Neytendablaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 26
Eyðir frystir minna
rafmagni fullur
en hálftómur?
Það hefur verið fullyrt í mín eyru
að það borgi sig að fylla frystikist-
una eða -skápinn með dagblöðum
eða vatnsílátum eftir því sem mat-
vörum fækkar. Þá sé minna loft í
frystinum og orkutap því minna í
hvert sinn sem hann er opnaður. Er
þetta rétt?
Svar Neytendablaðsins: Það
borgar sig ekki að fylla frystinn
með öðru en matvöru. Þegar
frystirinn hefur fryst vörur sem
settar hafa verið í hann notar hann
jafnmikið rafmagn hvort sem hann
er tómur, hálftómur eða fullur.
Þess vegna er ekki sparnaður að
því að fylla frysti með vatnsílát-
um, þvert á móti, því það fer auka-
orka í að frysta vatnið.
Er hægt að ná
tússpennabletti af
málaðri hurð?
Ég á tvö lítil börn sem aftur og aft-
ur hafa náð að krota á ýmsum
stöðum í húsinu með tússpennum.
Sérstaklega er krot á nýmálaðri
hurð amalegt, þetta verður áber-
andi blettur sem ég næ ekki af. Er
til eitthvert efni sem getur bjargað
málinu?
Svar Neytendablaðsins: Því mið-
ur er mjög líklegt að hurðin beri
varanleg merki um listhneigð
barnanna þinna. Tússliti er alveg
sérstaklega erfitt að fjarlægja af
máluðum tréhlutum, meðal annars
vegna þess að tússliturinn getur
náð efnasambandi við málningu.
Trúlega ertu nú þegar búin að
reyna með mismunandi hreinsiefn-
um, en ef ekki gætirðu reynt að
deyfa blettinn með hreinsiefni sem
inniheldur klór. Áhættan er sú að
þótt krotið náist af getur bletturinn
orðið áberandi mattur.
Tvær spurningar um álpotta
Kartöflupotturinn minn er úr áli og
hann er allur orðinn svartur að innan.
Er eitthvað hægt að gera við því? Ég
hef líka heyrt að þessir pottar smiti frá
sér áli í matinn og að það geti verið
heilsuspillandi eða jafnvel hættulegt?
Svar Neytendablaðsins: Potturinn
getur orðið sem nýr að innan ef þú
sýður í honum rabbarbara eða súr epli,
en það dugar skammt ef þú heldur
áfram að nota hann við suðu á kartöfl-
um. Potturinn verður svartur að innan
vegna þess að við framleiðsluna hefur
yfirborð hans ekki fengið sérstaka
meðhöndlun. Flestir álpottar sem nú
eru á markaði hafa fengið slíka með-
höndlun sem kemur í veg fyrir að þeir
verði svartir innan.
Álpottar eins og þinn gefa frá sér
örlítið af áli í hvert sinn sem þeir eru
notaðir. Sérfræðingar telja það alger-
lega hættulaust, jafnvel þótt potturinn
sé notaður daglega.
Útrunnar
Að undanförnu hef ég lent nokkrum
sinnum í því að kaupa útrunna mat-
vöru. Mig minnir að ég hafi lesið ein-
hvers staðar að neytandinn eigi í slík-
um tilvikum kröfu á að fá vöruna
ókeypis. Hvað er rétt í þessu?
Svar Neytendablaðsins: Það á ekki að
sjást að útrunnar matvörur séu seldar í
verslunum. Það er óheimilt að selja
slíkar vörur og auðvitað fullkomin
ókurteisi við viðskiptavinina. Sá sem
er samt svo óheppinn að lenda í þessu
á rétt á að fá vörunni skipt í aðra eins,
sem er ekki útrunnin, eða að fá hana
matvörur
endurgreidda. Ef verslun er ítrekað
staðin að því að selja útrunna vöru er
rétt að láta heilbrigðiseftirlit í viðkom-
andi sveitarfélagi vita og á það að
grípa til viðeigandi ráðstafana. Það er
ákvörðun forráðamanna viðkomandi
verslunar hvort viðskiptavini sem
kaupir útrunna vöru séu boðnar bætur
og þá hverjar. Neytandinn á því ekki
kröfu á að fá slíka vöru ókeypis. Það er
hinsvegar engin ástæða fyrir neytand-
ann til að treysta vörunni betur en
framleiðandinn, og rétt að taka mark á
dagsetningum hans