Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 9

Neytendablaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 9
2000-vandinn i jjjj jjjj jjjj: jjj u Að hugsa ekki í árum heldur öldum er nýtt verkefni fyrir tölvur og margs konar búnað. skiptir litlu eða engu máli. Dæmið snýst við ef nota á tölvuna til samskipta út á við, til dæmis á netinu og verald- arvefnum. 2000-vandinn getur líka falist í hugbúnaði (forritum og stýringum). Nú eru í notk- un mörg forrit sem hætta að virka 1. janúar árið 2000. Vegna forrita sem nota dag- setningar, t.d. bókhaldsforrita, gagnagrunna eða forrita til ör- yggisafritunar, er rétt að at- huga hvort útgáfurnar ráða við árið 2000 (sjá t.d. upplýs- ingar frá fyrirtækjum á vef- slóðinni http://www. rikiskaup.is/y2k/ info.htm). Kannski þarf að endurnýja forritin eða uppfæra. Hvað ertil ráða? Það sem fólk getur gert núna til að verjast óþægindum eða tapi er að prófa heimilistækin og kanna hvort þaú átta sig á árinu 2000. Athugið hvort PC-tölvan, myndbandstækið og annar búnaður standast prófin sem hér eru birt. Geti þau ekki sýnt réttar dagsetn- ingar þarf að ákveða hvort hægt er að búa við ófullkom- inn búnað. Skipti tímasetning- ar engu máli þarf kannski ekkert að aðhafast. Þurfi að búa tækin undir árið 2000 er best að bregðast strax við. Hætt er við að ör- tröðin aukist hjá þjónustuaðil- um eftir því sem líður á árið 1999 og hugsanlegt að enginn geti sinnt ykkar vanda tíman- lega nema kannski fyrir hærra gjald en ella. Sé aðgerða þörf skuluð þið spyrjast fyrir hjá söluaðila eða sérhæfðu þjón- ustufyrirtæki um hvaða áhrif vandinn mun hafa á vinnslu, hvort rétt sé að breyta og hvað það kostar. Spyrjið hvort, nóg sé að fá uppfærslu eða skipti á BlOS-kubbum eða hvort setja þarf inn sérstök forrit. Kaup á nýjum búnaði Neytendum sem kaupa raf- eindatæki fram að aldamótum er mjög brýnt að kynna sér vottun og ábyrgð seljenda um að þau vinni rétt á næstu öld eða kaupa aðeins vörur sem eru merktar „2000-tilbúnar“. I sumum nágrannalöndum er farið að votta þau með sér- stökum merkingum. Athugið hvort fyrir liggja skriflegar yfirlýsingar frá hug- og vélbúnaðarframleið- endum um að vörur þeirra vinni rétt með ártalið 2000. Mikilvægt er að halda vel saman öllum pappírum og gögnum til að tryggja sér að slík ábyrgð framleiðenda eða dreifingaraðila haldi ef vanda- Hvaða búnaður er í hættu? Stórhætta Talsverð hætta Lítil hætta Engin hætta á vandamálum á vandamálum á vandamálum á vandamálum Búnaður Búnaður Búnaður Búnaður • Gamlar PC-einmennings- • Nýrri gerðir af PC-ein- • Macintosh-tölvur (og aðrar • Tæki án örgjörva. tölvur (með örgjörva 8086, menningstölvum (með ör- tölvur með Apple-stýri- 286, 386 og e.t.v. 486). gjörva 486 eða Pentium). kerfi). Forritin geta þó ver- • Gamall hugbúnaður. • Gömul myndbandstæki og ið gölluð. • Gamall rafeindabúnaður fleiri rafeindatæki. • Nýjustu PC-tölvurnar með dagsetningum (t.d. • Annar búnaður með dag- (keyptar á árinu 1998!). armbandsúr). setningum, t.d. hitastilli-, fjarstýri- og öryggiskerfi • Rafeindabúnaður þar sem notandinn sér ekki dag- Ráð • íhugið hvort það skiptir o.s.frv. setningar og tíma. ykkur einhverju máli að Ráð Ráð tölvan sýni dagsetningar • Gangið strax úr skugga um • Athugið hvort eitthvað er frá 1980-99 í staðinn fyrir hvort eitthvað er að, ekki að, sérstaklega er mikil- á 21. öld. Kannski notið árið 1999. vægt að tækið sýni réttan þið aldrei tímasetningar, t.d. í ritvinnslu eða leikj- um. • Spyrjið söluaðilann hvort unnt sé að uppfæra búnað- inn. Athugið hvort hann getur gert það strax, ekki bíða fram á haust 1999. • Ihugið hvort það skiptir ykkur máli að dagsetningar séu réttar. • Spyrjið söluaðilann hvort unnt sé að uppfæra búnað- inn. Athugið hvort hann getur gert það strax, ekki bíða fram á haust 1999. dag og tíma. NEYTENDABLAÐIÐ - ágúst 1998 9

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.