Verktækni - 25.04.1988, Page 12
viö. Sem dæmi um fjórða liðinn má
taka að nýtt hráefni leysir annað af
hólmi eins og þegar plastefni komu í
stað hamps í neta- og kaðlagerð eða
að nýjar leiðir fjármögnunar finnast.
Dæmi um fimmta liðinn gæti verið
stofnun stórmakaöarins Hagkaup sem
leiddi til þess að matvörumarkaðurinn í
þéttbýlinu stokkaðist upp með endur-
skipulagningu.
Höfundurinn skýrir ekki aðeins út
hvernig tækniframfarir í þrengri skiln-
ingi sem afsprengi uppfinninga og
uppgötvana í efna- og eölisfræði hafa
breiðst út á Vesturlöndum og hver áhrif
þær hafa haft á hagþróunina heldur
leggur hann þær að jöfnu við frum-
legar nýjungar I skipulagningu og
stjórnun.
Ástæða er til að vekja athygli á
því að mælikvarðinn á framtak
frumkvöðulsins er að það sé nýjung
fyrir þá markaðsheild og þjóðarbú-
skap sem hann tilheyrir en ekki aö
brotið sé blað á alþjóöavelli. Þá er
vert að gefa því gaum að athafna-
maðurinn þarf ekki að vera upphafs-
maður hugmynda heldur sá sem
hagnýtir hana í atvinnuskyni. Þekktir
uppfinningamenn eins og Bell og
Edison stofnuðu fyrirtæki til að hag-
nýta hugmyndir sínar. Sama er að
segja um skærustu frumkvöðlastjörn-
urnar í tölvuiönaði eins og Hewlett
Packard, Jobs og Wozniack. Þeir
sfðasttöldu helltust þó úr rekstrinum
(Apple). Henry Ford var hinsvegar
frumkvöðull sem hagnýtti sér nýjar
framleiðslu- og söluaöferðir en ekki
uppfinningamaður.
Það er þó frekar undantekningin
en reglan að góður uppfinninga-
maður reynist góður frumkvöðull í
atvinnurekstri. Því er að finna mörg
dæmi um frumkvöðla sem hagnýta
tæknihugmyndir annarra. Hugmynd-
ir frumkvöðla um nýjungar á sviði
stjórnunar og sölu eru oftar en ekki
þeirra eiain.
Frásagnir af viðskiptajöfrum
Unnt er að llta athafnamenn út frá
mörgum sjónarhornum. Einu þeirra
höfum við kynnst, því hagfræðilega
eins og það kemur fram hjá Schum-
peter, en það hefur hlotið almenna
viðurkenningu. Einnig verður stað-
næmst viö sálfræðileg og félags-
fræöileg sjónarhorn en áður verður
vikið að gagnsemi þess að setja sig
inn í ævi og störf þekktra athafna-
manna. Til eru fjölmargar frásagnir,
greinar, viðtöl og ævisögur um
þekkta athafnamenn. Af þeim má
ráða hvernig þeir brugðust við
ákveðnum aðstæðum, hvert gildis-
mat þeirra er, skoðanir á stjórnunar-
aðferðum og persónueinkenni. Um
þessar mundir er ævisaga lacocca
ennþá á metsölulista vlða um heim.
Af nægu er að taka hérlendis. Minna
má á ævisögur Tryggva Gunnars-
sonar, Thors Jensen, Einars Sig-
urðssonar og Einars Guðfinnssonar
svo að dæmi séu tekin. Gagnsemi af
þeim er þó frekar táknræn I þeim
skilningi að lestur sllkra bóka stappar
I menn stálinu heldur en að I þeim
megi finna frásagnir sem séu beint til
eftirbreytni eða víti til að varast.
Eftir því hefur veriö tekið aö gildis-
mat mikilla afkasta, dugnaöar og
auðsöfnunar er missterkt milli þjóöa
og þjóðarbrota og jafnvel innan sömu
þjóðar. Allir kannast við dæmin um inn-
flytjendur frá Vestur-Evrópu til Banda-
ríkjanna, Kanada, Ástralíu, Suður-Am-
eríku og Suöur-Afríku á þessari og síð-
ustu öld. Fyrir þá skiptir máli að standa
sig I öðru landi, óháð venjum og
félags-legum hefðum heimalandsins.
