Bændablaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 6
6 Bœndablaðið Föstudagur 24. mars 1995 Samþykktir fyrir Bændasamtðk íslands I. kafli. Almenn ákvæði 1. grein Samtökin heita Bændasamtök ís- lands. Heimili þeirra og vamarþing er í Reykjavík. 2. grein Bændasamtökin eru heildarsamtök íslenskra bænda. Aðild að bændasamtökunum eiga eftirgreind félög og félagasamtök: Búnaðarsamband Kjalamesþings Búnaðarsamband A-Skaftafellssýslu Búnaðarsamband Borgarfjarðar Búnaðarsamband Suðurlands Búnaðarsamband Snæfellinga Búnaðarsamband Dalamanna Búnaðarsamband Vestfjarða Búnaðarsamband Strandamanna Búnaðarsamband V-Húnavatnssýslu Búnaðarsamband A-Húnavatnssýslu Búnaðarsamband Skagfnðinga Búnaðarsamband Eyjafjarðar Búnaðarsamband S-Þingeyinga Búnaðarsamband N-Þingeyinga Búnaðarsamband Austurlands Félag eggjaframleiðenda Félag ferðaþjónustubænda Félag hrossabænda Félag kjúklingabænda Landssamband kartöflubænda Landssamband kúabænda Landssamtök sauðfjárbænda Samband garðyrkjubænda Samband íslenslaa loðdýrarækt- enda Svínaræktarfélag íslands Æðarræktarfélag íslands 3. grein Bóndi telst hver sá sem stundar bú- rekstur í atvinnuskyni. Undir bú- rekstur fellur hvers konar bú- fjárrækt, jarðrækt, skógrækt, garð- rækt, ylrækt sem stunduð er til tekjuöflunar, svo og eldi og veiðar vatnafiska, nýting hlunninda og þjónusta á lögbýlum er nýtir gæði jarðar eða aðra framleiðslu land- búnaðar í framangreindum til- gangi. 4. grein Búnaðarþing skal staðfesta aðild og samþykktir nýrra aðildarsam- taka með 2/3 atkvæðum þingfull- trúa, en stjóm staðfestir breytingar á samþykktum þeirra. í samþykkt- um búnaðarsambands skal kveðið á um að allir bændur og lögaðilar í landbúnaðarframleiðslu á starfs- svæði búnaðarsambands skuli eiga rétt á að vera félagar. í sam- þykktum búgreinasamtaka skal sömuleiðis kveðið á um að allir bændur og lögaðilar í hlutaðeig- andi búgrein skuli eiga rétt á að vera félagar. í samþykktum aðild- arsamtaka skal mælt svo fyrir að fullnægjandi félagaskrá fylgi ávallt ársreikningi. í samþykktum búnaðarsam- banda/búgreinasamtaka skal enn- fremur mælt svo fyrir að allir bændur hafi sömu réttindi við kjör til aðalfundar þeirra óháð formi á félagsaðild. Aðalfundir skulu haldnir einu sinni á ári og auk þess aukafundir eftir þörfum, þ.á m. ef meirihluti fulltrúa krefst þess. 5. grein Búnaðarþing getur með 2/3 atkvæðum þingfulltrúa vikið búnaðarsambandi eða búgreina- samtökum úr bændasamtökunum ef samþykktir þeirra eða starfsemi er ekki í samræmi við samþykktir þessar eða ef það þykir óhjá- kvæmilegt af öðrum ástæðum. 6. grein_________________________ Bændasamtökin skulu vera mál- svari bænda og vinna að fram- förum og hagsæld í landbúnaði. f samræmi við þetta meginhlutverk greinist starfsemi samtakanna í fjóra meginþætti: a) Þau beiti sér fyrir bættum kjör- um bænda á öllum sviðum. b) Þau annist leiðbeiningaþjónustu og sinni faglegri fræðslu í þágu landbúnaðarins. c) Þau annist útgáfustarfsemi og miðlun upplýsinga sem varða bændur og hagsmuni þeirra. d) Þau veiti umsögn um lagafrum- vörp, sem snerta landbúnaðinn og sinni öðrum verkefnum sem tengjast hagsmunum bænda og landbúnaði. A. Bændasamtökin gæta hagsmuna bændastéttarinnar og sameina bændur um þá, með því m.a. að: 1. Móta stefnu í málefnum bænda og landbúnaðarins í heild. 