Til sjávar - 01.05.2000, Qupperneq 4

Til sjávar - 01.05.2000, Qupperneq 4
Öryggismál sjómanna Virk þátttaka er forsenda árangurs Vinna við gerð lang- tímaáætlunar um ör- yggismál sjófarenda er hafin að frumkvæði samgöngu- ráðherra, Sturlu Böðvarssonar. Sérstök verkefnisstjóm var skipuð til að vinna að framgangi verkefnisins. í henni em fulltrúar frá samgönguráðu- neyti, Siglingastofnun íslands og hags- munaaðilum. Ennfremur hefur Siglinga- stofnun ráðið Ingimund Valgeirsson, verkfræðing, til að vinna að verkinu. Stefnt er að því að þingsályktunar- tillaga um öryggismál sjómanna verði lögð fram á Alþingi. Mörgum spurningum þarf að svara Málaflokkamir sem verkefninu er skipt upp í em margvíslegir, t.d.: Ljósm.: Kristján Maack • skip og búnaður þeirra • vinnuaðstæður, öryggisbúnaður og aðbúnaður um borð • menntun og þjálfun sjómanna • heilbrigðisþjónusta við sjómenn • vitar, staðsetningar- og upplýsinga- kerfi • innsiglingar og öryggi í höfnum • upplýsingar og samskipti milli skipa og lands • eftirlit með skipum • björgunarmál, rannsóknir sjóslysa og slysaskráning I áætluninni verður stuðst við saman- tekt á ýmsum tillögum að úrbótum sem gerðar hafa verið síðastliðin ár. Nýleg gögn hefur vantað Nokkuð hefur vantað upp á nægilega gott aðgengi að nýlegum gögnum og upplýsingum um slys og óhöpp. Ákvarðanataka hefur því oft á tíðum ekki byggst á nægilega traustum gmnni. Til að bæta úr þessu er mjög mikil- vægt að virk þátttaka sé við upplýsinga- öflun og mótun framkvæmdaáætlun- arinnar. Sjómenn og aðrir sem láta sig öryggismál sjómanna varða em hvattir til að senda inn athugasemdir og tillögur. Horft fram í tímann í þessu verkefni er fyrst og fremst verið að horfa til hvaða kröfur þarf að gera til framtíðar. Spurningarnar em margvís- legar og svörin liggja ekki endilega fyrir. • Hver verður þróunin í hönnun og smíði skipa, búnaðar og tækja? • Hvemig verður skipastóllinn sam- settur, fjöldi skipa, stærð þeirra og gerð? • Hver verður þróunin í samgöngu- málum? • Hvernig þróast samstarf Islendinga við aðrar þjóðir í öryggismálum sjófarenda? • Hvemig skal unnið að því að uppfylla kröfur alþjóðlegra laga og reglna sem Island hefur gengist undir? Með sameiginlegu átaki allra sem að málinu koma verður vonandi hægt að mæta kröfum framtíðarinnar og stuðla að auknu öryggi sjófarenda á nýrri öld. Sjómennskan er ekkert grín Á heimasíðu Siglingastofnunar www.sigling.is/oryggi2000 er kynning á verkefninu og er öllum sem láta sig öryggismál sjómanna varða gefinn kostur á að koma sjónarmiðum og tillögum að fram til 1. júlí 2000. Til eru þrjár aðferðir til að koma ábendingum á framfæri: • Senda póst merktan „Öryggisáætlun sjófarenda" til Siglingastofnunar íslands, Vesturvör 2, pósthólf 120, 202 Kópavogi • Senda tölvupóst á netfangið: oryggi2000@sigling.is • Hringja í Siglingastofnun í sima 560 0000 og ræða við Ingimund Valgeirsson eða Jón Bernódusson. Tvö dauöaslys Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað á undanfomum ámm að slysum til sjós hefur fækkað og þá sérstaklega dauðaslysum. Tilkynnt sjóslys til Tryggingastofnunar em mun færri nú en fyrir nokkrum árum þó svo að lítils- háttar fjölgun hafi orðið 1999 frá árinu 1998 eða 381 í stað 378. Dauðaslys á fiskiskipum hafa verið sem betur fer fá sl. þrjú ár en þau vom tvö árið 1999, eitt 1998 og tvö 1997 - öll á bátum undir 12 metrum að lengd. Annað dauðaslysið árið 1999 má rekja til hífingar á veiðarfærum og í hinu féll maður fyrir borð. Þrjú fiskiskip fómst á árinu, öll undir 12 metrum að lengd líkt og árið 1998. Tvö þeirra sukku og eitt strandaði. 4

x

Til sjávar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Til sjávar
https://timarit.is/publication/903

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.