Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 5
TFI-FRETTIR
VFI-FRETTIR
FRÉTTATILKYNNING FRÁ
TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAGl ÍSLANDS
Þriðjudaginn 22. mars s.l. var aðal-
fundur Tæknifræðingafélags íslands
fyrir áriö 1987 haldinn í húsnæði
félagsins Lágmúla 7, Reykjavík. Daði
Ágústsson, rafmagnstæknifræð-
ingur, formaður félagsins, flutti skýrslu
stjórnar fyrir liðið starfsár og gat um
helstu atriði í starfsemi félagsins.
Má nefna að nú er hafin ritun sögu
félagsins og hefur Jón Böðvarsson,
ritstjóri Iðnsögu (slendinga, tekið að
sér að stýra verkinu.
Árlegt síldarkvöld félagsins var að
þessu sinni haldið í Holiday Inn 6.
nóvember 1987 og var Þorsteinn
Pálsson, forsætisráöherra gestur
kvöldsins.
Formaðurinn ræddi ítarlega um
Norrænt tækniár 1988 og skýrði hug-
myndir stjórnar félagsins um framlag
T.F.Í. til þess.
Þá nefndi Daði í skýrslu sinni þá
miklu umræðu sem átti sér stað á
sfðastliðnu ári þegar í Ijós kom að þol-
hönnun ýmissa mannvirkja væri
verulega áfátt. Við úttekt á því máli
kom í Ijós að engir tæknifræðingar
áttu þar hlut að máli og kvað Daði
það ánægjuefni að þeir hefðu ekki
lent í hópi svonefndra „fúskara".
Endurmenntun var sem áður ríkur
þáttur í starfi félagsins á starfsárinu
og er T.F.Í. aðili að Endurmenntunar-
nefnd Háskóla íslands, þar sem
geysimerkilegt starf er unnið.
Of langt mál yrði að rekja skýrslu
stjórnar ítarlegar en auk þess sem
hér greinir fjallaði stjórn um mennt-
unarmál tæknifræðinga almennt,
Daöi Águstsson, tormaöur T.F.f.
stóð fyrir skoðunarferð og sinnti er-
lendum samskiptum.
Sameiginlegt málgagn tæknifræð-
inga og verkfræöinga, Verktækni,
kom reglulega út á starfsárinu og
voru félagsmenn hvattir til þess að
vera duglegir að skrifa í blaðið.
Félagsmenn eru nú um 630 talsins
og er umtalsverð fjölgun i stéttinni á
hverju ári. ( stjórn sitja nú:
Daði Ágústsson, formaður.
Sveinn Frímannsson, varaform.
Júlíus Þórarinsson, gjaldkeri.
Eiríkur Þorbjörnsson, ritari.
Hreinn Jónasson, meöstjórnandi.
Varamenn eru:
Haraldur Sigursteinsson.
Gunnar Sæmundsson. □
B YGGINGARS YNING
íODENSE
Fæðingarborg þjóöskáldsins Hans
C. Andersen, Odense, verður 1000
ára á þessu ári.
Mikil hátíöahöld verða f Odense
27. apríl—12. júní.
Byggingaryfirvöld ( Danmörku
munu halda margar byggingarsýn-
ingar og fyrirlestra í þessu tilefni.
Hefur verið ákveðið að hafa hóp-
ferðir til Danmerkur á Byg og Bo 88:
Ferð 1: 5.—11. maf.
Ferð 2: 31. maí—3. júní.
Nánari dagskrá hátíðar er á skrif-
stofu Verkfræðingafélags (slands,
Engjateigi og Tæknifræðingafélags
(slands, Lágmúla 5.
Þeir, sem áhuga hafa, hafi sam-
band sem fyrst við Söluskrifstofu
Flugleiða, Hótel Esju, sem tekur niður
BYG&BO88
O D E N S E
FREMTIDENS BOLIGBYGGERII DANMARK
27. APRIL- 12. JUNI 1988
FUTURE HOMES - IN DENMARK
27 APRIL - 12 JUNE, 1988
pantanir. Fararstjóri veröur Stein-
grímur Sigurjónsson, byggingafræð-
ingur, sími 84749 eftir kl. 19.00. □
Steingrímur Sigurjónsson.
FRÁ FORMANNI VFÍ
Látinn heiðursfélagi.
Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor
er látinn. Hann var heiðursfélagi i
Verkfræðingafélagi (slands. Þorbjörn
var einn fremsti vfsindamaður íslend-
inga fyrr og síðar. Ég vil fyrir hönd
félagsins votta eiginkonu Þorbjörns og
móður samúð.
Ný stjórn.
