Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 8

Neytendablaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 8
2000-vandinn Meira Ekki er seinna vænna fyrir neytendur aö at- huga sinn gang vegna 2000-vandans. Hann er alvarlegur og snertir ekki bara tölvur heldur alls konar algengan búnað. Valt er að treysta á að .einhverjir aðrir leysi vandann. 2000-nefndin íslenska beinir starfi sínu aðallega að stofnunum og fyrirtækjum og heimil- in þurfa sjálf að huga að sínum ráðstöfunum. Hver er vandinn? Tölvan klikkar, ekki er hægt að forstilla myndbandstækið á upptöku, öryggiskerfi bregð- ast, greiðslukort nýtast ekki, bankar geta ekki greitt út og fyrirtæki fara á hausinn. Skýr- ingin: Það eru fyrstu dagarnir á árinu 2000. Ef allt fer á versta veg. Stór hluti af öllum tölvum og öðrum búnaði með mál en tölvukubbum með örgjörvum (microprocessor) notar aðeins tvo tölustafi til að reikna ár- töl, á bilinu 00-99. Árið 1950 vista þær sem 50. Sum tæki ráða jafnvel aðeins við dag- setningar á árunum 1980-99, því einmenningstölvur komu fyrst fram í byrjun níunda ára- tugarins. Slíkur búnaður mun sýna rangar dagsetningar 1. janúar 2000 og síðar. Þetta kallast 2000-vandinn (e. millennium bug). I verstu til- vikum mun búnaðurinn ekki virka en í skásta falli aðeins reikna skakkt. Vandræðin geta bitnað illa á neytendum og kostað þá verulegan tíma og fé. Og fyrirbærið er raunar þegar farið að valda truflun- um. Það getur tekið sérfræð- ing hálfan dag að ganga úr skugga um hvort PC-tölva verður starfhæf árið 2000. Hér er um risavaxið verk- efni að ræða á heimsvísu. Stjórnvöld hvarvetna líta á þetta sem mikið og aðkallandi vandamál og flest stærri fyrir- tæki eru komin áleiðis í lausn- margur um, en smærri fyrirtæki, fjöl- skyldufyrirtæki og heimili virðast mörg grandalaus. Gallar hjá smærri aðilum í janúar 2000 gætu haft dóm- ínó-áhrif og valdið ófyrirséð- um stíflum eða hruni annars staðar. Áætlað er að 2000-aðlög- unin muni kosta Islendinga um tvo milljarða króna. Til dæmis er kostnaður Lands- banka Islands talinn verða 50-100 milljónir. í banda- ríska bankakerfinu er áætlað að aukakostnaður meðalfyrir- tækis gæti jafngilt 3% af tekj- um ársins 1997 og þar telja menn að kostnaður í heild verði 0,1% af landsfram- leiðslu. Virtir sérfræðingar fullyrða að kostnaður muni víðast hafa neikvæð áhrif á þjóðarhag og sumir spá al- mennri efnahagsniðursveiflu í heiminum vegna 2000-vand- ans. Það eykur á vandann að tölvuþrjótar heillast væntan- lega af þeim möguleikum sem gefast til að valda usla kring- um aldamótin og eru þeir vísir til þess að reyna að setja í um- ferð urmul dagsetninga- vírusa. Þar við bætast áhyggj- ur innan Evrópusambandsins af sérstakri ringulreið vegna þess að evran, nýi ESB-gjald- miðillinn, verður tekin í notk- un á þessum tíma. Ekki bara tölvur Óvíst er að fólk átti sig á því hvað örgjörvar eru víða í bún- aði kringum okkur. I nútíma- bíl geta til dæmis verið tæp- lega 40 örgjörvar. Nú munu vera að minnsta kosti sex ör- gjörvar á hvert mannsbarn á jörðinni og hlutfallslega langtum fleiri í iðnríkjunum þar sem rafeindatækin eru flest. Öll tæki með örgjörva geta ruglast í ríminu um alda- mótin, faxtæki, hjarta- gangráðar, myndbandstæki, umferðarljósastýringar og leikföng. Vandinn er þegar farinn að raska daglegu lífi Vefsetur tengd 2000-vandanum ísland Aðalupplýsingasíðan er hjá Rfkiskaupum á vegum Stjómar- ráðs íslands: http://2000.stjr.is/ Aðrar góðar síður: • Viðskiptablaðið: ttp://www.visir.is/ifx/vb_serefni?efni=T • Skýrr hf.: http://www.skyrr.is/2000/ • Hugmót hf.: http://www.hugmot.is/2000/ Erlendis • Aðalmiðstöð upplýsinga í heiminum („The Year 2000 In- formation Center“): http://www.year2000.com/ • Evrópusambandið: http://www.ispo.cec.be/y2keuro/ Aðrar góðar síður: • Bretland: http://www.bug2000.co.uk/ • Bandaríkjastjórn: http://www.itpolicy.gsa.gov/mks/yr2000/y2khome.htm/ • Microsoft: http://www.microsoft.com/ithome/ topics/year2k/ • Danmörk: http://www.2000parat.dk/ • Svíþjóð: http://www.2000-delegationen.gov.se/ - og: http://www.sito.se/sekelskiftet/ • Þýskaland: http://www.iid.de/jahr2000/ heldur fólks. Langtímastöðumælar við Heathrow-flugvöll í London neituðu nýlega greiðslukortum sem eru í gildi fram á árið 2000 og álitu þau hafa runnið út árið 1900. Sé búnaður ekki 2000-til- búinn geta truflanir komið fram víða: • Samfélagsþjónusta: Lög- regla, umferðarljós, örygg- iskerfi, sími, gervihnettir og samgöngustjórn, t.d. flug- stjóm (talstöðvar, ratsjár, flugáætlanir og leiðsögn), bankar, fjármálastofnanir og tryggingafélög, herlið, björgunarsveitir, útvarps- og sjónvarpsstöðvar, heil- brigðisstofnanir (lækninga- tæki og stjórnun) og veitu- kerfi. • Persónuleg þjónusta: Al- mannatryggingakerfi (líf- eyrir, örorkubætur, barna- bætur), tannlæknar, háskól- ar, ökuskírteini, launa- greiðslur, skattar. • Ymis búnaður: Myndavélar, lyklaborð, farsímar, sjálf- virk tæki, bflahlutir. Heimilistölvan Vandinn við einmennings- tölvur á heimilum og í fyrir- tækjum er einkum bundinn við PC-tölvur (DOS- og Windows-stýrikerfi), en Macintosh-tölvur og aðrar sem nota Apple-stýrikerfí geta unnið með ártöl 21. ald- arinnar. I stóru fyrirtæki í London uppgötvaðist nýlega að 95% af tölvunum sem keyptar voru 1996 reyndust ekki 2000-tilbúin. Tveir þriðju heimila á landinu eiga einmennings- tölvu. Mest er hætta á vanda- málum í gömlum PC-tölvum og ekki borgar sig að endur- nýja þær elstu vegna þessa eins. Nýrri útgáfur (t.d. með 486-örgjörva og yngri) kostar oft lítið að undirbúa fyrir árið 2000. Áfram verður unnt að nota óbréyttar PC-tölvumar gömlu fyrir ritvinnslu, leiki og annað þar sem dagsetning 8 NEYTENDABLAÐIÐ - ágúst 1998

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.