Verktækni - 25.04.1988, Page 27
TÆKNI OG FRAMFARIR
staðlana fyrir forritunarmálin FOR-
TRAN og COBOL. Staðlarnir, svo og
krafa Bandaríkjastjórnar um að þessi
forritunarmál væru notuð, hafa haft
víðtæk áhrif og er COBOL t.d. ennþá
algengasta forritunarmálið í stórum
viðskiptaverkefnum og FORTRAN í
verkfræðikerfum.
Til þess að minnka kostnað við
hugbúnaðargerð þarf fyrst og fremst
að huga að því að fækka þeim nýju
forritunarlínum sem þarf að skrifa. Og
þá er úr vöndu að ráða. Stundum er
hægt að skera verkefnið eitthvað
niður. Einnig hafa komið fram af-
kastameiri forritunarmál sem hægt er
að beita við viss verkefni. En eina
færa leiðin er oft að endurnýta gaml-
an kóda. Og þá kemur upp sú hug-
mynd, hvort hægt sé að koma upp
viðtækum forritabönkum. Slíkir for-
ritabankar eru reyndar til á afmörk-
uðum sviðum og má þar nefna NAG
pakkann fyrir tölulega útreikninga.
Ada forritunarmálið var staðlað
1983 og var reyndar þróað fyrir til-
stuðlan bandaríkjahers gagngert
sem nýr staðall. Forritunarmálin Ada
og Modula-2 eru einu algengu for-
ritunarmálin, sem hafa vel útfærða
möguleika á einingaforritun, en ein-
ingaforritun er ein aðalforsendan fyrir
víðtækri endurnýtingu forritahluta.
Vert verður að fylgjast með notkunar-
þróun Ada og sjá, hvort notkun máls-
ins leiði til uþþsetningar almennra for-
ritabanka. Að margra mati eru Ada
forritabankar ein af fáum færu leiðum
til að auka framleiðni í stærri forrita-
kerfum svo einhverju nemi.
Ýmsir staðlar hafa komið fram á
síðustu árum varðandi kerfissetningu
og gæðaeftirlit við hugbúnaðargerð.
IEEE (Institute of Electrical and El-
ectronics Engineers) og ANSI hafa
riðið þar á vaðið og eru að gefa út
Software Engineering Standards:
• ANSI/IEEE Std 729-1983
Glossary of Softwarc Englneering Tcrminology
• ANSI/IEEE Std 730-1984
Software Quality Aasorance Plana
• ANSI/IEEE Std 828-1983
Softwarc Configuration Managcmcnt Plans
• ANSI/IEEE Std 829-1983
Software Teat Documentation
• ANSI/IEEE Std 830-1984
Software Requirementa SpecUicationa
• ANSI/IEEE Std 983-1986
Software Quality Aaaurance Planning
• IEEE Std 990-1986
Ada* Aa a Program Deaign Languagc
• ANSI/IEEE Std 1002-1987
Taxonomy for Soltware Engineering Standards
• ANSI/IEEE Std 1008-1987
Software Unlt Teating
• ANSI/|EEE Std 1012-1986
Software Verification and Validation Ilana
• IEEE Std 1016-1987
Software Deaign Deacriptiona
/Ua Distributed in cooperation with
yTy Wiley-Interacience, a division of John Wiley & Sons, Inc
Oddur Benediktsson
syrpu af stöðlum fyrir allt tilvistarskeið
hugbúnaðar. í þessu stöðlum er leit-
ast við að skilgreina hugtök nákvæm-
lega og tilgreina hvað þarf til að
brjóta hugbúnaðargerðina upp í að-
greinda fasa og hvernig skilin milli
fasanna eigi að vera. Þessir og aðrir
ámóta staðlar eða vinnureglur eru
forsendur þess, að hægt sé að vinna
að kerfissetningu stærri kerfa með
góðum árangri. Megin markmiðið er,
að öll vinnan við hugbúnaðargerð sé
skjalfest á skipulagðan hátt og þar
með að hægt sé að staðfesta, hvort
vel sé staðið aö verki og prófa hvort
lausnir séu réttar áður en að útfærslu
kemur.
Einnig má benda á, að samhliða
skilgreiningu og þróun Ada forrit-
unarmálsins, hefur verið skilgreint
heilstætt þróunarumhverfi. Það kall-
ast APSE ("Ada Programming
Support Environment”) og eru nokkr-
ar útfærslur á því komnar fram. Marg-
ar þeirra eru byggðar ofan á Unix
stýrikerfið.
Stöölun stýrikerfa, og Unix þá sér-
staklega, er reyndar kapítuli út af fyrir
sig. Unnið er að endanlegum stöðl-
um fyrir Unix og er tíðinda þar að
vænta innan skamms.
Þess má geta, að stjórn Bandaríkj-
anna krefst þess nú að notað sé Unix
og Ada við lausn tiltekinna verkefna.
Einnig er þess krafist hjá sænska rík-
inu að notaö sé Unix við útfærslu lítilla
fjölnotendakerfa.