Margir gerðust athafnamenn I atvinnu-
lífinu við þessar aðstæður. Þá er einnig
oft talað um Gyðinga á Vesturlöndum,
Kínverja á Kyrrahafseyjum og Ind-
verja í Austur-Afríku þegar leitaö er
dæma um þjóöarbrot sem sýnt hafa
athafnasemi utan heimalandsins.
Minna má á að nú er að renna upp
fyrir Bandaríkjamönnum að fólk af
kínverskum ættum skarar fram úr f
skólakerfinu (Sbr. nýlegaforsíöugrein
Time um ,,Shiz kids") og sérhæfir sig
Hvalfjarðargöng/
brú
Framhald af bls. 8.
ekki svo, en nauðsyn|ega vantar meiri
og nákvæmari upplýsingar, t.d. um
stofnkostnað, til þess að unnt væri að
meta arðsemi framkvæmdarinnar, ef
ætlunin er að reyna að afla fjár til
verksins með stofnun einkafyrirtækis,
sem fengi að leggja á vegtoll i vissan
tíma eins og nokkuð hefði verið rætt
um. Hagsmunaaðila í málinu taldi
Gunnar Helgi m.a. vera:
1. Byggðarlög.
2. Verkfræðinga og verktaka.
3. Bifreiðaeigendur.
4. Fjármagnseigendur.
5. Þjóðarbúið.
6. Þingmenn.
Helstu óvissuþætti taldi hann vera:
1. Stofnkostnað.
2. Rekstrarkostnað fyrir afskriftir
og vexti.
3. Heimild til eðlilegrar verðlagn-
ingar.
4. Umferð.
Því meiri sem óvissan er því meiri
er ávöxtunarkrafan. Fyrirtæki sem
þetta ætti þó að vera girnilegt sem
almenningshlutafélag, því starfsemin
er stöðug, markaður öruggur og allur
almenningur með á nótunum. Flestir
aka um Hvalfjörð og finna hagræðið
af styttingunni.
Stjórnvöld þurfa þó að forgangs-
raða verkefnum þegar um er ræða
mikla þenslutíma eins og nú. Þó taldi
Gunnar að sem fyrst ætti aö Ijúka við
undirbúningsrannsóknir svo hægt
i ákveönum atvinnugreinum.
Innan sama lands má einnig finna
mismunandi athafnasemi sem reynt
er að rekja til ólíkra félagslegra hvata.
Norður-ltalir eru taldir duglegri en
Suður-ítalir enda er atvinnustarfsemi
í norðurhluta landsins áberandi meiri.
Svabar, sem byggja land í kringum
Stuttgart í Þýskalandi, eru taldir iðn-
astir, sparsamastir og framtakssamastir
alllra Þjóöverja. Iðnaðarstarfsemi
er þar umfangsmikil og langt fyrir
ofan landsmeðaltal.
Sumir þjóöfélagshópar eru fram-
taksamari en aðrir við viss félagsleg
skilyrði. (Japan má rekja upphaf iön-
byltingar til snauðra og afskiptra að-
alsmanna sem sáu sér leik á borði til
að koma sér til álits og virðingar að
nýju.
Stjórnmálahugsjónir eins og sjálf-
stæðisbarátta geta verið aflgjafi fram-
taks. Nægir að vitna til athafnamanna
sem spruttu upp úr bændasamtök-
um 19. aldar eins og Tryggva Gunn-
arssonar og úr ungmennafélags-
hreyfingunni á fyrrihluta 20. aldar
væri að setja verkefnið í gang þegar
slaknar aðeins á í atvinnulífinu.
Frummælendur svöruðu fjölda
fyrirspurna bæði tæknilegum og fjár-
málalegum. Ólafur Bjarnason benti á
að eðlilegt væri að ríkið legði í fram-
kvæmdina a.m.k. sem svaraði kostn-
aði við nauðsynlegar vegabætur inn
fyrir fjörðinn auk kostnaðarins af
Akraborginni, sem legðist af. Einnig
kom fram sú hugmynd að greiða arð
af hlutabréfunum með frímiðum um
göngin/brúna í staö arðs í peningum.
