Neytendablaðið - 01.08.1998, Qupperneq 11
Gæða -og markaðskönnun
Bleksprautuprentarar
Bleksprautuprentarar við
tölvur eru oft heppileg-
astu lausnirnar á heimilum og
í litlum fyrirtækjum. Þeir hafa
lækkað í verði og prentgæði
tekið stórstígum framförum,
sérstaklega í lit. En þeir geta
verið dýrir í rekstri. Neyt-
endablaðið birtir hér niður-
stöður International Testing
(IT) á 12 algengum sprautu-
prenturum og íslenska verð-
könnun.
Það sem skiptir neytand-
ann mestu máli er prentkostn-
aður á síðu og gæði útprent-
unar. Geislaprentarar (laser-
prentarar) borga sig best til
magnprentunar á texta en
bleksprautuprentararnir (hér á
eftir nefndir sprautuprentarar)
henta þeim sem prenta lítið
magn eða vilja ná miklum
myndgæðum. Sumir framleið-
endur ráðleggja notkun
sprautuprentara ef noktun er
innan við 1000 blöð á mánuði
og miða endingu við það.
Almennt reyndust prentar-
arnir vel í könnun IT, sex
fengu heildareinkunnina
„góður“ og sex „viðunandi“
en aðeins tveimur var „ábóta-
vant“ og byggðist það á sein-
virkni og að þeir skiluðu ekki
nógu skýrri útprentun.
Lúmskt samhengi
Aukin sala á tölvumyndavél-
um og myndskönnum hefur
stuðlað að meiri gæðum og
lækkuðu verði sprautuprent-
ara. En ýtt er undir kaupin
með lágri álagningu á prentar-
ana, söluaðilar hagnast þá
meira á jaðarbúnaði og hrá-
efni sem neytendum hættir til
að bruðla með. Samkvæmt
könnun IT hafði verð á blek-
hylkjum víðast erlendis hækk-
að verulega í verði frá því á
árinu 1997, sérstaklega á lit-
hylkjum. Söluaðilar kannast
ekki við að sú sé raunin hér-
lendis. En meira framboð (og
væntanlega sala) er á dýrum
pappír en áður.
Sá sem sprautuprentar að
meðaltali 10 blöð af texta á
dag greiðir hæglega fyrir blek
og pappír prentaraverð á einu
ári. Sá sem oft prentar ljós-
myndir í litum borgar kannski
á sama tíma jafngildi margra
prentara. Það er slæmur kost-
ur fyrir neytandann að hafa
marga liti í sama hylki og
henda því þegar einn liturinn
klárast þótt nóg sé eftir af hin-
um, en þetta eykur veltu sölu-
aðilans. Sum lithylki er þó
hægt að endurhlaða.
Kostnaður
Til að gera raunhæfan saman-
burð þarf kaupandinn að full-
vissa sig um hvað fylgir í
verði verslana á sams konar
prenturum því mismunandi
mikill búnaður getur verið
innifalinn. Aukabúnaður og
rekstrarhlutir voru yfirleitl
ódýrari fyrir Hewlett-Packard
prentarana en aðra í sama
gæðaflokki.
Eigi að kaupa sem ódýrast-
an prentara koma tveir helst
til greina. Epson Stylus Color
300 hlaut heildareinkunnina
„góður“ því hann býður upp á
mikil prentgæði þótt hann sé
hægvirkur. Canon BJC-250
skilaði mun verr af sér
gráskala og litum á venjuleg-
an pappír en prentar vel á
gæðapappír og er hraðvirkari.
Hann fékk þó umsögnina
„góður“ með naumindum.
Samsetning og upphæð
reksturskostnaðarins fara eftir
hugdettum notandans hverju
sinni og því er örðugt að velja
beint hagkvæmustu prentar-
ana. Verðleggi notandinn
tíma sinn þykja honum þeir
hraðvirkustu líklega bestir.
Til að finna sparsömustu
prentarana skal skoða í töfl-
unni liðina „Blekkostnaður,
kr. á A4, svart/litm./ljósm.“
og „A4 bls. úr hylki: Svart/lit-
ur/ljósm.“.
Heildarkostnaður
(pappír+blek) við að sprautu-
prenta út eina A4 meðalsíðu
af svörtum texta (5% mettun)
er oft 8-10 kr. á venjulegan
pappír (sbr. 3-5 kr. á venju-
legan pappír í geislaprentara).
Verðið hækkar ört ef stillt er á
gæðaútprentun, notaður fínn
pappír eða mikið prentað af
myndurn. Textasíða getur
kostað 20-90 kr. á gæðapapp-
ír og litsíða 25-200 kr. Töl-
urnar eru mjög breytilegar,
t.d. ef hægt er að endurhlaða
blekhylki. Ymsar verslanir
selja mun ódýrari hylki en
umboðs- og dreifingaraðilar
prentaranna.
Til eru sérstök dýrari blek-
hylki fyrir ákveðna notkun,
t.d. ljósmyndaprent, og end-
ingarbetri hylki fyrir hraða og
mikla textaprentun með
Canon BJC-80 og BJC^I300.
Hraði
A að velja dýrari prentara
vegna möguleika á hraðri út-
prentun? Fæst heimili þurfa á
henni að halda. Upplýsingar
framleiðenda um prenthraða
geta verið misvísandi, prent-
ari er mislengi að prenta síðu
eftir þvf hvaða stýrikerfi og
hugbúnað tölvan hefur, en
mestu munar um gæðastill-
ingar notandans.
Allir prentarar eru lengur
að skila af sér hágæðaprenti,
sérstaklega í litprentun. Það
getur tekið 5-15 mínútur að
prenta út eina litmynd sem
fyllir A4 blöð. Helmingur
prentaranna var lengur en 9
mínútur að prenta litmynd
með ljósmyndagæðum á gljá-
pappír.
HP DeskJet 890-C var
fljótastur að prenta svartan
texta (5% mettun á síðu),
fimm A4 blöð. á innan við
mínútu á venjulegan pappír,
sem er sambærilegt við marga
geislaprentara. Hann skilaði
líka úrvalsmyndprenti hraðast
ásamt Canon BJC-250, og
Framhald bls. 14
11
NEYTENDABLAÐIÐ - ágúst 1998