STAÐAN HÉRLENDIS
Hér á landi falla stöðlunarmál
almennt undir Iðntæknistofnun Is-
lands (ITÍ). Á þaö einnig við um stöðl-
un á sviði upplýsingatækni. Stofnunin
fær senda alla útgefna staðla frá
helstu staðlastofnunum og fær einnig
ýmsar tillögur að stöðlum. Jóhannes
Þorsteinsson er sá starfsmaður ITÍ,
sem hefur umsjón með staðlamál-
unum. Islendingar verða nú í vor
aðilar að CEN og CENELEC (evr-
ópsku staðlasamböndunum) og
Póstur og slmi er aðili að TRAC
(„Technical Recommendation Appl-
ication Committee"), en TRAC tekur
bindandi ákvarðanir um sameigin-
lega notkun samskiptastaðla svo sem
X.25.
ITÍ hefur fengið fjárveitingu fyrir
starfsmanni á sviði stöðlunar í upp-
lýsingatækni, og verður staðan aug-
lýst bráðlega. Starfsmaður þessi fær
vinnuaðstöðu við Reiknistofnun Há-
skólans og mun væntanlega síðar
starfa við upplýsingatæknistofnunina
þá, sem nú er rætt um að stofnuð
verði í tengslum við Háskólann.
Á vegum ITI starfar Staðlaráð ís-
lands og stjórnar það stöðlunar-
málum. Undir Staðlaráði starfa stöðl-
unarnefndir og starfshópar. Tölvuráð
er ein slík nefnd og er undirritaður for-
maður þess. Einn starfshópurinn
vinnur nú að nýjum tillögum að stöðl-
un á tölvulyklaborði. Auöun
Sæmundsson stjórnar þeirri vinnu.
Þess má geta að í júní mun alþjóð-
legur vinnuhópur á vegum ISO halda
vinnufund sinn um stöðlun lyklaborða
m. a. og aö þessu sinni hér á landi.
íslendingar eru þátttakendur í
EUREKA verkefni, sem nefnist
COSINE, og er Jóhann Gunnarsson
talsmaður íslenska vinnuhópsins.
Tilgangur COSINE er að samræma
tölvunet háskóla og rannsóknastofn-
ana í Evrópu og víðar.
Loks má geta þess að á íslenska
Unix tölvunetinu fara nú fram miklar
umræður um hvort tímabært sé að
taka Unix stýrikerfið upp sem ríkis-
staðal hér á landi.
LOKAORÐ
l’slendingar sem og aðrar þjóðir
festa gífurlegar upphæðir í búnað og
vinnu á sviði upplýsingatækni. For-
senda þess að fjárfestingarnar borgi
sig er, að hægt sé að nýta hlutina
sem lengst og helst áratugum sam-
an. Því er nauðsynlegt að nota staðla.
Staðlar eru eina raunhæfa leiðin til að
verja kaupendur gegn skammtíma-
sjónarmiöum þeirra sem framleiða
eða selja tæki og búnað. Því er full
ástæða til að krefjast þess að tæki falli
að gefnum stöðlum og að viðhöfð
séu stöðluð vinnubrögð við kerfis-
gerð. □
Jónas Frímannsson, verkfræðingur:
ÍST 30
ALMENNIR SKILMÁLAR
UM VERKFRAMKVÆMDIR
3. útgáfa — Vinna við endurskoðun
Frá því að vinna hófst við fyrstu
útgáfu ÍST 30 á sjöunda tug aldar-
innar hefur þaö færst mjög í vöxt að
um verklegar framkvæmdir er samið
við verktaka að undangengnum
útboðum. Við meiri háttar mannvirkja-
gerð á vegum opinberra aðila er
þetta að verða meginregla. Samtímis
þessu hefur orðið sú þróun, að einka-
aðilar, fyrirtæki og einstaklingar, beita
útboðsaðferðinni í stööugt ríkari
mæli. Jafnframt hefur aukist fjöl-
breytni við tilhögun útboða. Áður var
oþið útboð algengasta formið, en nú
verður æ algengara, að hafa útboð
lokuð, þ.e.a.s. óska tilboöa frá tak-
mörkuðum hópi verktaka. Til
skamms tfma voru skipuleg alútboð
(tum key) nánast óþekkt hér á landi,
en hafa nú verið tekin upp, þótt enn
sé það f litlum mæli.
Þau atriði, sem hér hafa verið talin,
ásamt fleirum, gera það að verkum,
að endurskoðun á Almennum skil-
málum um verkframkvæmdir, er fylli-
lega tímabær.
Staðall Iðntæknistofnunar, ÍST 30,
fullu nafni „Almennir útboðs- og
Stöðlun; lykill að
þróun og hagvexti
samningsskilmálar um verkfram-
kvæmdir" kom út f 1. útgáfu árið
1969. Undirbúningur að því verki
hafði þá staðiö yfir í nær áratug. Á
þeim tveimur áratugum sem hafa
liðið frá þvl staðallinn kom fyrst út
hefur notkun hans jafnt og þétt og
farið vaxandi og má segja að nú sé
það orðin meginregla að nota hann
við útboð og samninga um verklegar
framkvæmdir.
Við gerð ÍST 30 mun upphaflega
hafa verið stuðst við danska staðalinn
um útboö og verkframkvæmdir (sem
nú heitir AB 72), en einnig litið til ann-
arra Norðurlandastaðla.
Árið 1979 kom síðan út 2. útgáfa
endurskoðuð.
Vinna við þriðju útgáfu staðalsins
hófst árið 1986. (því skyni var skipuð
nefnd fulltrúa hagsmunaaðila. Með
tilstyrk nefndarmanna var síðan safn-
að útboðslýsingum frá mörgum verk-
VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988
15