Verktækni - 25.04.1988, Page 30

Verktækni - 25.04.1988, Page 30
ilar þekktu ekki til staðalgerðar á við- komandi sviði. Iðntæknistofnun íslands annast yfirumsjón með stöðlum hér á landi, og þar er starfandi staðladeild. Á bókasafni ITÍ er mikið magn staðla og þangað berast nýjustu staðlarnir og fréttir af væntanlegum stöðlum. Ætlunin er að innan skamms verði sérstakur starfsmaður hjá Reikni- stofnun Háskólans, sem annast staðla á tölvu- og upplýsingasviði. Rétt er að hvetja alla, sem eru að feta nýjar slóðir í forritun að kynna sér hvort til eru staðlar á viðkomandi sviði. Þaö má nefna svið eins og tölvusamskipti, grafík, strikamerki, segulrákir og margt fleira. Þetta kostar ekki meira en eitt símtal eða heimsókn til ITÍ. Innlendir staðlar Til eru mjög fáir innlendir staðlar á sviði upplýsingatækni, en þeir sem gerðir hafa verið hafa haft víðtæk áhrif. Þar má til dæmis nefna ÍST-125, sem fjallar um útlit íslenskra lykla- borða, bæði á ritvélum og tölvu- skjám. Þessi staðall hefur haft ótrú- lega mikil áhrif í samræmingarátt og nú í dag eru mjög fáar nýjar tölvur, sem brjóta þennan staðal. Þörf er á fleiri slikum séríslenskum stöðlum um frágang vél- og hug- búnaðar. Tilgangur þeirra er ekki bara að samræma innlend vinnu- brögð, heldur einnig að þrýsta á erlenda framleiðendur. Innflytjandi vél- eða hugbúnaðar getur þá sýnt erlenda framleiðandandum íslenskan staðal og sagt að þessar kröfur verði að uppfylla til að varan sé markaðs- hæf á íslandi. Af sömu ástæðum er nauðsynlegt að samþykkja erlenda staðla hér á landi, og kynna þá vel. Þar má nefna staðla eins og ISO-8859 og fleiri slíka, sem falla beint að íslenskum að- stæðum og þarfnast því engra breyt- inga. Reyndar er það mun eðlilegri leið að tryggja að íslenskum hags- munum sé borgið í alþjóðlegum stöðlum, en samþykkja einhver af- brigði af þeim sem (slenska staðla. Séríslenskir staðlar er annað mál, en þeir ættu að einbeita sér að því að leysa sérhæfð innlend vandamál og þá gjarnan innan marka alþjóðlegra staöla. Sem dæmi um hugsanlegan nýjan íslenskan staðal má nefna staðal um samskipti bókhaldsgagna. Hægt er að hugsa sér tvenns konar möguleika á staðli. í fyrsta lagi má nefna sam- skiptaskrá og í öðru lagi eru sam- skiptafærslur (transactions). Sam- skiptastaðall á þessu sviði yrði að vera séríslenskur, þar sem styðjast yrði við íslenskar bókhaldsvenjur. Að sjálfsögðu er rétt að taka tillit til er- lendra staðaltilrauna, en Bretarnir eru að vinna að tillögum í þessa átt. Staðall þessi yrði án efa gifurlega hagkvæmur fyrir þjóðfélagið í heild, þar sem þókhaldsgögn gætu flætt milli fyrirtækja og stofnana. Með þessu móti geta endurskoðendur haft mjög sérhæfð uppgjörsforrit, en fyrir- tækin skráð gögnin. Það yröi því mun einfaldara aö útbúa bókhaldsforrit, sem hæföu hverju fyrirtæki eða deild fyrirtækis, allt frá einföldu skráningar- forriti yfir í mjög fullkomin samtengd kerfi. Jafnframt yrði mun auðveldara fyrir fyrirtækin að þróa tölvukerfi sitt áfram og flytja ýmis söguleg gögn yfir i nýtt bókhaldskerfi. Gerð þessa staðals er ekki fram- kvæmanleg nema með miklu átaki af hálfu ríkisvaldsins, endurskoðenda og hugbúnaðarfyrirtækja. Hag- kvæmni staðals af þessu tagi er slík að nauðsyn er á átaki sem fyrst. Þetta er einungis eitt dæmi um innlendan staðal, en að auki má sérstaklega nefna staðla á sviði upplýsingatækni í fiskiðnaði. Lokaorð Einhver sagði um staðla að kostur- inn við þá væri að þeir væru svo margir, ef einn hentaði ekki mætti ávallt finna annan. Fyrir litla þjóð eins og (slendinga er aðalkosturinn hins vegar sú samræming sem næst i al- þjóðlegum samskiptum. Því er mjög mikilvægt að halda árvekni sinni í alþjóðlegum staölastofnunum og tryggja að islenskum hagsmunum verði ekki kastað fyrir