2. Vera málsvari bændastéttarinnar gagnvart nkisvaldinu og öðrum aðilum þjóðfélagsins sem stéttin hefur samskipti við. 3. Beita sér fyrir nýmælum í lög- gjöf og breytingum á eldri lögum er til framfara horfa og snerta bændastéttina og landbúnaðinn. 4. Fylgjast grannt með afkomu bænda og rekstrarskilyrðum land- búnaðarins og kappkosta með því að tryggja þeim lífskjör í samræmi við aðrar stéttir þjóðfélagsins. 5. Annast samningagerð af hálfu bænda, t.d. um framleiðslustjóm, verðlagningu búvara og kjör starfsfólks í landbúnaði 6. Koma fram fyrir hönd íslenskra bænda gagnvart hliðstæðum sam- tökum erlendis og annast sam- skipti við þau eftir því sem ástæða þykir og tilefni gefast til. B. Bændasamtökin annast leiðbeininga- þjónustu og faglega ffæðslu í þágu landbúnaðarins, með því m.a. að: 1. Vinna að framfömm í landbún- aði með því að ráða landsráðu- nauta er hafi á hendi forystu um leiðbeiningar á hlutaðeigandi svið- um í samræmi við ákvæði búfjár- ræktar- og jarðræktarlaga. Búnað- arsamböndin vinni á sama hátt að framfömm í landbúnaði með því að hafa í þjónustu sinni héraðs- ráðunauta á grundvelli sömu laga. 2. Hafa með höndum framkvæmd mála er Alþingi eða ríkisstjóm felur þeim. 3. Vinna að kynbótastarfsemi, annast eða hafa umsjón með af- kvæmaprófun kynbótagripa og er m.a. heimilt að eiga og reka bú- fj árræktarstöð var. 4. Hlutast til um að gerðar séu hag- nýtar rannsóknir og tilraunir á öllum sviðum landbúnaðarins. C. Bændasamtökin standi að rekstri Upplýsingaþjónustu í samvinnu/- samstarfi við aðrar stofnanir land- búnaðarins. 7. grein Bændasamtökin fara með fyrirsvar fyrir framleiðendur búvara skv. lögum um framleiðslu, verð- lagningu og sölu á búvörum nema þau hafi samþykkt, fyrir sitt leyti, að einstök búgreinasamtök fari með forræði hlutaðeigandi bú- greinar á tilteknum sviðum. I samningi um verkaskiptingu, sem stjóm bændasamtakanna og stjóm hlutaðeigandi búgreinasamtaka gera með sér, skal kveðið á um slíkt framsal á forræði enda hindri það ekki stjóm bændasamtakanna að fjalla um og leysa málefni sem em sameiginleg fleiri en einni bú- grein. Akvæði um framsal á for- ræði á atriðum sem varða fram- kvæmd búvörulaga í verkaskipta- samningi skal því aðeins taka gildi að það hafi hlotið samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða bænda í búgreininni í allsherjaratkvæða- greiðslu, sem efnt skal til á vegum bændasamtakanna og hlutaðeig- andi búgreinasamtaka og skulu þeir aðilar koma sér saman um framkvæmd hennar. Breytingar á ákvæði þessa efnis taka heldur ekki gildi fyrr en þær hafi hlotið sams konar samþykki bænda í búgreininni. Stjóm bændasamtakanna og stjómum einstakra búgreinasam- taka eða búnaðarsambanda er í samningi um verkaskiptingu heimilt að kveða á um önnur atriði en að framan greinir. Stjóminni er ennfremur heimilt að gera þjónustusamninga við hin ýmsu félög og félagasamtök sem á ein- hvem hátt tengjast landbúnaði. Skal jafnan leitast við að verkaskipting sé sem skýrust milli bændasamtakanna og einstakra aðildarsamtaka þannig að saman fari ábyrgð og forræði á þeim málaflokkum sem undir hvom aðila heyra. 