Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 152
Markmið
Vegminjasafnið er menningar- og fræðslustofnun. Markmið
þess er að standa vörð um minjar sem tilheyra fyrritíðar-
vegagerð á Islandi og varpað geta ljósi á þennan þátt í
menningar- og samgöngusögu þjóðarinnar. Þessar minjar
eru þjóðarverðmæti og með aðstoð þeirra ber safninu að
veita nútímafólki og komandi kynslóðum fortíðarsýn og
samband við söguna.
Hlutverk
Hlutverk safnsins að varðveita og miðla sögu vegagerðar á
íslandi. Varðveislunni gegnir það með söfnun, skráningu,
forvörslu og rannsókn á minjum um vega- og brúagerð á
Islandi, munum, ljósmyndum, filmum, teikningum,
skjölum og mannvirkjum. Miðlun sinnir safnið meðal
annars með sýningum og safnfræðslu.
Munir
Safnið á töluvert af munum, tækjum og tólum. Þetta eru
vegagerðarvélar, skúrar, tjöld, handverkfæri, ljósmyndir,
mælingatæki, skrifstofuáhöld, umferðarskilti, smíðaverk-
færi, reiðtygi, líkön og margt fleira.
Mikil vinna við að gera upp suma þessara muna hefur verið
innt af hendi víða um land í áhaldahúsum Vegagerðarinnar
á svokölluðum „dauðum tíma". Núna er unnið á þremur
stöðum að því að gera upp muni. í Borgarnesi er verið að
gera upp Diamond-dráttarbíl frá 1942, á ísafirði Trygg-
mótor frá 1923 og á Akureyri Volvo-vörubíl frá 1961.
Ahugi manna á safninu er mikill og bætist því stöðugt við
það, en safnið var lengstum á hrakhólum með húsnæði.
Tíðarandinn
Vegagerðarmenn þess tíma þegar söfnunin hófst, það er um
miðja síðustu öld, notuðu enn skóflu og hrífu, eins og til
dæmis Einar Friðriksson tippari um 1950. Tipparar voru
þeir kallaðir sem tóku á móti efninu sem ekið var í veginn.
Þeir sögðu til um hvar efnið skyldi losað og sáu svo um að
jafna úr því með skóflu og hrífu.
Þó voru að sjálfsögðu löngu komin nútímalegri tæki, svo
sem F.W.D. vörubíll (skammstöfun fyrir „Four Wheel
Drive").
i
1
i
|
1 5 0
Arbók VFl/TFl 2007