Neytendablaðið - 01.08.1998, Síða 2
Leiðari
Rétturinn til að velja
Ein af grundvallarkröfum
neytenda er rétturinn til að
velja. Þessi krafa skiptir ein-
staklinga verulega miklu og
getur því aðeins verið raun-
veruleg ef neytendur fá í þær
vörur sem þeir óska og -
sem ekki er síður mikilvægt
- geta fengið allar þær upp-
lýsingar sem þeir þurfa um
vöruna, upplýsingar sem val
þeirra grundvallast á. Þetta á
meðal annars við um efni
sem notuð eru í framleiðsl-
una og framleiðsluaðferð-
ir.Nú er staðan sú að verið er
að taka þennan rétt af neyt-
endum. Þetta er vegna nýrra
framleiðsluaðferða og nýrra
tegunda matvæla, ekki síst
erfðabreyttra matvæla, en
hormónanotkun og geislun
matvæla fylgja í kjölfarið.
Framleiðsla erfðabreyttra
matvæla eykst stöðugt, sér-
staklega í Bandaríkjunum.
Þannig voru 2% sojaupp-
skerunnar þar erfðabreytt
fyrir tveimur árum, en áætlað
er að í ár verði það hlutfall
komið í 40%. Og bandarískir
framleiðendur láta sér ekki
duga að auka framleiðsluna,
heldur er soja sem framleitt
er á hefðbundinn hátt bland-
að saman við erfðabreytt
soja. Soja er notað sem hrá-
efni í fjölmargar tegundir til-
búinna matvæla sem við lát-
um ofan í okkur á degi hverj-
um. Og stöðugt eru að koma
nýjar vörur sem framleiddar
eru með erfðabreytingu. Þar
má nefna tómata og fleiri
tegundir sem fá lengri líftíma
með erfðabreytingu og þola
þar með lengri dreifingar-
tíma, og ýmsar nytjajurtir
sem þola illgresiseyði,
þannig að úða má meira af
honum yfir illgresið. í þessu
sambandi er afar athyglisvert
að þeir sem láta mestan
hluta fjármagns í rannsóknir
á þessum erfðabreytingum
eru einmitt fyrirtækin sem
framleiða eitrið sem notað er
í illgresiseyðinn.
Neytendur hafa krafist
þess að fram komi á umbúð-
um hvort erfðabreytt efni hafi
verið notuð að hluta eða öllu
leyti við
framleiðsl-
una. Hér
er um að
ræða um-
deildar
vörur,
meðal
annars
gagnvart heilbrigði og um-
hverfi. Og þótt neytendasam-
tök hafi ekki lagst með öllu
gegn þessari nýju fram-
leiðslu hafa þau varað mjög
við því hvað sumir framleið-
endur flýta sér mikið í þess-
um efnum. Það er ekki neyt-
andans að sanna að ný vara
geti verið skaðleg fyrir heil-
brigði hans, heldur er það
framleiðandans að sanna á
óyggjandi hátt að svo sé ekki
áður en slík matvæli eru
markaðssett. Það er þó lág-
markskrafa að allar upplýs-
ingar liggi fyrir um vöruna,
annars hefur neytandinn ekki
raunverulegt val.
Alþjóðasamtök neytenda
og Evrópusamtök neytenda
hafa nú að undanförnu háð
harðan slag við stóru mat-
vælarisanna um slíkar merk-
ingar. Framleiðendur óttast
að neytendur sniðgangi slík-
ar vörur að óbreyttu og því
berjast þeir gegn merking-
um, enda hefur mikil um-
ræða átt sér stað víða. Af-
staða sem þessi er að sjálf-
sögðu gróf móðgun við neyt-
endur, því við eigum að eiga
síðasta orðið og verðum oft-
ar en ekki að grundvalla val-
ið á þeim upplýsingum sem
fram koma.
Sífellt bætist við þá flóru
sem framleidd er með erfða-
breyttum lífverum og það er
engin leið að fullyrða hvort
vörur með erfðabreyttum
hráefnum eru til sölu hér á
landi. Umræða hefur hins
vegar verið af skornum
skammti. Þessa umræðu
þarf að auka. Neytendasam-
tökin skora á íslensk stjórn-
völd að styðja kröfur neyt-
enda um að framleiðendum
sé gert skylt að upplýsa á
vörunum ef notuð hefur verið
erfðabreyting í fram-
leiðsluferlinu. Jafnframt að
þau taki undir kröfur um að
sýna verði fram á að erfða-
breyting hafi enga hættu í för
með sér, hvorki fyrir heilsu
neytenda né umhverfið. Und-
ir öllum kringumstæðum er
það óásættanlegt að réttur
neytandans til að velja verði í
raun frá honum tekinn með
skorti á upplýsingum. Gild-
andi reglur um þetta eru með
öllu ófullnægjandi og þarf að
herða mikið.
Neytendasamtökin ætlast
til þess af íslenskum stjórn-
völdum að þau styðji neyt-
endur og leggi sitt af mörkum
við að tryggja að engin á-
hætta sé tekin í þessum efn-
um gagnvart heilbrigði neyt-
enda og umhverfinu. Jafn-
framt að neytendur hafi
áfram í raun rétt til að velja,
en þá verða upplýsingar að
vera fullnægjandi.
Jóhannes Gunnarsson
Efnisyfirlit
Úrstarfi Neytenda-
samtakanna
bls. 3
Verð á geisiadiskum
hæst á Islandi
bls. 4
Öryggi fjölskyldubíla
bls. 5
Frá kvörtunar-
þjónustunni
bls.7
2000-vandinn meira
mál en margurheld-
ur
bls. 8
Gæða- og markaðs-
könnun á
bleksprautuprent-
urum
bls. 11
Örugg í bíl
frá fæðingu
bls. 16
Gæða- og
markaðskönnun á
sjónvörpum
bls. 18
Hver er réttur okkar
ef heilsan bilar?
bls. 23
Spurningar frá
lesendum
baksíða
Tímarit Neytendasamtakanna, Skúlagötu 26,101 Reykjavík, s. 562 5000. Netfang: neytenda@itn.is
og heimasíða á Internetinu: http://www.itn.is/neytenda Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jóhannes
Gunnarsson. Myndir: EinarÓlason. Prófarkalesari: Hildur Finnsdóttir. Umbrot: Blaðasmiðjan.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 17.500. Blaðið er sent öllum félags-
mönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.400 krónur og gerist viðkomandi þá um leið fé-
lagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrum fjölmiðlum sé
heimildar getið, óheimilt er þó að birta heilar greinar eða töflur án heimildar Neytendasamtakanna.
Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimiit að nota í auglýsingum og við sölu, nema skriflegt leyfi
Neytendasamtakanna liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á umhverfisvænan pappír.
2
NEYTENDABLAÐIÐ - ágúst 1998