Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 7

Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 7
F STARFSEMI ÚTGÁFUNEFNDAR ÁRSHÁTÍO VFÍÁRIÐ 1988 Á aðalfundi VFÍ 1987 voru sam- þykktar lagabreytingar að tillögu fyrr- um Kynningar- og ritnefndar, þar sem gert var ráð fyrir að Útgáfunefnd tæki við því hlutverki, sem var í raun aðal- viðfangsefni Kynningar- og ritnefndar, en það var að sjá um útgáfu Tímarits VFl' og fréttablaðs, þ. e. Verktækni. Höfuðverkefni Útgáfunefndar á starfsárinu var að móta stefnu og gera tillögur varðandi Tímarit VFÍ, sem af fjárhagsástæðum hafði stöðv- ast eftir útkomu 1. tbl. 1985. Að öðru leyti var eftir þörfum fjallað um útgáfu Verktækni, sem getur talist hafa verið í nokkuð föstu formi og komið út reglulega, eða eins ognýju lögingera ráð fyrir. Hvað viðvíkur Tímariti VFÍ eru helstu niðurstöður eins og hér segir: Kynningar- og ritnefnd vann i lok árs 1986 og byrjun 1987 að mótun hugmynda um nýtt útgáfufyrirkomu- lag TVFÍ með árbók í huga. Stjórn VFÍ skipaði sem kunnugt er nýja menn í Útgáfunefnd sl. sumar. Ekki tókst að ná nefndinni saman fyrr en í byrjun október. Útgáfunefnd VFÍ kom sex sinnum saman til fundar á starfsárinu, þ. e. það sem af er þessum vetri. Fjall- aði nefndin um málið á síðasta árs- fjórðungi og lagði tillögur um útgáfu- tilhögun TVFÍ, fyrir stjórn VFÍ í fyrri hluta febrúar sl. Árbók VFÍ Lagt var til, að hætt yrði að gefa út TVFÍ í þeirri mynd, sem verið hefur undanfarin útkomuár. i staðinn kæmi árbók, sem hefði „Tímarit VFÍ" sem undirtitil, þannig að tímaritið héldi áfram að koma út, en aðeins i breyttri mynd. Utgáfunefnd gerði tillögur um efni og gerð árbókar, ásamt kostn- aðaráaetlun fyrir fyrstu árbókina. Gert var ráð fyrir, að fyrsta árbókin yrði fyrir árið 1988 og að hún gæti komið út fljótlega að liðnum fyrsta árs- fjórðungi 1989. Fjármögnun var hugsuð sem félagsleg áskrift (eins og verið hefur með TVFÍ til þessa) að hluta til, þannnig að þess sem á vant- aði yrði aflað í formi styrkja og/eða auglýsinga. í fjárhags- og rekstraráætlun VFÍ fyrir árið 1987 var gert ráð fyrir 300 þús. kr. til útgáfu Tímarits VFÍ. Skv. lögum félagsins frá aðalfundi 1987 ber að gefa út minnst eitt tölublað á ári frá og með árinu 1987 í stað sex tölublaða á ári til loka árs 1986. TVFÍ 1985 til 1987 Hvað snertir útkomu TVFl’ fyrir árin 1985 til 1987 leit útgáfunefnd svo á, að nokkrir möguleikar væru fyrir hendi, og lagði til að stjórn VFl jæki ákvörðun um einn eftirtalinna val- kosta: (1) Að taka upp þráðinn, þar sem út- koma TVFÍ stöðvaðist með 1. tbl. 1985 og láta kom út annaö tbl. 1985, sem yrði nr. 2 til 6, láta koma út eitt tbl., nr. 1-6 fyrir 1986, og eitt skv. nýjum lögum fyrir 1987. Alls yrðu þetta þrjú tölublöð, sem kæmu út aftur í tímann. Mjög vafasamt er að 300 þús. kr. fjár- veitingin frá 1987 nægði til þessa. (2) Að láta útkomiö tbl. fyrir 1985 nægja fyrir það árið, og koma út einu tbl. fyrir 1986 og öðru fyrir 1987, þ. e. gera nýju lögin afturvirk um tvö ár. Láta sfðan afganginn af 300 þús. krónunum, ef ein hver yrði, renna til fyrstu árbókar, þ. e. fyrir árið 1988. (3) Að slá saman í eitt tbl. fyrir 1986 og 1987 og láta afganginn af 300 þús. kr. fara til árbókarinnar. Með þessu yrði að nafninu til haldið samfelldri, árlegri útkomu TVFl’. (4) Að láta koma út eitt tbl. fyrir 1987, sleppa alveg úr 1986 og láta af- ganginn af 300 þús. kr. renna til árbókarinnar. (5) Að leggja alla upphæðina, 300 þ. kr., í fyrstu árbókina og láta eiga sig að koma út þeim tölublöðum, sem á vantar frá 1985 til og með 1987. Valkostur nr. 2 hafði mestan hljóm- grunn í