væru leyst af hendi á fag-
legan hátt, á sem stystum tíma og á lægsta verði. Þannig eru verkefni fyrir ÍBM unnin af
sérfræðingum um allan heirn. Fram kom í máli hans að það fólk sem ráðið væri til fyrir-
tækisins nú væri með M.Sc.- eða doktorsgráðu.
Gæði menntunarinnar verða að standast samanburð við það besta sem gerist í heiminum
á hverjum tíma, sagði rektor DTU. Hann lagði áherslu á að háskólar yrðu að horfa fram
á veginn í menntun verkfræðinga og tæknifræðinga. Það tæki um sjö ár að mennta verk-
fræðinga og á þeim tíma breyttust þarfir markaðarins.
Unnið er að því að ryðja úr vegi hindrunum sem verða á vegi tæknifræðinga og verk-
fræðinga þegar þeir vinna erlendis eða siima tímabundnum verkefnum í öðrum löndum.
Eru þetta ýmis skatta- og launamál. Um þetta efni fjölluðu m.a. þingmaðurimi og starfs-
maður verslunarráðsins í Brussel. Fundurinn var hinn fróðlegasti og er mikilvægt að
íslenskir tæknifræðingar og verkfræðingar fylgist vel með þessari umræðu.
Samþykkt var að næsti fundur NORDING verði á íslandi í lok ágúst 2007.
3 7
Félagsmál Vfí/TFÍ