8. grein Bændasamtökin skulu gæta þess að halda góðum tengslum við fé- lög og félagasamtök sem aðild eiga að samtökunum, m.a. með því að trúnaðarmenn bændasamtak- anna sitji fundi þeirra. Þá skulu bændasamtökin boða árlega til a.m.k. eins almenns bændafundar á hverju búnaðarsambandssvæði í samráði við hlutaðeigandi búnað- arsamband. Þar skulu rædd verð- lags- og markaðsmál og önnur málefni stéttarinnar eftir því sem tök em á og gerðar ályktanir eftir því sem efni standa til. Fundi þessa sitji a.m.k. einn aðalmaður úr stjóm bændasamtakanna og Bún- aðarþingsfulltrúar af hlutaðeigandi svæði. II. kafli. Búnaðarþing 9. grein Búnaðarþing fer með æðsta vald í öllum málefnum bændasamtak- anna. Það skal halda ár hvert, en heimilt er að halda aukaþing þess utan ef þurfa þykir. Skylt er að kalla saman aukaþing ef helmingur þingfulltrúa óskar þess. Búnaðar- þing skal boða á tryggilegan hátt með minnst tveggja mánaða fyrir- vara og aukaþing með minnst tveggja vikna fyrirvara. I upphafi Búnaðarþings gefur formaður bændasamtakanna skýrslu um störf stjómarinnar frá síðasta þingi og gerir grein fyrir framtíðarhorfum. Jafnframt skal leggja fyrir þingið starfsskýrslur einstakra starfsmanna eftir ákvörð- un stjómar hverju sinni. Onnur verkefni þingsins em m.a. að afgreiða reikninga samtak- anna fyrir liðið ár, gera fjárhags- áætlun, kjósa stjóm og endur- skoðendur samtakanna, sbr. 16. og 23. grein. Búnaðarþing skal setja sér sérstök þingsköp. 10. grein Fulltrúar á Búnaðarþingi skulu vera 39 og kjömir af aðildar- samtökum til þriggja ára sem hér segir: Búnaðars. Kjalamesþings 1 Búnaðars. Borgarfjarðar 2 Búnaðars. Snæfellinga 1 Búnaðars. Dalamanna 1 Búnaðars. Vestfjarða 3 Búnaðars. Strandamanna 1 Búnaðars. V.-Hún. 1 Búnaðars. A.-Hún. 1 Búnaðars. Skagfirðinga 2 Búnaðars. Eyjafjarðar 2 Búnaðars. Suður-Þing. 2 Búnaðars. N.-Þingeyinga 1 Búnaðars. Austurlands 3 Búnaðars. A.-Skaftafells. 1 Búnaðars. Suðurlands 6 Félagi eggjaframleiðenda 1 Félagi ferðaþjónustubænda 1 Félagi hrossabænda 1 Félagi kjúklingabænda 1 Landss. kartöflubænda 1 Landssambandi kúabænda 1 Landssamt. sauðfjárbænda 1 Sambandi garðyrkjubænda 1 Samb. ísl. loðdýraræktenda 1 Svínaræktarfélagi íslands 1 Æðarræktarfélagi íslands 1 Jafnframt skulu kjömir með sama hætti jafnmargir vara- fulltrúar. Sami maður getur ekki verið aðal- eða varafulltrúi fyrir nema ein aðildarsamtök á þinginu. A þinginu eiga að auki sæti stjóm bændasamtakanna og aðrir þeir starfsmenn samtakanna er hún ákveður. Kjömir fulltrúar hafa þó einir atkvæðisrétt. Auk þeirra, sem að framan em taldir, hafa endurskoðendur bændasamtakanna, formaður og framkvæmdastjóri Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins rétt til að sitja þingið og hafa málfrelsi og til- lögurétt í þeim málum er snerta starfssvið þeirra sérstaklega. 11. grein Kosningarétt og kjörgengi til Búnaðarþings hafa bændur, sbr. 3. grein, séu þeir félagar í búnaðar- sambandi/búgreinasambandi eða aðildarfélögum þeirra og hafi greitt tilskilin sjóða- og/eða félagsgjöld. Bændum sem hætt hafa búskap vegna aldurs skal heimil áfram- haldandi þátttaka í viðkomandi fé- lagi með fullum félagsréttindum, hafi þeir áfram búsetu á hlut- aðeigandi félagssvæði. Enginn getur átt kosningarétt í fleiri en einu búnaðarfélagi. 