Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.1997, Síða 7

Neytendablaðið - 01.09.1997, Síða 7
Lækkun húsnæðiskostnaðar eigandinn þar af leiðandi dregið þá frá söluverði við síðari sölu. Það er því þýð- ingarmikið að geyma allar greiðslukvitt- anir og gildir það sama gildir um eigin vinnu. Við ákvörðun stofnverðs íbúðar við sölu ber þó að draga frá eigin vinnu sem undanþegin hefur verið skatti sam- kvæmt ofansögðu. Fasteignagjöld Þegar íbúðarhúsnæði er fokhelt metur Fasteignamat ríkisins fasteignamat þess og er það notað sem álagningarstofn fast- eignagjalds sem er samheiti ýmissa skatta og gjalda sem renna í sveitarsjóð. Fasteignaskattur er lagður á allar metnar fasteignir nema viðkomandi eign sé undanþegin fasteignaskatti samkvæmt Jögum. Fasteignaskattur af íbúðarhús- næði, þar á meðal sumarbústöðum, er allt að 1,2% af álagningarstofni sem miðast við afskrifað endurstofnsverð viðkom- andi eignar margfaldað með markaðs- stuðli fasteigna í Reykjavík samkvæmt matsreglum Fasteignamats nkisins. í reynd er hver eign þó aðeins metin einu sinni og síðan er fasteignamatsverð hennar framreiknað árlega miðað við breytingar á vísitölu byggingarverðs. Sveitarstjórnum er heimilt að hækka fast- eignaskatt um allt að 25 hundraðshluta og getur skatlurinn því farið í 1,5% af álagningarstofni ef þessari heimild er beitt. í Reykjavík er fasteignaskatturinn þannig 0,421 % af fasteignamatinu en í Kópavogi og Hafnarfirði er hann 0,375%. Vatnsgjald er lagt á eigendur fast- eigna og er því ætlað að standa undir kostnaði við stofnun og rekstur vatns- veitu. Vatnsgjald má nema allt að 0,3% og reiknast af sama álagningarstofni og fasteignaskattur. Sveitarstjórn er heimilt að ákveða hámark og lágmark vatns- gjalds miðað við rúmmál húseigna. Enn- fremur er sveitarstjórn heimilt að miða vatnsgjald við fast gjald aukaálags vegna stærðar fasteignar og/eða notkunar sam- kvæmt mæli. Vatnsgjald má þó aldrei vera hærra en 0,3% af álagningarstofni. 1. janúar sl. tóku gildi nýjar reglur um álagningu vatnsgjalds í Reykjavík. Áður var gjaldið 0,13% af fasteignamatsvirði viðkomandi íbúðar og lóðar. Jafnframt var í gildi ákveðið hámark og lágmark sem miðaðist við rúmmál húsnæðis. Frá áramótum greiða allir íbúðareigendur fast gjald, að fjárhæð 2.000 kr., og breytilegt gjald sem er 78 kr. á fermetra íbúðarhúsnæðis. Holræsagjald er lagt á alla fasteigna- eigendur og skal því varið til að standa straum af holræsakostnaði í viðkomandi sveitarfélagi. Holræsagjald er ákveðið í reglugerð fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig. Má miða gjaldið við virðingarverð fasteigna eða við stærð lóða eða við hvort tveggja. í Reykjavík er það 0,15% af heildarfasteignamati viðkomandi fast- eignar, þ.e. af mati mannvirkja ásamt mati lóðar. Athuga ber að tekjulágir elli- og ör- orkulífeyrisþegar geta sótt um lækkun fasteignaskatts og holræsagjalds til við- komandi lramtalsnefndar. Sorphirðugjald er þjónustugjald og er það mishátt eftir því hvort um er að 77/ að geta búið í eigin húsnœði þarfað greiða jjölmarga skatta og gjöld. ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði eða sumarbústaði. í einstaka sveitarfélögum hefur sorphirðugjaldinu verið skipt í sorphreinsunargjald og sorpeyðingar- gjald. Sorphreinsunargjaldið, sem einnig er kallað tunnuleiga, á að standa undir kostnaði við kaup á ruslapokum og/eða sorptunnum og kostnaði við að fjarlæga sorpið, en sorpeyðingargjaldið á að standa straum af kostnaði við urðun og/eða förgun. Lóðarleiga (grunnleiga) er greidd fyr- ir afnot af lóð undir fasteign. í kaupstöð- um og kauptúnum eru flestar lóðir í eigu viðkomandi sveitarfélags og greiða fast- eignareigendur því lóðarleiguna til þess. Er leigan ýmist ákveðinn hundraðshluti af fasteignamatsvirði hlutaðeigandi lóð- ar, ákveðin krónutala á fermetra eða ákveðið hlutfall af tilteknum dagvinnu- taxta verkamanna án orlofs í viðkomandi sveitarfélagi. Tryggingagjöld Brunabótaiðgjald. Miklar breytingar urðu á fyrirkomulagi brunatrygginga íbúðarhúsnæðis við inngönguna í EES. Áður fyrr önnuðust Brunatryggingar Reykjavíkur brunatryggingar íbúðarhús- næðis í Reykjavík en Brunabótafélag ís- lands úti á landi, en nú getur fbúðareig- andi valið hjá hvaða vátryggjanda hann tryggir. Miðast iðgjaldið við ákveðið hlutfall af brunabótamatsverði viðkom- andi eignar. í Reykjavík, þar sem Sjóvá- Almennar annast tryggingarnar, er ið- gjaldið 0,14%c. Viðlagatryggingargjald er 0,275%c af brunabótamati íbúðarhúsnæðis. Gjald- ið rennur til Viðlagatryggingar íslands sem er sjálfstæð stofnun og hefur það hlutverk að vátryggja gegn beinu tjóni af völdum náttúruhamfara, svo sem eld- gosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjó- og vatnsflóða. Brunavarnagjald er 0,045%c af brunabótamati fasteigna og er því varið til að fjármagna rekstur Brunamálastofn- unar Islands. NEYTENDABLAÐIÐ -September 1997 7

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.