Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 103
VEGAMÁL
Bifreiðaeign
Samkvæmt tölum frá Umferðarstofu voru nýskráðar fólksbifreiðar 19.448 á árinu 2006 á
móti 22.140 árið áður, sem samsvarar 12% fleiri skráningum. A sama tíma voru nýskráðar
126 hópferðabifreiðar á móti 214 árið áður sem samsvarar 41% fækkun. Nýskráðar vöru-
og sendibifreiðar voru 3.549 á árinu 2006 en 3.583 árið áður og er það aðeins um 1%
fækkun skráninga á milli ára. Aukning í nýskráningu mótorhjóla var rúmlega 42% en
nýskráð voru 1.534 hjól á móti 1.080 árið á undan.
Þó að nýskráningum hafi fækkað nokkuð á árinu 2006 miðað við árið á undan vex
bifreiðafjöldi landsmanna þó jafnt og þétt og er nú kominn í rúmlega 227 þúsund bíla.
Fólksbifreiðaeign á hverja þúsund íbúa er nú komin í 642 samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Umferðarstofu.
Bensíngjald
Bensínsala á árinu 2006 nam um 210,5 milljónum lítra sem er 5,1% aukning frá árinu á
undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkisbókhaldi voru innheimtar tekjur af bensín-
sölunni, þ.e. bensíngjaldið, 6.935 m.kr. árið 2006. Það er 388 m.kr. meira en tekjuspá vega-
áætlunar gerði ráð fyrir og 345 m.kr. meira en áætlað var í fjárlögum og fjáraukalögum.
Bensínbifreiðum hefur fjölgað um 13,6% sl. fimm ár en sala á bensíni hefur ekki aukist í
sama hlutfalli. Hún hefur aðeins aukist um 5,9% á þessu sama tímabili. Díselbifreiðum
hefur fjölgað um 17,2% sl. fimm ár en sala á bensíni ekki aukist í sama hlutfalli. Hún hefur
aðeins aukist um 10,6% á þessu sama tímabili. Díselbifreiðum hefur fjölgað hlutfallslega
mun meira á þessum tíma eða um 65%.
I ársbyrjun 2006 kostaði lítriim af 95 oktana bensíni 114,80 kr. frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. Verðið hækkaði lítillega fram í mars en frá mars til loka apríl hækkaði það
um 13,9% og var komið í 132,90 kr./l um mánaðamótin apríl-maí. Verðið hélst nokkuð
stöðugt fram í byrjun júlí en þá hófust hækkanir að nýju og fór verðið hæst í 137,80 kr./l
um miðjan júlí. Verðið fór síðan smálækkandi og var komið í 119,80 kr./l í lok október. I
árslok var verðið svo komið niður í 117,70 kr./l. Verðhækkun á milli áramóta mælist því
aðeins 2,5%, en það gefur ekki rétta mynd af verðlagningu á bensíni á árinu. Vegið
meðalverð ársins var tæplega 124 kr./l eða um 8% hærra en verðið í ársbyrjun.
Þungaskattur
A árinu 2006 voru innheimtar tekjur af þungaskatti alls 1.013 m.kr. Skatturinn er í formi
kílómetragjalds og er aðeins lagður á bifreiðar sem eru yfir 10 tonn að leyfðum heildar-
þunga. kílómetragjald fyrir bifreið á bilinu 10-11 tonn er 0,29 kr./km og fer svo
stighækkandi og er 12,89 kr./km í flokki bifreiða sem eru 31 tonn og yfir.
Tæknianná
1 0 1