Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 28

Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 28
Halógenperur Útfjólublá geislun frá halóge Undanfarin ár hefur notkun halógenpera til lýsingar veriö sífellt aö aukast. Halógen lampar eru bæöi notaðir í atvinnuhúsnæöi svo og í heimahúsum. Smæö perunnar, skært Ijósið og nýtnin hefur gefiö hönnuö- um svigrúm í hönnun á lampabúnaði og lýsingarkerfum sem þeir höföu ekki áöur. Því kom það ekki á óvart að mörgum yrði órótt þegar þær fréttir bárust að útfjólublá geislun frá halógenperum gæti verið skaðleg mönnum. Vegna þessara frétta og rugl- ingsins sem þær hafa valdið verður hér leitast við að skýra ástæður þeirra og leiða hið rétta í ljós. ■ Útfjólublátt Ijós Allir ljósgjafar gefa frá sér út- fjólublátt ljós. Halógenperur eru að því leyti ólíkar venju- legum glóþráðarperum sem notaðar hafa verið í heima- húsum til langs tíma, að hit- inn á glóþræðinum er hærri í halógenperum og í stað venjulegs glers er notað kvartsgler. Aukinn hiti á glóþræðinum" veldur því að peran sendir frá Borðlampi Pera: 12v/50W Spegill: Kaldspegill Geislunarhorn: 38 gráður Birtumagn: 3.900 lux Fjarlœgðfrá borði: 80 sm Þvermál Ijóslceilu: 55 sm Roðnunartími án hlífðar- glers: 27 tímar Með hlífðargleri: 181 tfmi Af þessari kaldspegilsperu stafar engin hætta þar eð roðnunartíminn er lengri en átta tímar. Sólarljósið Sólarljós: Sumarsól í júní í Mið-Evrópu Birtumagn: 100.000 lux Roðnunartími: 15 mínútur Hætta er á að húðin roðni eða sólbrenni eftir aðeins 15 mínútur utan dyra. sér meira útfjólublátt ljós en venjuleg pera. I venjulegum perum gleypir glerið í sig út- fjólubláa geislun. Kvartsgler- ið í halógenperum hleypir aft- ur á móti útfjólublárri geislun í gegnum sig. Þetta eru ástæð- umar fyrir því að farið var að velta fyrir sér sérstaklega magni og áhrifum af útfjólu- blárri geislun frá halógenper- um. ■ Líffræðileg áhrif Líffræðileg áhrif útfjólublárr- ar geislunar á menn eru meðal annars roði í húð og augn- slímhúðarbólga sem koma fram stuttu eftir ágeislun og svo húðkrabbi sem getur komið fram eftir ítrekaða ágeislun yfir lengri tíma. Þessi áhrif koma fyrst í ljós þegar ákveðnu þröskuldsgildi virkrar geislunar er náð. Það þýðir að sú geislun sem veld- ur ákveðinni virkni verður að vera til staðar og að geislunar- tíminn verður að vera nógu langur til að lágmarksgildi ná- ist. Samkvæmt því sem nú er vitað hefur geislun engin áhrif ef þröskuldsgildi hefur ekki verið náð innan 24 stunda. Ekki eru til neinar reglur um hámark útfjólublárrar Valgeröur Skúladóttir rafmagnsverkfræöingur og félagi í Ljóstæknifélagi íslands skrifar geislunar í lýsingu. Þó er mælt með því að ekki verði vart við nein óæskileg áhrif vegna útfjólublárrar geislunar miðað við átta stunda vinnu- dag við lOOOlx. Hér á síðunni er tekið dæmi um áhrif útfjólublárrar geislunar frá borðlampa með halógenperu með kaldspegli. Þar er roðnunartíminn 27 tím- ar ef peran er án hlífðarglers. Með hlífðargleri er roðnunar- tíminn 181 klukkustund. Þar Samkvœmt samanburðinum hér til hliðar er ekki hœtta á roðn- un húðar vegna birtufrá halógenperu, en hœtta er á að húðin roðni eða brenni eftir aðeins stundarfjórðung í júnísólinni í Mið-Evrópu. sem tíminn í báðum tilvikum er meira en átta tímar er engin hætta talin af þessu ljósi. Til samanburðar má taka mið- sumarsólina í Mið-Evrópu. Eins og sjá má fer áhrifa geislunarinnar að verða vart eftir 15 mínútur. ■ Jákvæð áhrif Við mjög háan’lýsingarstyrk getur geislun frá halógenper- um valdið sólbruna. Sú hætta er þó aðeins fræðileg því hit- inn frá ljósinu við svo háan lýsingarstyrk er svo mikill að það eitt kemur í veg fyrir að manneskja geti þolað við í ljósinu. Við allar raunverulegar að- stæður þar sem halógenperur eru notaðar til lýsingar er eng- in hætta á sólbruna vegna þeirra. Ekki má gleyma að út- fjólublá geislun hefur líka já- kvæðar hliðar. Svokölluð B- geislun hjálpar til við myndun D-vítamíns og bætir upptöku kalsíums í líkamanum. En það á við útfjólubláa geislun eins og annað að skaði hennar og not eru háð magninu. ■ Aðrir þættir Halógenperur eins og aðrar perur senda frá sér lítinn skammt af útfjólublárri geisl- un. Ahrif hennar í lýsingarkerfí 28 NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.