12. grein Það ár, sem kosningar til Bún- aðarþings fara fram, skal í hveiju búnaðarfélagi, eigi síðar en 1. október, kjósa fulltrúa á full- trúafund búnaðarsambands, sbr. 13. grein. Tala fulltrúa fyrir hvert búnaðarfélag fer eftir fjölda fé- lagsmanna þess, þannig að í bún- aðarsamböndum, sem kjósa þrjá þingfulltrúa eða færri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa tvo fulltrúa, félög með 31-60 félaga kjósa þrjá, félög með 61-90 félaga kjósa fjóra og fjölmennari félög kjósa fimm. I búnaðarsamböndum, sem kjósa fjóra þingfulltrúa eða fleiri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa einn fulltrúa, félög með 31-60 félaga kjósa tvo, félög með 61-90 félaga kjósa þrjá og fjölmennari félög kjósa fjóra. Bú- greinafélög, sem aðild eiga að búnaðarsambandi, skulu enn- fremur og eigi síðar en 1. október kjósa hvert um sig einn fulltrúa á fulltrúafund búnaðarsambands. Fulltrúar skulu kosnir á al- mennum félagsfundi í búnaðarfé- lagi. Bændur og aðrir þeir, sem kosningarétt hafa í félaginu, skulu boðaðir á fundinn með minnst þriggja daga fyrirvara á tryggi- legan hátt, hvort heldur er með bréfi, símskeyti eða beinu símtali við þá sem kosningarétt hafa. 13. grein Kosningar til Búnaðarþings skulu fara þannig fram hjá búnaðar- samböndum: 1. Boða skal til fulltrúafundar hjá hverju búnaðarsambandi með minnst tveggja vikna fyrirvara á tryggilegan hátt, hvort heldur er með bréfi, símskeyti eða beinu símtali við hina kjörnu fulltrúa. 2. Berist stjóm búnaðarsambands fleiri en einn kjörlisti fyrir fulltrúa- fund, með fleiri mönnum en kjósa skal, skal fara fram almenn kosning á þingfulltrúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa. 3. Berist einn kjörlisti fyrir fulltrúa- fund og nýti fulltrúar sér rétt til að bera fram kjörlista á fundinum, þannig að fram eru komnir fleiri en einn kjörlisti, með fleiri mönnum en kjósa skal, fer fram almenn kosning á þingfulltrúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa. 4. Berist einn kjörlisti fyrir fulltrúa- fund og nýti fulltrúar sér ekki rétt til að bera fram kjörlista á fundin- um skoðast þeir, sem á listanum eru, rétt kjömir þingfulltrúar. 5. Berist ekki kjörlisti fyrir fulltrúa- fund getur 1/3 fulltrúa, sem fund- inn sækir, krafist þess að fram fari almenn óhlutbundin kosning á þingfulltrúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa. Að öðmm kosti skulu þing- fulltrúar kosnir á fundinum. Ef 1/3 fulltrúa, sem fundinn sækir, krefst þess skal sú kosning vera hlut- bundin, en ella óhlutbundin. ó.Bændur og aðrir þeir, sem kosningarétt hafa, hafa rétt til að bera fram kjörlista. Þurfa að lágmarki annað hvort 15% eða 30 félagsmenn, sem atkvæðisrétt hafa í búnaðarsambandi að styðja lista þar sem kosinn er einn fulltrúi. í þeim búnaðarsamböndum, sem kjósa fleiri en einn fulltrúa, þurfa annað hvort 15% eða 60 fé- lagsmenn, sem atkvæðisrétt hafa, að styðja lista. Kjörlisti skal berast stjóm búnaðarsambands fimmtán dögum fyrir fulltrúafund og skal hann til- kynntur fulltrúum með minnst tíu daga fyrirvara fyrir fundinn með sama hætti og greinir í 1. tl. Hafi aðeins einn kjörlisti borist skal jafnframt gefa öðmm kost á að bera fram kjörlista fyrir fundinn. Vilji fulltrúar á fulltrúafundi bera fram kjörlista þarf að lágmarki 1/4 hluti þeirra að standa að slíkum lista. 7.Fari fram almenn kosning á þingfulltrúum, sbr. 2., 3. eða 5. tl„ er stjóm búnaðarsambands kjör- stjóm og sér hún um undirbúning kosninga, ákveður kjördag, til- greinir kjördeildir og kjörstaði, skipar undirkjörstjómir, ef um fleiri en einn kjörstað er að ræða, og sér um að auglýsa kosningamar með tryggilegum hætti. Skal kjör- stjóm sjá um að gera kjörseðla og dreifa þeim í kjördeildir, úrskurða kjörskrá, en í upphafi hvers full- trúafundar skal liggja frammi fé- lagatal eins og það var 1. júní það ár,

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.