Neytendablaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 6
I stuttu máli
Philips MC-70 - bestu smá-hljómflutningstœkin.
Góðar
I gæðakönnun sem birt var
fyrr á þessu ári í norska neyt-
endablaðinu F orbrukerrapp-
orten kom í ljós að bestu
græjumar í flokki smá-hljóm-
flulningstækja voru Philips
MC-70. Þetta tæki fæst hjá
Heimilistækjum og kostar
64.900 krónur. í Noregi kost-
ar tækið hins vegar aðeins sem
nemur rétt rúmum 46 þúsund
græjur
krónum íslenskum. Það tæki
sem kom næst í gæðum var
Grundig UMS 100 og munaði
ekki miklu á gæðum þessara
tækja. Þetta tæki fæst í
Euronics og kostar 39.900
krónur. I Noregi kostar þetta
sama tæki tæpar 36 þúsund
krónur íslenskar. Miðað við lít-
inn verðmun hér og í Noregi á
Grundig-tækinu er mikill
verðmunur á Philips-tækinu
illskiljanlegur. Þess má geta
að almennt koma lítil hljórn-
llutningstæki lakar út í þess-
ari könnun en í sambærilegri
könnun sem gerð var á árinu
1999.
Meirihluti neytenda á móti reykingum á matsölustöðum
Svindlað á reykingafólki
í danska neytendablaðinu
Tœnk-Test var nýlega sagt frá
rannsókn sem blaðið lét gera í
Kanada í samvinnu við danska
sjónvarpið. Kannað var hvort
upplýsingar á umbúðum á
sígarettupökkum um tjöru- og
nikótínmagn tveggja vinsælla
danskra sígarettutegunda
stæðust. Niðurstaðan var sú að
það var langt í frá.
I Ijós kom að í venjulegri
Prince-sígarettu getur verið
allt að 41 mg af tjöru í stað 12
mg cins og stendur á pökkun-
um. I Prince Light-sígarettu
getur tjörumagnið verið allt að
38 mg í stað þeirra 10 mg sem
talað er um á umbúðunum.
Innihald tjöru hefúr mikla
þýðingu þar sem ijöruefnin
hafa bein áhrif á krabbamein
sem og lungna- og hjartasjúk-
dóma. Því meira sem menn
anda að sér af tjöru, þeim mun
hættulegra er að reykja, alveg
eins og er um öll önnur eitur-
efni.
Það sama var uppi á ten-
ingnum þegar kom að nikótín-
innihaldi. I venjulegum
Prince-sígarettum getur nikó-
tínmagn verið allt að 2,7 mg í
sígarettu en á umbúðum
stendur hins vegar 1,1 mg.
Eins var um Prince Light, þar
geta verið allt að 2,6 mg í
hverri rettu þótt á umbúðum
standi 1 mg.
Þess skal getið að mælingar
Tœnk-Test fóru frarn í Kanada
samkvæmt nútímakröfum.
Framleiðandi Prince, Skandin-
avisk Tobakskompani, mælir
hins vegar samkvæmt 30 ára
gömlum reglum.
Meðal annarra orða: Hve-
nær fá íslenskir reykinga-
menn upplýsingar um tjöru-
og nikótíninnihald í sígarett-
unum sem þeir kaupa? Svar
óskast frá ATVR.
Steinway
besta píanóið
- en dýrt
í norska neytendablaðinu
Forbrukerrapporten voru ný-
lega birtar niðurstöður í gæða-
könnun um 22 píanótegundir.
Steinway K-132 reyndist
vera það píanó sem hafði
bestan hljómburð. Þetta píanó
kostar hins vegar 2.142.000
krónur hér á landi og þarf að
sérpanta það. Yamaha U35,
sem hefur litlu lakari hljóm-
gæði, kostar hins vegar hér
aðeins 588.525 krónur stað-
greitt. Öll rafmagnspíanóin í
könnuninni fengu slaka út-
komu að gæðum.
Neytendablaðið hvetur alla
þá sem hyggjast kaupa notað
píanó að láta sérfræðing skoða
það áður en kaup eru gerð svo
Ijóst sé hvort það er pening-
anna viröi. Einnig er sérstök
ástæða til að vara við kaupum
á píanóum sem framleidd
voru á tímabilinu 1914-18,
píanóum frá sovéttímanum í
Austur-Evrópu og gömlum
píanóum sem ekki hafa farið í
viðgerð eða verið gerð upp.
Samkvæmt viðhorfskönnun
sem Gallup gerði fyrir Tó-
baksvarnamefnd í mars eru
61% neytenda andvíg því að
tóbaksreykingar séu leyfðar á
matsölustöðum en aðeins 23%
eru hlynnt því. 17% höfðu
ekki skoðun á þessu. Nokkm
færri eru andvíg reykingum á
kaffihúsum, eða 52%, 30%
eru hlynnt en 17% höfðu ekki
skoðun. Tóbaksvarnamefnd
kannaði jafnframt hvort farið
væri að settum reglum um
reykingar á matsölustöðum,
það er hvort þar eru sérstök
reyklaus svæði, og náði könn-
unin til 40 matsölustaða. Að-
eins einn þessara staða fór að
settum reglum. Það er því
ekki að undra að 86% að-
spurðra í könnuninni telja að
réttur hinna reyklausu sé ekki
virtur á veitinga- og kaffihús-
um. Það er því greinilegt að
flestir þessara staða þurfa að
taka sér tak, enda eðlilegt að
réttur þeirra sem ekki reykja
sé virtur. Ef þeir gera það
ekki hlýtur krafan um algjört
reykingabann á þessum stöð-
um að aukast.
6
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 2002