Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 150
Viðurkenning menntamálaráðherra
I september öðlaðist Háskólinn í Reykjavík viðurkenningu menntamálaráðherra á
kennslu- og rannsóknarstarfi í verk- og tæknivísindum. Viðurkenningin nær til þeirra
námsbrauta sem kenndar eru við tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild HR.
Viðurkenningin byggir á úttekt erlendra sérfræðinga sem menntamálaráðuneytið fékk til
að vinna að viðurkenningarferlinu, en niðurstöður þeirra má finna í skýrslu á vef
ráðuneytisins. I greinargerð sérfræðinganna kemur skýrt fram hversu miklu Háskólinn í
Reykjavík hefur áorkað á skömmum tíma, bæði í kennslustarfi og rannsóknum og lýst er
yfir aðdáun á þeirri fagmennsku sem ríkir við HR og þeim gæðakröfum sem þar eru
gerðar, sérstaklega í ljósi þess hversu ungur háskólinn er.
Rannsóknir
Rannsóknir eru mikilvægur þáttur í starfsemi tækni- og verkfræðideildar sem undirstaða
kennslu og til sjálfstæðrar þekkingarleitar. Með stórauknu framhaldsnámi munu rann-
sóknir aukast verulega við deildina á næstu miss-
erum. Háskólinn í Reykjavík stefnir að því að
alþjóðavæða starfsemi sína með verulegri fjölgun
erlendra starfsmanna og nemenda við skólann auk
samstarfs við erlenda háskóla, stofnanir og fyrirtæki.
Háskólinn í Reykjavík vinnur nú að stofnun Orku-
skóla í samvinnu við Háskóla Islands og Orkuveitu
Reykjavíkur þar sem boðið verður upp á alþjóðlegt
nám í vistvænni orkuframleiðslu og -nýtingu. Þar
verður aðaláhersla lögð á þau svið þar sem Islend-
ingar hafa samkeppnisforskot en námið víkkað út
eftir því hvar það reynist standa styrkustum fótum.
Ahersla verður lögð á rannsóknartengt meistaranám
og doktorsnám auk styttri námsbrauta og símennt-
unar.
Rannsóknir eru mikilvægur þáttur í starfsemi
tækni- og verkfræðideildar HR.
Tengsl við atvinnulíf
Háskólinn í Reykjavík er í eigu íslensks atvinnulífs og rík áhersla er lögð á tengsl við
atvinnulífið í starfsemi tækni- og verkfræðideildar. Fjölmörg nemendaverkefni og rann-
sóknarverkefni eru unnin í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir og umtalsveröur fjöldi
stundakennara úr atvinnulífinu kennir við deildina.
Háskólinn í Reykjavík og Lagnakerfamiðstöð Islands hafa gert með sér samning sem
hefur það að markmiði að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu
Lagnakerfamiðstöðvar íslands, auka nýtingu hennar og þróa ný áherslusvið í starf-
seminni. í þessu skyni mun Háskólinn í Reykjavík sjá um allan rekstur, fasteignir og
tækjabúnað stofnunarinnar, sem og að þjóna skólum landsins við uppbyggingu kennslu
í lagnatækni og endurmenntun lagnamanna í atvinnulífinu.
Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með nýjum samstarfssamningi MIT lráskólans við
íslenskt atvinnulíf, sem felur í sér aðgang að víðtæku samstarfi, rannsóknum, fyrirles-
urum, ráðstefnum, þekkingu og færni MIT eftir þörfum, markmiðum og óskum íslenskra
fyrirtækja sem taka þátt í samstarfinu.
Rektor Háskólans í Reykjavík er dr. Svafa Grönfeldt.
Forseti tækni- og verkfræðideildar er dr. Gunnar Guðni Tómasson.
1 4 8
Arbók VFl/TFl 2007