Útgáfunefnd, en nr. 3 kom næst á eftir. Hvorugur rýfur algjörlega samfelluna í útkomu Tímaritsins, og kostnaður við hvorugan færi, að því er ætla má, yfir samþykkta félagslega áskrift fyrir 1987. Stjórn VFÍ valdi kost nr. 3 og hefur jafnframt ákveðið, að stefnt skuli að útgáfu árbókar i sam- ræmi við ofangreindar tillögur Útgáfu- nefndar. □ Rögnvaldur S. Gislason. Árshátið Verkfræðingafélags (s- lands var haldin i Broadway með miklum glæsibrag föstudagskvöldið 4. mars 1988. Aldrei hefur áður verið jafn fjölmennt á árshátíð félagsins og þarna voru mættir verkfræðingar á öllum aldri ásamt mökum sínum. Árshátíðargestir fóru að tínast í hús- ið upp úr klukkan sjö um kvöldið og var þeim boðið upp á fagurbláan for- drykk við komuna. Fljótt varð Ijóst að mikið fjölmenni var mætt á árshátíð- ina og allir í hátíðarskapi, ungir sem aldnir. Að loknum fordrykk og til- heyrandi vinaspjalli var sest að borð- um og formaður VFÍ, Viðar Ólafsson, bauð gesti velkomna og setti hátíð- ina. Fól hann siðan veislustjóra kvöldsins, Kristjáni Sigurbjarnarsyni, stjórn kvöldsins. Undirbúningsnefnd árshátíðar- innar var að sjálfsögðu klappað lof í lófa. Undir borðum var fjöldasöngur sem veislustjóri stjórnaði. Verkfræðilegan annál ársins flutti Halldór Jónsson verkfræðingur og kom hann víða við. Rifjaði hann meðal annars upp á gamansaman hátt umræðuna um burðarþol húsa og áhrif skjálftalína á hönnun húsa sem og líf verkfræðinga jafnt sem annarra. Fram var borinn Ijúffengur matur, allt með rósrauðum bjarma vegna lýs- ingar, a. m. k. við borð ritara þessa pistils. Forréttur mun hafa verið laxa- paté; aöalrétturinn svínakjöt með eplum, rósakáli, gulrótum og brúnuð- um kartöflum ásamt sósu og jarðar- ber með ís í eftirrétt. Ónefndurfélagi með óvænta uppá- komu (skv. auglýstri dagskrá) var Egill B. Hreinsson rafmagnsverk- fræöingur og dósent við H( og spilaði hann jass af mikilli innlifun. Heiðursmerkjaafhending VFÍ var á dagskrá eins og tilheyrandi er á slík- um hátíðarstundum. Formaður félagsins afhenti fyrir hönd merkis- nefndar Unnsteini Stefánssyni heið- ursmerki VFÍ og bað hann vel að njóta. Að loknum eftirrétti og þegar komið var að kaffinu skemmti Ríó-tríó gestum við góðar undirtektir. Dansaö var fram eftir nóttu og þar sýndu verkfræðingar að þeim er margt til lista lagt. Á þessari fjölmennu árshátfð voru um 440 manns í mat og hafa aldrei verið fleiri áður á árshátíð félagsins. Ef vel heppnuð og fjölmenn árshátíð er mælikvarði á áhuga félagsmanna, geta menn verið bjartsýnir um félags- starfið i nánustu framtíð. Árshátíð — Nokkur orð frá tveim verkfræðikonum Veislustjóri árshátíðar VFÍ, benti á að auglýsing um árshátíðina var á sömu opnu og auglýsing um ráð- stefnuna Konur og tækni. Þessa tvo merku viðburði bar upp á sama dag og við undirritaðar vorum á báðum stöðum. Urðum við því bæði undr- andi og glaðar þegar veislustjóri hóf að lesa upp úr því er hann sagði vera niðurstöður vinnuhóps ráðstefnunnar. Gleði okkar var þó skammvinn, því sú drápa sem lesin var upp hafði aug- Ijóslega ekki verið samin í vel skipu- lögðu hópstarfi kvenna. Síðar baðst veislustjóri afsökunar á drápulestr- inum eftir ábendingu frá rauna- mæddri konu. Er við hugsum til baka til árshátíðar verkfræðinga, finnst okkur að e. t. v. megi endurskoða þann verkfræði- lega anda sem þar sveif yfir vötnum. Til dæmis höfðuðu fáar skemmti- sögur kvöldsins til okkar. Það eru líka nokkrar konur verkfræðingar. □ Guðrún S. Hilmisdóttir byggingarverkfræðingur Sigrún Pálsdóttir vélaverkfræðingur VERÍCTÆKNI — 25. APRÍL 1988 7

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.