Að lokum sleit Viöar Ólafsson fund-
inn og minnti á að sföasti Nóbels-
verðlaunahafi í hagfræði hefði fengið
verölaunin fyrir kenningar símar um
aö framfarir í visindum og tækni væri
einn mikilvægasti þátturinn í vellíðan
mannkyns. Félagar i VFÍ mættu hafa
það hugfast.
eins og Sigurjóns Péturssonar, Ála-
fossi.
Athyglisvert er í þeim dæmum sem
upp hafa verið talin að tilfinningin um
að vera utangarðs (outcast), efna-
hagslega (fátækt), að viröingu (litið
niður á), eða stjórnmálalega
(ósjálfstæði) virkar sem ögrun og
hvatning til athafna.
Eins og sjá má af þessari umfjöllun
er engin einhlít skýring til á dugnaði
athafnamannsins. Þar er að verki
flókið samspil margra þátta og engir
tveir athafnamenn eins. Þó er gagn-
legt og lærdómsrík, bæði fyrir verð-
andi athafnamenn og stjórnvöld, að
draga sem flesta þætti fram í dags-
Ijósið. Athyglin, sem nú beinist að
athafnamönnum ætti að stuðla að
því. Eitt svið hefur orðið útundan í
þessari grein en það er hið viðskipta-
fræðilega, sjálfsagt hiö mikilvægasta
af öllum. Þar er leitast við að lýsa
starfsháttum athafnamanna, fyrirtækj-
um þeirra, umhverfi og kynslóða-
skiptum. Bíður lýsing á því betri
tíma. □
5. ÖRSTUTTAR
NIÐURSTÖÐUR
FUNDARINS
Allir framsögumenn lögðu áherslu á
að hefja sem fyrst undirbúningsrann-
sóknir svo hægt væri að áætla ná-
kvæmar stofnkostnaðinn. Helstu
óvissuþættir sem rannsóknirnar þurfa
að finna svar við eru:
1. Fyrir jarðgöng: Kanna þykkt og
gerð lausra og hálfsamlimdra (jökul-
ruðnings) laga ofan á basaltklöpp-
inni. Meta lekahættu um brotalínur í
berginu og eiginleika bergsins til jarð-
gangnagerðar.
2. Fyrir vegfyllingu: Kanna magn
og gæði lausra jarölaga á sjávarbotni
og landi við utanverðan Hvalfjörð.
Einnig finna góðar grjótnámur fyrir
stórgrýti í ölduvörn. □
Birgir Jónsson.
Staðlar á íslandi Framhald af bls. 3.
þar eð engin leið er að miðla allri þeirri þekkingu sem nýta þarf með
skipulegri fræðslu. Og til að þekkingin sem menn afla sér með
verulegri fyrirhöfn nýtist þá verða þeir sem búa yfir henni að vera
gæddir verulegu eigin frumkvæði til að skapa nýjar hugmyndir og
framtaki til að hrinda þeim í framkvæmd.
VERKTÆKNI birtir að þessu sinni grein eftir prófessor Þóri Einars-
son þar sem fjallað er um nauðsyn framtaks og hvernig efla megi
það með fræðslu. Þórir hefur um nokkra hríð kennt sérstakt náms-
skeið í viðskiptadeild HÍ (innan stjórnunar) þar sem framtakssemi
(e.Entrepreneurship) er kennd með hliðsjón af sambærilegri fræðslu
erlendis. Gera má ráð fyrir því að grein þessi eigi sérstakt erindi fyrir
augu tæknimanna en þeir hafa margir góðar hugmyndir sem byggj-
ast á eigin tækniþekkingu en á hinn bóginn oft litla þekkingu á að
hrinda þeim í framkvæmd. Full ástæða virðist til að fræðsla af því tagi
sem hér getur sé tekin upp fyrir tæknimenn hér á landi ekki síður en
þá sem læra viöskiptafræði. JE
12
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988