Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 6

Verktækni - 25.04.1988, Blaðsíða 6
félagsins áfram. Félagið hefur skrifað Verkfræðideild Háskólans bréf þar sem úttektinni er fagnað og tekið undir niðurstöður hennar. í bréfinu segir jafnframt að félagið vilji bíða átekta og fylgjast með framvindu málsins innan deildarinnar áður en afstaða verður tekin til þess hvort ástæða sé til að breyta stefnu félagsins um heimild til handa þeim sem útskrif- ast frá deildinni til að kalla sig verkfræð- inga. I lok bréfsins lýsir félagið yfir stuðningi við Verkfræðideildina við að koma á nauðsynlegum breytingum. Ég tel að VFÍ hafi ákaflega þýð- ingarmiklu hlutverki að gegna í sam- bandi viö verkfræðinám við H.l. Að sjálfsögðu hlýtur félagið að gera sömu kröfur til þeirra sem útskrifast þaðan og þeirra sem útskrifast er- lendis. Við hljótum hins vegar að sýna H.l. ræktarsemi og vilja efla hann. Félagið áformar að efna til fundar um menntunarmál verkfræð- inga næsta haust. Stefna framkvæmdastjórnar VFÍ 1988-89 Um þessar mundir er stjórnin að ræða hvaða málefni skuli leggja áherslu á á starfsárinu. Gert er ráð fyrir að taka nokkur mál út úr og vinna vel að þeim. Ef þiö hafið tillögur um mál- efni sem þið teljið mikilvægt að setja á oddinn vinsamlegast hafið samband við stjórnarmenn eöa framkvæmda- stjóra. Stjórnin væntir þess að geta gert grein fyrir stefnumálum stjórnar- innar í næsta hefti Verktækni. □ Jón Ingimarsson. NÝR VARA- FORMAÐUR Á aðalfundi Verkfræðingafélags íslands sem haldinn var 1988 var Oddur B. Björnsson kosinn til em- bættis varaformanns. Eins og félög- um VFÍ er kunnugt er nú kosinn nýr varaformaður árlega til eins árs. Eftir fyrsta árið í framkvæmdastjórn verð- ur varaformaður sjálfkrafa formaður næsta árið. Formaður situr síðan áfram I framkvæmdastjórn þriðja ár- ið, en þá sem meðstjórnandi og ráð- gjafi. Oddur er fæddur 19. ágúst 1950 í Reykjavik sonur Björns Magnús- sonar prófessors og Charlottu Kr. Jónsdóttur konu hans. Oddur B. Björnsson. Oddur er stúdent frá MR. 1970 og lauk prófi í vélaverkfræöi frá Háskóla íslands árið 1974, annar af tveimur fyrstu vélaverkfræðingum sem út- skrifast frá Hl’ eftir 4 ára nám. Oddur hlaut styrk til framhaldsnáms í Heriot- Watt University I Edinborg og lauk þaðan Ph.D. prófi í vélaverkfræði árið 197Ó með straumfræði sem sérgrein. Oddur hóf störf hjá verkfræðistof- unni Fjarhitun h.f. áriö 1978 og hefur starfað þar siðan við ýmis ráðgjafa- störf á sviði vélaverkfræði. Hann varð hluthafi í Fjarhitun h.f. áriö 1983 og hefur setið í stjórn fyrirtækisins síðan 1985. Oddur var stundakennari við verk- fræðideild HÍ 1978 til 1981, aðjúnkt 1981 til 1984 og dósent í 50% stöðu til 1986. Hann kenndi hvorutveggja í vélaverkfræöiskor og rafmagnsverk- fræöiskor. Ennfremur hefur Oddur verið kennari og leiöbeinandi við Jarðhitaskóla Sameinuöu Þjóöanna árin 1984- 1987. Oddur hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Verkfræðingafélag (sland. Hann sat í framkvæmdastjórn VFÍ1980 til 1982 var formaður kynn- ingar og ritnefndar VF( 1981 til 1982 og menntamálanefndar VFÍ 1985 til 1988. Oddur er kvæntur Ástu Magnús- dóttur meinatækni og eiga þau þrjú börn. □ Alsink ódýr gœðalausn Álsínkhúðað Bárustál og Garðastál í hœsta gœðaílokki sniðið íyrir íslenskar aóstœður. Frábœrt tœringarþol og allt að tvöíöld ending borið saman við galvaniserað. Við aígreiðum Bárustálið og Garðastálið í öllum lengdum á þök og veggi. Allir íylgihlutir ávallt íyrirliggj- andi. Haíið samband við sölumenn okkar og íáið ráðgjöí og kostnaðaráœtlun. ^OJIÖOí = HÉÐINN Stórás 6, 210 Garðabœr 6 VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.