Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 29

Neytendablaðið - 01.12.1992, Side 29
• • • • nperum einskorðast ekki við peruna heldur ræðst einnig af öðrum þáttum eins og til dæmis: • Gerð lampa • Geislunartíma (lýsingar- tíma) • Birtustyrk An þess að þekkja þessa þætti er ekki hægt að meta út- fjólubláa geislun frá lýsingar- kerfi. Ef einhverjar ástæður mæla samt sem áður með því að losna alveg við útfjólubláa geislun er hægt að útiloka hana algjörlega með því að nota perur með hlífðarskífu úr gleri eða ljós sem útbúið er með hlífðargleri. ■ Engin hætta Samkvæmt því sem vitað er í dag er hægt að slá eftirfarandi föstu: 1. Ef halógenperan eða lamp- inn eru með hlífðargleri er engin hætta á að útfjólublá geislun fari yflr æskileg mörk. 2.1 flestum raunverulegum Iýsingarkerfum þar sem haló- genperur eru óskermaðar er engin hætta á að útfjólublá geislun sé yfir æskilegum mörkum. 3. Útfjólublá geislun frá haló- genperum í venjulegum lýs- ingarkerfum er hundraðasti eða tíu þúsundasti hluti út- fjólublárrar geislunar undir bemm himni. Skaðsemi útfjólublárrar geislunar er ekki þekkt til hlít- ar, en getur verið sannleiks- kom í eftirfarandi ummælum? „Maðurinn var skapaður fyrir líf utandyra. Nútíma siðmenn- ing hefur valdið því að við verjum meirihluta tíma okkar innandyra þar sem sólarljósið nær ekki til. Það er mögulegt og sennilegt að það lýsingar- umhverfí sem halógenperum- ar veita okkur innandyra sé náttúrulegra en það sem við höfum með venjulegri gló- þráðarperu.“ (Gunnar Swan- beck: Notat. Halogenlampors effekt pá huden) Byggt á ýmsum heimildum. Nemandi í áttunda bekk grunnskóla í Váxjö, Marie Charlotte Sonesson, gerði þessa mynd sem andsvar við auglýsingunni neðst til hcegri. Andsvar við auglýsingum Þeir sem reykja eru líka menn, bara ekki eins lengi! Þetta spakmæli og mörg fleiri uröu af- rakstur samkeppni um andsvör viö auglýsingum sem sænska neytendablaðið Rád & Rön efndi til meðal grunnskólanema í Svíþjóð. Blaðið fékk svör frá 2.500 nemendum, samkeppnin varð hluti af skólastarfinu og nú hefur afraksturinn verið gefinn út á bók. Þar er að finna margar snjallar myndir sem sýna hvemig nemend- umir upplifa auglýsingar. Þar má til dæmis glöggt greina hve uppteknir nem- endur hafa verið af umhverf- ismálum og heilbrigði manna. Þannig varð auglýs- ing frá hamborgarakeðju nokkurri tilefni til myndar og texta um sorpvandamál- ið. Sælgætisauglýsing leiddi huga annars nemanda að tannskemmdum. Enn annar nemandi tók fyrir auglýs- ingu þar sem falleg og og vel til höfð kona dásamar tiltekna tegund af hreinsi- legi. Nemandinn kom aug- lýsingunni niður á jörðina með því að sýna konuna þreytta og heldur úfna eftir erfiðið við að hreinsa bað- herbergið. I bókinni er einnig gerð grein fyrir eðli auglýsinga og kostnaði þjóðfélagsins vegna þeirra. Kostnaður við gerð auglýsinga er þar bor- inn saman við framlög ríkis- ins til neytendamála, og þótt Svíar séu einna rausnarleg- astir í því efni virka krón- umar sem fara í neytenda- mál harla lítilfjörlegar við hlið þess gríðarlega mikla fjármagns sem fer í gerð auglýsinga. NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992 29

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.