Á aðalfundi VFÍ 15. mars s.l. var
Oddur Borgar Björnsson kosinn
varaformaður félagsins, Baldur
Hjaltason meðstjórnandi og Sæ-
mundur Þorsteinsson varamaður.
Fyrir sátu í stjórn Jón Ingimarsson,
sem tók við formennsku á fundinum,
Viðar Ólafsson fráfarandi formaður,
Eysteinn Haraldsson meðstjórnandi
og Ágúst H. Bjarnason varamaður.
Við undirbúning stjórnarkjörs fengust
engar tilnefningar frá félagsmönnum
og þurfti því fráfarandi stjórn að gera
tillögur um varaformann og fjóra
meðstjórnendur samkvæmt félags-
lögum. Að mínu mati tókst að fá fimm
hæfileikamenn til að gefa kost á sér til
stjórnarkjörs, en ég tel þó mikilvægt
að félagsmenn láti sig stjórnarkjör
meiru skipta og við fáum tilnefningar
frá félögum á næsta ári.
Hinrik Guðmundsson
lætur af störfum.
Hinrik Guðmundsson lét af störfum
fyrir VF( um s.l. mánaðamót. Hinrik
hóf störf fyrir félagið í október 1953
og hafði því starfað fyrir félagið í nær
35 ár. (tilefni þessara tímamóta hélt
framkvæmdastjórn félagsins Hinrik
smá hóf þar sem honum var þakkað
mikið og ósérhlífið starf í þágu félags-
ins og honum afhentur borðfáni með
merki félagsins á fæti úr islensku
blágrýti. Á fótinn var letrað: „Hinrik
Guðmundsson verkfræðingur. Með
bestu kveöju frá Verkfræðingafélagi
(slands. 30. mars 1988". Þetta er
fyrsti borðfáninn sem gerður er með
merki félagsins og þótti fram-
kvæmdastjóra við hæfi að gefa hann
fyrsta starfsmanni félagsins, fleiri
fánar eru í pöntun.
Innganga í VFÍ —
verkfræðingstitillinn.
Á liðnu starfsári Vann menntamála-
nefnd félagsins m.a. að því að semja
reglur um menntunarkröfur annars
vegar til þeirra sem óska eftir inn-
göngu í félagið og hins vegar til
þeirra sem óska eftir leyfi ráðherra til
að kalla sig verkfræðinga. Afar þýð-
ingarmikið er að setja skýrar reglur
um þetta, enda er sffellt verið að
bjóða upp á fjölbreyttara nám á sviði
Jón Inglmarsson, formaöur VFÍ.
tækni og raunvísinda og mikil ásókn
jaðarhópa um leyfi til að nota verk-
fræðingstitilinn og/eða um inngöngu í
félagið. Aöalstjórn félagsins hefur
samþykkt reglurnar og er áformað að
kynna þær yfirvöldum og náms-
mönnum hér á landi og erlendis á
næstunni.
Verkfræðinám við Háskóla
islands.
Verkfræðingafélag íslands hefur
allt frá byrjun 4. áratugarins sýnt verk-
fræðinámi við Háskóla islands
áhuga. Á félagsfundi í október 1940
hét félagiö að aöstoða Háskólann við
að undirbúa og koma á fót kennslu f
verkfræði og er greinilegt að sam-
vinna hefur verið náin fyrstu árin
a.m.k. og tilnefndi félagið m.a. i
nefndir vegna námsins. Kennsla í
verkfræði hófst í nóvember 1940 og
voru sjö verkfræðingar útskrifaöir f
lok stríðsins, en síðan var tekið upp
þriggja ára fyrrihluta nám.
Þegar undirbúningur að námi til
lokaprófs í verkfræði á árunum 1970-
71 var talsvert samstarf milli Háskól-
ans og félagsins. Haustið 1986 skip-
aði framkvæmdastjórn VFÍ þrjá
félagsmenn í nefnd til að vinna að út-
tekt á námi í verkfræði við H.í. fyrir
þróunarnefnd skólans. Nefndin skil-
aði viðamikilli skýrslu í nóvember s.l.
Jafnframt vinnu fyrir þróunarnefnd fól
framkvæmdastjórn nefndinni að
meta hvort nám við H.í. væri full-
nægjandi til að mæla með því að
nemendur sem útskrifast frá skólan-
um fái leyfi ráðherra til að kalla sig
verkfræðinga. Að mati nefndarinnar
hefur nám við deildina að mörgu leyti
gefist vel, hins vegar er Ijóst að end-
urskoða þarf suma þætti námsins, ef
gæði þess eiga að fullnægja kröfum
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988
5