Bændablaðið - 28.02.1996, Qupperneq 7
Miðvikudagur 28. febrúar 1996
Bœndablaðið
7
Eftirlit með aðskotaefnum í sláturafurðum. Onnur grein.
Loks skal getið ýmissa efna
sem berast í dýrin úr umhverfinu
svo sem þungmálma, PCB og
geislavirkra efna. Hér á landi hafa
Geislavamir ríkisins eftirlit með
geislavirkum efnum.
ÁSTANDIÐ HÉR Á
LANDI
Á íslandi eru góð skilyrði til að
framleiða hreinar og ómengaðar
afurðir. Algert bann er við notkun
vaxtaraukandi hormóna og vaxtar-
aukandi efna í fóðri.
Lyfjalöggjöf er ströng og
notkun lyfja einungis heimil í sam-
ráði við dýralækna. Bann er við
íblöndun lyfja í fóður nema til
lækninga.
Vatn er hreint og umhverfis-
mengun er lítil enda er hér lítill
efna- og þungaiðnaður.
Aðbúnaður búfjár er hér góður,
notkun vamarefna í landbúnaði
lítil og gott rými á búfé í húsum og
högum.
Þess vegna hefur því ávallt
verið haldið fram að íslenskt kjöt
og sláturafurðir væm hreinar af-
urðir þ.e. lausar við aðskotaefni og
lyfjaleifar. Ástæða er þó til að
viðhafa fyllstu aðgát í þessum
efnum. Það er fyrst og fremst undir
bændunum komið hvort lyfjaleifar
finnast í kjöti og sláturafurðum.
Þeir geta og verða að tryggja að
búfé, sem hefur verið meðhöndlað
með lyfjum séu ekki sent til
slátrunar fyrr en tilskilinn tími er
liðinn frá síðustu lyfjagjöf. Lyf
umbrotna í líkama dýra og skiljast
út með mjólk, saur og þvagi. Út-
skolunartími lyfja er misjafnlega
langur og dýralæknar geta upplýst
bændur um hversu löngu eftir
lyíjameðhöndlun má slátra dýmn-
um. Markmiðið hlýtur að vera að
viðhalda þeirri stöðu og þeirri
ímynd að íslenskt kjöt sé hreint og
laust við lyfjaleifar og aðskotaefni.
BETA-
AGÓNISTAR
Á síðustu ámm hafa
verið brögð að notkun
svokallaðra b- agónista í
dýr í kjötframleiðslu.
Þessi efni em vel þekkt
og notuð bæði í manna-
og dýralækningum við
meðferð á sjúkdómum í
öndunarfæmm Séu þau
gefin í stómm
skömmtum auka þau
vöðvamagnið þ.e.
magurt kjöt. Eitthvað
mun þetta þó koma niður
á kjötgæðunum eða að
minnsta kosti sumum
gæðaeiginleikum þess
eins og seigju eða mýkt kjötsins.
Hvergi er leyfilegt að nota þessi efni
við kjötframleiðslu, en í Evrópu-
sambandinu, nema Danmörku ( og
væntanlega Svíþjóð og Finnlandi),
er áhtið, samkvæmt nokkuð nýlegri
rannsókn, að talsvert sé um
ólöglega notkun á þeim og dæmi
em um að fólk hafi orðið fyrir eitmn
vegna neyslu á kálfalifrum, sem
innihéldu þessi efni í miklu magni.
SÝKLALYF
Sýklalyf geta einnig aukið
vaxtarhraða dýra. Lyfjunum er þá
blandað í fóðrið en ekki er alveg
ljóst hvemig þau verka vaxtarauk-
andi. Sýklalyf eru einnig notuð til
að fyrirbyggja sjúkdóma og með
notkun þeirra er oft á tíðum unnt
Sigurður Örn
Hansson dýra-
lœknir hjá
embætti yfirdýra-
lœknis.
að að auka þéttleika
dýra í t.d. ali-
fuglahúsum og
svínahúsum.
Sýklalyf hvort sem
þau em notuð til
eiginlegra lækninga, til
að fyrirbyggja
sjúkdóma eða til að
auka vaxtarhraða, eru
hættuleg af tveimur
ástæðum. í fyrsta lagi
geta þau valdið ónæmi
hjá ýmsum sýklum
þannig að sýkingar geta
orðið illviðráðanlegar
og í öðm lagi em
sýklalyf mjög
ofnæmisvaldandi
fólki.
SNÍKLALYF
oft
hjá
Af öðmm lyfjum sem notuð
em til lækninga á dýmm skulu hér
nefnd sníklalyf; lyf við inn-
yflaormum í búfé t.d. Ivomec og
lyf við útvortis sníkjudýmm, lús-
um og kláðamaur t.d. Neocidol og
Neguvon. Allt em þetta lyf sem
notuð em í vemlegum mæli og
þörf á að kanna hvort leifar em af í
afurðunum.