róða. Til þess að þetta náist þarf að efla mjög kynn- ingar á stöðlum hér á landi. Einnig þurfa þeir sem málið snertir að vakna til lifsins og leita sjálfir eftir upplýsing- um um staðla á þeirra fagsviðum. Ef slíkt er gert á hönnunartíma kerfisins, þarf tilkostnaður ekki að vera mikill, miðað við þann kostnaö sem getur orðið síöar meir. □ Frá Orðanefnd byggingarverkfræðinga Undanfarin ár hafa hugtök og orð úr samgöngutækni alloft borið á góma hér í orðabelg, bæði í Fréttabréfi VFÍ, meðan það kom út og síðan í Verktækni. Margir lesendur munu því vita, að orðanefnd bygg- ingarverkfræðinga kom við sögu varðandi orðafar í hinum nýju um- ferðalögum, er tóku gildi 1. mars s.l. Ég marka það af því, að ýmsir hafa borið fram gagnrýni við nefndarmenn á tveimur orðum f lögunum, afrein og aðrein, og fundið aö þeim að þau séu of lík. Frumvarp að nýjum umferðarlögum var lagt fram á Alþingi veturinn 1984-85. Fljótlega fór að bera á gagnrýni á málfari frumvarpsins á Al- þingi. Orðanefnd okkar var þá (og er reyndar enn) að fjalla um orð varðandi vegagerð og umferð. Hún fór yfir frumvarpið, og voru Alþingi sendar tillögur um margar lagfæringar á því. Flestar þeirra voru teknar til greina. í frumvarpinu hljóðaöi niðurlag 17. greinar þannig: „Ökumaður á aðrennslisrein skal aðlaga hraða ökutækis síns umferð á akrein þeirri sem hann ætlar inn á og fara af aðrennslisreininni strax og það er unnt án hættu eða óþarfa óþæginda. Ökumaður á akrein sem umferö af aðrennslisrein ætlar inn á skal auðvelda þeirri umferö akstur inn á akreinina. Afrennslisrein skal nota strax og hún byrjar". I athugasemdum okkar um frumvarpið segir svo um 17. grein: ,,( 3. og 4. mgr. eru ný orð: aðrennslisrein og afrennslisrein. Orðanefnd byggingarverkfræðinga óskar, að þessi orð séu ekki tekin upp i sam- göngutækni, því að aðrennsli og afrennsli hafa sérstakar merkingar í vatnafræði og verkfræði, auk þess sem óþarfi er og villandi að nota orö- ið rennsli um akstur. Orðanefndin leggur til, að umræddar reinar verði nefndar aðrein og frárein. Þær þarf aö skilgreina í 2. grein laganna. Nefndin hefur þegar samið skilgreiningar fyrir það orðasafn um vegagerð, sem hún vinnur að: Aðrein: Viðbótar-akrein meðfram akbraut, til að auðvelda aökom- andi ökutækjum að komast inn í umferðarstraum á akbrautinni, þannig að straumurinn truflist sem minnst. Frárein: Viðbótar-akrein meðfram akbraut, til að auðveldara sé að aka út úr umferðarstraumi á akbrautinni, án þess að trufla önnur öku- tæki í straumnum". Ekki vildu alþingismenn þiggja nema annað orðiö, sem við lögðum til, aðrein. I stað hins orðsins, frárein, fundu þeir orðið afrein. Það orð hafði reyndar komið til álita í orðanefnd, en þvi verið hafnað, þar sem það samræmist ekki mikilvægri vinnureglu í orðasmíð. Hún er á þá leið, að þegar búin eru til orð um skyld hugtök, er æskilegt að orðin endur- spegli skyldleikann (sbr. jafnvægi — misvægi), en að jafnframt sé á þeim greinilegur munur bæði í rituðu og töluðu máli. Það siðasttalda atriðið, sem er í ólagi við oröin aðrein — afrein, og þá ekki síðöur vegna þess, aö þegar er fyrir orðið akrein. Öll þessi orð þurfa umferðakennarar að taka sér í munn nánast í sömu andrá, og mun það ekki verða þeim öllum auðvelt, ef misvel gefnir nemendur eiga að skilja greiðlega. Nefndarmönnum eru þaö vonbrigði, að löggjafinn kærði sig ekki um að láta skilgreiningar á nýjum orðum fylgja umferðarlögum. Það hefði gert lögin aögengilegri fyrir almenning. Einar B. Pálsson. HAFIÐ ÞIÐ EITTHVAÐ FRÉTTNÆMT?? Þeir sem hafa eitthvað fréttnœmt fyrir Verktækni, eru beðnir um að hafa samband viö ritstjóra (JE). — (Hs.: 652238. V.: 629920 og 629920). w VERK TÆKNI 18 VERKTÆKNI — 25. APRÍL 1988

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.