Til sjávar - 01.05.2000, Qupperneq 5

Til sjávar - 01.05.2000, Qupperneq 5
Slysavarnir í höfnum Nýjar reglur um slysavarnir í höfnum Aári hverju verða mörg óhöpp og slys í og við hafnir. Slysin má rekja til ýmissa þátta, svo sem óvarkámi, ónógs viðhalds og merkinga. Nýlega tók gildi reglugerð um slysavarnir í höfnum (nr. 247/2000). Setning þessarar reglugerðar er tímabær en hingað til hafa engar formlegar reglur verið í gildi um slysavarnir í höfnum. Þó svo að reglur einar og sér komi ekki í veg fyrir slys þá má ætla að þær muni hafa áhrif þegar til lengri tíma er litið og bæta öryggi í höfnum. I þessari grein verða helstu atriði reglnanna reifuð. Nær einnig til eldri mannvirkja í 1. gr. segir: „Við hönnun og endurbætur hafnarmannvirkja skal gert ráð fyrir uppsetningu öryggisbúnaðar og að mannvirki séu almennt þannig hönnuð, að þeim sem um hafnir fara sé sem minnst hætta búin og skal við ákvörðunina gætt að lágmarki ákvæða reglna þessara. Eldri mannvirki skulu sérstaklega yfirfarin og þau færð til þess vegar sem reglur þessar segja til um á gildistíma hafnaáætlunar áranna 2001- 2004.“ I 2. gr. segir m.a.: „Allar bryggjur skulu búnar vel færum stigum. Þeir skulu ná 1,5 m niður fyrir stórstraums- fjöruborð, vera með auðveldri upp- göngu yfir bryggjukant og málaðir með rauðgulri endurskinsmálningu. Ljós skal vera efst í hverjum stiga, nema á flotbryggjum. Lýsingu á bryggjum skal hagað þannig að stigarnir sjáist greinilega. Á flotbryggjum skulu stig- amir ná 1,0 m niður fyrir sjávarborð.“ Merking björgunartækja í 3. gr. er fjallað um björgunartæki. Þar segir að á hverju aðskildu hafnarsvæði eigi að vera aðgengilegir og vel merktir a.m.k. tveir bjarghringir, tveir krók- stjakar a.m.k. 6 m langir og tvö björg- unamet. - 1 á ' f íMk x x \ \ A r ) \ \ M 1 Y. A \ i / % ■ r; T, \i i \ Ljósm.: Kristján Maack Fjallað er ítarlega um lýsingu á hafnarsvæðum í 4. gr. reglnanna. Tryggt skal að lýsinu sé þannig háttað að vinnu- og umferðaröryggi sé í hámarki og hún tmfli ekki sjófarendur. I 5. gr. segir m.a.: „Á hverju hafnar- svæði skal vera a.m.k. einn bjölluskápur tengdur lögreglu/slökkviliði/hafnar- skrifstofu eða öðrum þeim aðila, sem kveðja má til ef slys ber að höndum.“ í 6. gr. er fjallað um bryggjukanta: „Á hafnarsvæðum þar sem akfært er að sjó og fyrir verða bryggjur þar sem dýpi verður meira en 1,5 m á flóði eða brattir kantar skulu gerðir minnst 20 cm háir kantbitar svo öflugir að þeir láti ekki undan ákcyrslu." Samræmdar merkingar Mikil áhersla er lögð á merkingar og að samræmi sé í þeim efnum, t.d. eiga bryggjukantar að vera málaðir í ljós- gulum lit (sítrónugult), stigar í rauðgul- um lit (appelsínugult). Hindranir skulu málaðar með svörtum og gulum rönd- um. Þetta kemur fram í 7. gr. en þar segir ennfremur að málningin skuli vera endurskinsmálning. Fjallað er um löndunar- og hafna- krana í 8. gr. Þeir eiga að vera skráðir skv. lögum og fyrirmæli Vinnueftirlits ríkisins gilda um notkun þeirra. I 9. gr. segir: „Umferð um hafnar- svæði skal skipulögð þannig að sem minnst slysahætta stafi af henni fyrir þá sem þar vinna. Ökuleiðir skulu vera nægjanlega breiðar og greiðfærar og gönguleiðir yfir þær greinilega merktar. Við op og gryfjur sem eru dýpri en 50 cm skal vera 100 cm hátt handrið með hnélista í 50 cm hæð. Vörur skal ekki geyma á hafnarbakka nær brún sjávarmegin en 2 metra.“ Eftirlit Sigiingastofnunar Rík áhersla er lögð á í reglunum (10. gr.) að hafnarstjórn sjái til þess að starfsmenn hennar fái lágmarksþjálfún í notkun þeirra björgunar- og öryggis- tækja sem eru á hafnarsvæðinu. Ennfremur á hafnarstjórn að skipu- leggja innra eftirlit með öllum þáttum þessara reglna og samráð skal haft við Siglingastofnun í þeim efnum Einu sinni á ári eða oftar eiga starfsmenn Siglingastofnunar að sannreyna virkni innra eftirlits hverrar hafnar. SJÓFARENDUR! Sýnið aðgát í höfnum SICLINCASTOFNUN 5

x

Til sjávar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Til sjávar
https://timarit.is/publication/903

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.