ÖNNUR EFNI
Svo kölluð vamarefni, skor-
dýraeitur og illgresislyf, sem notuð
em við fóðurframleiðslu, geta
borist í dýrin og þar með í sláturaf-
urðir með fóðri og drykkjarvatni.
Bændaferðir í sumar
Uppselt er í fyrstu tvær ferðir ársins, en nokkur sæti
eru enn laus í aðrar ferðir.
Kanada og Bandaríki.
Það eru 8 sæti laus í þessa ferð, sem hefst 11. júní og er til
25. júní. Farið verður um Nýja-ísland, vestur hluta
Ontario, inn í Minnisota og um íslendingaslóðir í N.-
Dakota. Dvalið í Winnipeg í lok ferðar. Verð 84.000 á
mann.
Mið-Evrópa.
Frá 23. júní til 7. júlí. Farið verður til Norður-Ítalíu. Gist við
Gardavatn í 6 nætur. Farið verður til Feneyja, Verona og
Mílanó o.fl. staði. Það verður gist eina nótt í Innsbruck og
6 nætur í Kufstein í Tyrol. Margir staðir verða heimstóttir.
Verð með 1/2 fæði alla daga er kr. 86.000 á mann.
Mið-Evrópa.
Frá 17. til 31. ágúst. Farið verður um Alsace í Frakklandi
og Svartaskóg í Þýskalandi. Einnig verður ferðast um
Tyrol í Austurríki og staðir eins og Salzburg, Achensee og
Innsbruck heimsóttir. Þá verður gist í Bæjaralandi og farið
til Prag og í lokin verður gist í Moseldalnum. Verð kr.
78.000 á mann.
Verð miðast við gistingu í 2ja manna herbergi. Skattar og
skoðanaferðir er innifalið.
Hafið samband við Agnar eða Halldóru í síma 563 0300
ef þið óskið eftir nánari upplýsingum.
Suðurland
Búnaðarþingsfulltrúar
boða til rabbfunda á
Hótel Eddu í dag,
miðvikudag kl. 13:30,
að Hlíðarenda,
Hvolsvelli kl. 21 í kvöld
og á Hótel Selfossi á
morgun kl. 13:30.
Bændur
Vantar þig duglegan starfskraft í sumar á aldrinum 18 til
25 ára? Ef svo er þá er NORDJOBB eitthvað sem þú getur
nýtt þér. NORDJOBB er samnorrænt verkefni sem stuðlar
að vinnumiðlun ungs fólks á Norðurlöndum og hafa
hundruðir ungmenna komið hingað til lands í sumarvinnu
sl. 10 ár. Hafðu samband við NORDJOBB hjá Norræna
félaginu í síma 551 0165.
S.D. líka fyrir hestinn okkar
sem létt fyrir mig brokkar.
Múkk í kjúkunni meiðir
S.D. Hestasmyrsliö gott af sér leiðir.
Kusu má ekki gleyma
S.D. smyrsl má láta á reyna.
Sár og nuddbletti virðist græða
og kláða niöur kæfa.
Viöurkennt af
Hollustuvernd rikisins
□D
Sími 552-0790 - Fax: 552-0677
Strax á fax: Uppl. í S. 800-8222, bls. 3100 og 3101
Netfang: HTTP: // WWW spomet IS/SD
Spenagúmmí og mjólkursigti
fyrir Alfa-Laval mjaltakerfi
- viðurkennd vara -
HYGIA
Spenagúmmí, sett (4), ein rauf/tvær raufar
Mjólkursigti 320mm, 200 í pakka
Mjólkursigti 620mm, 200 í pakka
Kr. 1.299-
Kr. 1.494-
Kr. 2.506 -
Spenadýfur
Jugurhlífar
Sýnikönnur
Kla
Mjaltastólar
Sparkvarnir
Kálfafötur
Gaufaklippur Lambafötur
Nasatangir Sogvarnir
rartæki
til áð gefa rafstuð
(2 x 1,5V rafhlöður)
Sjálfbrynningai
,Stuðari" til að i
anaust\
Sími 562 2262
Borgartúni 26, Reykjavík .
Bíldshöföa 14, Reykjavfk
Skeifunni 5A, Reykjavík
Bæjarhrauni 6, Hafnarfiröi
MF 390 80 hö. 4x4
MF 390T 90 hö. 4x4
Voru að koma.
Hafið samband við
sölumenn okkar
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfði 2
Sími 525 8000
MA88EYFERQUBON