Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 31

Neytendablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 31
Kellíngar að tuða og kallar að rífast Neytendur í Sovét sameinast undanfömum árum hafa sprottið upp og sameinast félög og samtök sem berjast fyrir réttindum neytenda við erfiðar að- stæður í þeim löndum er áður tilheyrðu Sovétríkjun- um. Á tímum fyrri stjómar- hátta í Sovétríkjunum var ekki grundvöllur fyrir staifi frjálsra félagasam- taka neytenda, enda þótt þörfin hafi vafalaust verið fyrir hendi. Þegar kerfið losaði takið í valdatíð Gor- batsjofs byrjuðu óðara að spretta upp félög neytenda. Arið 1989 var svo komið að ástæða þótti til að mynda samband neytenda- hreyfinga í Sovétríkjunum og hefur samband þetta lif- að af fall Sovétríkjanna, en að vísu skipt um nafn í takt við aðstæður. Hreyfingum neytenda hefur enn haldið áfram að fjölga og nú starfa 58 félög í sambandi neytenda sem nær til átta fyrrverandi lýð- velda Sovétríkjanna, þar á meðal Rússlands, Úkraínu og Litháen. Um er að ræða hreyf- ingar af ýmsu tagi með ýmsar áherslur. Innan þeirra starfa konur og karl- ar með ólíkan bakgrunn og ólík áhugamál, en baráttan fyrir bættum hag neytenda hefur sameinað þetta fólk. Helstu baráttumál þessara hreyfínga em úrbætur í umhverfismálum, framfar- ir í heilbrigðismálum og neytendavemd á viðskipta- sviðinu. Allar líða þessar hreyf- ingar af skorti á fjármagni, þótt engin þeirra hafi þurft að leggja upp laupana af þeim sökum til þessa. Starfið er borið uppi af áhugasömum frumkvöðl- um sem standa frammi fyr- ir erfiðum verkefnum. For- seti sambandsins er 37 ára gamall hagfræðiprófessor við Moskvuháskóla, Alex- ander Auzan. - World Consumer egar ég var á bamsaldri og farinn að fylgjast með fréttum, þá hélt ég að Neyt- endasamtökin væm einhver nöldurklúbbur leiðinlegs fólks sem hefði dularfulla ánægju af því að röfla út í kaupmenn. Af kaupmönnum hafði ég svo sem ekkert að segja, nema matvömkaupmönnum og eig- endum dótabúða - og ég sá ekki betur en alltaf væri til nógur matur (og það hlaut að vera okkar mál í fjölskyldunni ef við höfðum ekki alltaf efni á því besta) og undan dóta- búðunum var engin leið að kvarta. Kaupmenn virtust vera hugsjónafólk sem hjálp- aði fólki að útvega sér það sem vantaði. En þegar Neytendasamtök- in komu til sögunnar vom for- svarsmenn þar einlægt ein- hverjar kellíngar að tuða út af lélegum efnum í búðum, eða kallar að rífast út af fyrirbær- inu álagning - sem var mér lengi lokuð bók. Ég man eftir að hafa hugsað með mér: „Af hverju er þetta fólk svona óánægt? Éru þetta einhver skemmdarskrín, sem ætla að skemma fyrir búðunum?" Þetta var í árdaga Neyt- endasamtakanna, ef mér skjöplast ekki, og sjálfsagt hafa þau þá verið heldur lítil- fjörleg - að minnsta kosti var nöldursöm rödd þeirra hjáróma miðað við gleðina sem ríkti í búðunum. En síðan hefur viðhorf mitt náttúrlega breyst, og mest þegar ég gerði þá mikilvægu uppgötvun að kaupmenn væru ekki í bissniss bara til þess eins að gleðja mig og gera mér kleift að ganga um dótabúðir með stjömur í augunum. Illugi Jökulsson blaöamaður skrifar neytendum Ég held aftur á móti að skoðanir eins og þær sem ég var gegnsýrður af á bamsaldri séu í rauninni ótrúlega lífseig- ar með þjóðinni. Kannski eiga þær uppmna sinn aftur í einokunarverslun Dana, þegar íslendingar máttu þakka fyrir að fá yfirleitt að versla, og lærðu þá að þeir áttu að þjóna undir kaup- mennina, en ekki öfugt. En um leið og Islendingar óttuð- ust kaupmennina, og skriðu fyrir þeim, þá hötuðu þeir þá í laumi og þannig var allt við- horf landsmanna til verslunar heldur ankannalegt langt fram eftir þessari öld. Svipaða sögu er raunar að segja um embættismenn og hið opinbera í heild. íslend- ingar eru vanir því að líta á yfírvöld sem allt að því fjand- menn sína, sem ekkert gott geti komið frá, en um leið þarf mikið að koma til áður en sú andstaða birtist í ein- hverju öðru en tuldri og röfli úti í homi - og er hér væntan- lega líka um að ræða arf frá tímum Dana þegar yfirvöldin vom raunvemlega andsnúin þjóðinni, en ekkert þýddi að vera með múður, því þá blasti gapastokkurinn við - og ann- að verra. Viðhorf íslendinga bæði til kaupmanna og yfirvalda em því blönduð viðhorfum þrælsins, og það viðhorf mót- ar öll skoðanaskipti milli „al- þýðunnar“ og þeirra sem eiga að vera þjónar hennar - en líta ekki þannig á sig, af þeirri einföldu ástæðu að „alþýðan“ lítur heldur ekki þannig á málin: hún er full af múðri og óvirkri andstöðu en ber jafn- framt svo óttablandna virð- ingu fyrir öllu sem heitir yfir- vald að eðlileg kröfugerð og samskipti vilja verða í skötu- líki. Þessi viðhorf em vonandi eitthvað að breytast, og þar hafa og geta Neytendasam- tökin átt stóran hlut að máli. Ég tek því um síðir ofan minn andlega hatt fyrir því leiðin- lega fólki sem hafði svo dul- arfulla ánægju af því að nöldra út í kaupmenn... NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1992 31

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.