Til sjávar - 01.05.2000, Blaðsíða 7
Nýr starfsmaður
bu
E
Ný lög
frá Alþingi
Á síðustu dögum Alþingis biðu mörg
þingmál afgreiðslu. Þrjú frumvörp um
siglingamál urðu að lögum en önnur
þrjú sem lúta að atvinnuréttindum og
áhafnamálum sjómanna voru ekki
afgreidd. Eftirfarandi lög voru samþykkt
á Alþingi 9. maí 2000:
Lög (73/2000) um breytingar á Iögum
um tilkynningarskyldu íslenskra skipa
í þessum breytingum felst að skip styttri
en 24 metrar sem notuð eru í atvinnu-
skyni er skylt að tilkynna sig í sjálfvirka
tilkynningakerfinu (STK) sem nýlega
var tekið í fulla notkun. Hins vegar eru
skip sömu stærðar sem ekki eru notuð í
atvinnuskyni undanþegin þeirri skyldu,
en það eru íyrst og fremst skemmtibátar.
Þá er samgönguráðherra heimilt að
ákveða að skip sem stunda veiðar nálægt
landi (1,5 sjómíla skv. greinargerð) verði
undanþegin því að tilkynna sig í STK.
Lögin öðlast gildi 1. júlí 2000.
Lög (68/2000) um rannsókn sjóslysa
Með þessum lögum verða til heildarlög
um rannsókn sjóslysa sem koma í stað
ákvæða siglingalaga um það efni. í
lögunum eru nokkur nýmæli miðað við
gildandi löggjöf. Sjóslysarannsóknir
verða algjörlega sjálfstæðar og að því
leyti hliðstæðar rannsóknum flugslysa en
hingað til hefur frumrannsókn sjóslysa
verið hjá lögreglu og í sjóprófum. Þá er
kveðið á um að sönnun í opinberum
málum verði ekki byggð á skýrslum
rannsóknamefndar sjóslysa. Er það gert
til að trúnaður megi haldast milli
rannsakanda og þeirra sem rannsóknin
beinist að. Ennfremur er álit rannsóknar-
nefndarinnar notað til að efla forvamir
og auka öryggi skipa og sjómanna.
Lögin öðlast gildi 1. september 2000.
Lög (69/2000) um breytingar á sigl-
ingalögum
Meginbreytingin er að ekki er lengur
skylda að halda sjópróf. Ymsar
breytingar eru gerðar á lögunum til
samræmis við breytingar sem orðið hafa
á réttarfari. Þessi lagabreyting er gerð
samhliða nýjum lögum um rannsókn
sjóslysa og eru flestar breytingarnar
afleiðing af breytingum sem þar er gert
ráð fyrir. Lögin öðlast gildi 1. september
2000.
Vinnur að bættu öryggi sjómanna
Ingimundur Val-
geirsson, verk-
fræðingur, skipa-
sviði. Fæddur í
Reykjavík 20.
apríl 1963. Hefur
lokið prófi frá
Vélskóla íslands, Tækniskóla íslands,
er tæknifræðingur frá Odense Teknikum
1989 og lauk meistaraprófi í verkfræði
frá Háskóla íslands á þessu ári.
Ingimundur hefur síðastliðin ár starfað
fyrir Slysavarnafélagið að öryggis-
málum sjómanna samhliða vinnu að
MS-ritgerð sinni. Ingimundur kom til
starfa hjá Siglingastofnun í mars 2000 til
að vinna að verkefninu „Öryggisáætlun
sjófarenda 2000-2005“. Ingimundur á
einn son.
GPS
Hætt að rugla GPS kerfið
Ák
n.r
kvörðun Bandaríkja-
uforseta þann 1. maí
2000 að opna hemaðarhluta
GPS gervihnattastaðsetning-
arkerfisins kom mönnum hvarvetna í
heiminum í opna skjöldu þrátt fyrir að
vitað væri að þessi hluti yrði einhvern
tímann opnaður á næstu ámm. Hern-
aðarhluti kerfísins hefur hingað til verið
lokaður almenningi og gert það að
verkum að nákvæmni í staðsetningum
hefur aðeins verið um 100 metrar. Með
þessari ákvörðun eykst nákvæmnin
u.þ.b. fimmfalt eða í um 20 metra.
Af þessu tilefni hafa alþjóðasamtök
vitastofnana (IALA) gefið út yfirlýsingu
þar sem aðildarríki em hvött til að halda
áfram að reka DGPS leiðréttingakerfi
þrátt fyrir þessa stefnubreytingu.
Nákvæmni upp á 20 metra er ekki
nægileg fyrir skip sem þurfa að athafna
sig í innsiglingum hafna og annars
staðar þar sem rými til athafna er lítið.
Að sögn Guðjóns Schevings hjá
Siglingastofnun verður engin breyting
gerð á starfsemi DGPS kerfisins hér á
landi og er hann sammála mati IALA að
full þörf sé á að starfrækja kerfið áfram.
Sjómannadagur
Viðurkenningar til skipa 2000
Siglingastofnun veitir
árlega viðurkenningar á
sjómannadaginn til eigenda
og áhafna skipa sem taldar
eru hafa sýnt góða framkvæmd á
öryggisreglum og umhirðu á undan-
fömum ámm. Árið 2000 fengu eftirtalin
skip viðurkenningu:
• Antares VE-18
• Björgvin EA-311
• Gissur hvíti ÍS-114
• Kristrún RE-177
• Skinney SF-30
• Þorsteinn GK-16
• Örvar SH-777
Ljósm.: Kristján Maack
7