Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.1997, Síða 2

Neytendablaðið - 01.09.1997, Síða 2
n> / ' Tryggðarkort Umboðsmenn neyt- enda á Norðurlöndum, að íslandi undan- skildu, hafa sett leið- beinandi reglur um tryggðarkortakerfi. Um þetta er m.a. fjallað á bls. 3 í umfjöllun Birgis Guðmundssonar hagfræðings á ís- lenska bankakefinu er dreginn upp ófögur mynd af ís- lenska bankakefinu X Persónu- ' upplýsingar Fjölmargar upplýsingar eru skráðar um ein- staklinga. Ef ekki væru í gildi reglur um hvað má skrá og hvernig má nýta upplýsingarnar, væru ýmsir möguleik- ar, t.d. fyrir óprúttna sölumenn. Barnabílstólar Barnabílstólar eru lífsnauð- synlegur öryggisbúnaður. En það er ekki nóg að hafa stól- inn í bílnum, hann verður einnig að festa á réttan hátt. Ný gæða- könnun sýnir einmitt að þetta er stærsta vandamálið, það er ein- faldlega of flókið að festa stóln- um í bílinn. í blaðinu erfjallað í ítarlega um barnabílstóla, gæði, verð og markað. 10-13 Internetið Internetið er sífellt ríkari þáttur í lífi og heimilshaldi. ítarleg um- fjöllun í blaðinu ætti að auðvelda rétta notkun á Internetinu. 16-20 Skattlagning íbúðarhúsnæðis Ríki og einkum sveitarfélög innheimta fjölmarga skatta af íbúðareigendum og -byggjendum. En hvaða skattar eru þetta og hve háir eru þeir í einstökum sveitarfélögum. 6-9 Móðurmjólkin er best En hún dugar hins vegar ekki alltaf fyrir börnin okkar og þá þarf að nota ungbarnaþurrmjólk. Neytendablaðið hefur kannað markaðinn. 14-15 CE - merkið sem ekki er hægt að treysta CE-merkið blasir víða við á vörum, á leik- föngum, rafmagnsvörum, hjálmum, barnabíl- stólum og mörgu öðru. Fjölmargir neytendur telja CE-merkið sérstakt gæðamerki og að vör- ur sem það bera hafi farið í gegnum sérstakar prófanir og að þær uppfylli fjölmargar kröfur sem gera verði til að tryggja öryggi og gæði. En því miður, svo er alls ekki raunin. Tilurð merkisins er í raun ekki vegna neyt- enda, heldur vegna framleiðenda og eftirlitsað- ila. Og í mesta lagi segir merkið aðeins eitt, framleiðandinn lofar að varan uppfylli evrópsk- ar lágmarkskröfur og þar með er varan lögleg hvar sem er á EES-svæðinu. Að loforð fram- leiðanda standist er svo eftirlitsaðila í hverju landi að fylgja eftir. Vandamálið er hins vegar tvíþætt. í fyrsta lagi er eftir- litið eins og dropi í hafinu og ekkert land hefur á að skipa slíku eftirliti sem í raun er þörf á. í öðru lagi er mikið svindlað með merkið og hefur verið fullyrt að 20- 50% allra CE-merktra vara sem eru til sölu séu rangt merktar. Sérfræðingar hjá sænsku neytendastofnun- inni fullyrða að 30% þeirra vara sem eru CE- merktar uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru. í mörgum tilvikum er um að ræða vörur sem framleiddar eru í öðrum löndum, t.d. í A-Asíu. Þar taka framleiðendur mismikið mark á evrópskum reglum og hika ekki við að láta merkið á vöruna til að koma henni á Evrópu- markað þó svo að viðkomandi vara uppfylli ekki kröfurnar. Og þetta snýst ekki bara um vörur sem seldar eru á lágu verði á stöðum eins og t.d. Kolaportinu. Vörur sem seldar eru í viður- kenndum verslunum og stórmörkuðum eru ekki síður undir þessa sömu sök settar. Viðskiptalífið í Evrópu hefur verið áhuga- laust gagnvart þessu vandamáli og það þrátt fyrir að hér er ekki síður um þeirra hagsmuni að ræða. Nýverið þurfti t.d. IKEA að afturkalla 140.000 leikföng úr verslunum sfnum víða um heim. Leikföngin sem voru með CE-merki reyndust hættuleg. Slík innköllun kostar miklar upphæðir, auk þess sem þetta getur vart talist góð auglýsing. Það er deginum Ijósara að á meðan eftirlitið er með þeim hætti sem það er í dag gengur þetta kerfi ekki upp. Og þó svo að benda megi á að þegartil lengri tíma sé litið geri CE-merkið framleiðendur og innflytjendur meðvitaðri um öryggiskröfur, þá er merkið til skemmri tíma litið misheppnað og fyllir neytendur falskri öryggis- kennd. Jóhannes Gunnarsson Tímarit Neytendasamtakanna, Skúlagötu 26, 101 Reykjavík, s. 562 5000, grænt númer 800 6250. fax 562 4666 Netfang: neytenda@itn.is og heimasíða á Internetinu: http://www.itn.is/neytenda Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson. Myndir: Einar Ólason. Prófarkalesari: Hildur Finnsdóttir. Umbrot: Blaðasmiðjan. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 20.000. Blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.000 krónur og gerist viðkomandi þá um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að nota efni úr Neytendablaðinu í öðrum fjölmiðlum, sé heimildar getið. Upplýsingar úr Neytenda- blaðinu er óheimilt að nota í auglýsingum og við sölu, nema skriflegt leyfi ritstjóra liggi fyrir. Néyt- endablaðið er prentað á umhverfisvænan pappír. 2 NEYTENDABLAÐIÐ -September 1997

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.