Bændablaðið - 18.03.1997, Page 3
Þriðjudagur 18. mars 1997
Bændablaðið
3
80 ðp síflan bændur
stolnuflu Mjðlkurífllng
Reykjavfkur
Aðalfundur
Mjólkurfélag Reykjavíkur verð-
ur 80 ára 28. mars næstkom-
andi. Tildrög að stofnun þess
var mikið öngþveiti sem skap-
ast hafði í sölu mjólkur í
Reykjavík. Bændur á svæðinu
vestan Hellisheiðar og sunnan
Skarðsheiðar tóku sig því
saman og stofnuðu til félags-
skapar um dreifingu mjólkur í
höfuðborginni.
Fyrsta mjólkurstöð félagsins
var á horni Lindargötu og Vatns-
stígs í Reykjavík, þar sem unnið
var að gerilsneiðingu mjólkur og
framleiðslu skyrs og rjóma. Árið
1930 reisti félagið fullkomna
mjólkurstöð við þann hluta Hring-
brautar sem nú heitir Snorrabraut
en með afurðasölulögunum 1934
var komið á víðtækri samvinnu um
vinnslu og dreifmgu mjólkuraf-
urða og snéri Mjólkurfélag
Reykjavíkur sér þá að annarri
starfsemi.
Sala á fóðurvörum og öðrum
rekstrarvörum til landbúnaðar
hefur einkennt starfsemi Mjólkur-
félags Reykjavíkur allt frá stofnun.
Fyrst í Hafnarstræti 5 og síðar við
Laugaveg 164. Nú hefur félagið
aðsetur við Komgarð í Sundahöfn
en félagið er frumkvöðull á þeim
hluta hafnarsvæðis Reykjavíkur-
borgar og er nú annar af tveimur
rekstraraðilum Komhlöðunnar.
Á síðari árum hefur orðið
ákveðinn samdráttur í sölu á fóð-
urvörum er rekja má til samdráttar
í landbúnaði og aukinnar innlendr-
ar fóðuröflunar. Mjólkurfélag
Reykjavíkur hefur því að hluta
haldið inn á nýjar brautir og annast
nú meðal annars innflutning og
sölu á margvíslegum búnaði til bú-
starfa, einkum er varðar alifugla-
og svínarækt. Nánar verður sagt
frá starfsemi Mjólkurfélags
Reykjavíkur í næsta tölublaði
Bændablaðsins.
Búnaðarsamband Vestfjarða
AQalfundur í lok júní
Á stjórnarfundi B.S.V. sem
haldinn var þann 4. mars var
ákveðið að halda aðalfund
sambandsins 20. og 21. júní.
og er fyrirhugað að halda
hann að Birkimel á
Barðaströnd.
Á fundinum var ákveðið að
kosning fulltrúa B.S.V. til setu á
næsta kjörtímabili Búnaðarþings,
fari fram á aðalfundi, nema fram
komi krafa um almennar
kosningar eigi síðar en en 6 vikum
fyrir aðalfund og þurfa þá að
lágmarki annaðhvort 10 % eða 40
félagsmenn sem atkvæðisrétt hafa
hjá B.S.V. að undirrita þá kröfu.
Taka skal fram að aðeins einn
núverandi fulltrúi, Hilmar Össur-
arson, Kollsvík, gefur kost á sér til
endurkjörs.
Kjörskrá til kosninganna
liggur frammi á skrifstofu B.S.V.
Sindragötu 2, ísafirði og hjá
formönnum búnaðarfélaganna,
fyrir viðkomandi félag, frá 15.
mars 1997. Skriflegar athuga-
semdir við kjörskrá skulu sendast
til stjómar B.S.V. eigi síðar en 15.
apríl nk.
Kaupfélags Eyfirðinga
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður
haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri
laugardaginn 5. apríl n.k. og hefst kl. 10.00.
Dagskrá:
1. Fundarsetning.
2. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Skýrsla kaupfélagsstjóra.
Reikningarfélagsins.
Umsögn endurskoðenda.
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva o.fl.
5. Afgreiðsla reikninga og tillagna félagsstjórnar.
6. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA.
7. Erindi deilda.
8. Þóknun stjórnar og endurskoðenda.
9. Samþykktabreytingar.
Lögð verðurfram tillaga um hækkun heimildartil útgáfu B-
deildar hlutabréfa.
Einnig verða lagðar fram tillögur um breytingar er varða
inngangseyri, fjölda aðalfundarfulltrúa og fjölda
stjórnarmanna.
10. Kosningar.
11. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félagssamþykktum.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
V J
Ólafur Dýrmundsson eftir norrænan fund um lífrænan landbúnað
w
“Við erum allt að áratug á eftir
hinum Norðurlöndunum í
þróun, lífræns landbúnaðar”,
segir Ólafur R. Dýrmundsson.
“Við getum lært margt af þeim,
sérstaklega af Dönum, sem
hafa rennt styrkari stoðum
undir lífrænan búskap en al-
mennt gerist. Þetta er ekki
lengur eingöngu áhugamál
grasrótarhreyfinga. Opinberir
aðilar taka eflingu lífræns
landbúnaðar föstum tökum,
setja markmið og tengja
saman hagsmuni bænda,
vinnslustöðva og neytenda”,
segir Ólafur.
Níels Ámi Lund, landbúnaðar-
ráðuneytinu, og Ólafur R. Dýr-
mundsson, Bændasamtökum ís-
lands, sátu á dögunum fund um líf-
rænan landbúnað á Honne ráð-
stefnumiðstöðinni við Mjosavatn í
Noregi, um 150 km norðan við
Ósló. Fundinn sóttu 25 fulltrúar
frá öllum Norðurlöndunum. Ólafur
R. Dýrmundsson, flutti erindi um
stöðu og horfur í lífrænum búskap
hér á landi.
Þeir Ólafur og Níels Árni
munu leggja fram ákveðnar til-
lögur um eflingu lífræns búskapar
með hliðsjón af niðurstöðum fund-
arins.
Mikil gróska er í lífrænum
búskap á öllum hinum Norður-
löndunum og er ljóst að með til-
komu aðlögunarstyrkja og fram-
kvæmdaáætlana, sem fela í sér
ríkulegar opinberar fjárveitingartil
rannsókna, kennslu, leiðbeininga,
markaðsþróunar og neytenda-
fræðslu, hefur lífrænt vottuð fram-
leiðsla aukist mikið. Samt er eftir-
spumin meiri en framboðið. Neyt-
endur eru greinilega tilbúnir að
greiða nokkuð hærra verð fyrir
vörurnar sem þeir telja hollari en
hefðbundnar landbúnaðarafurðir,
og auk þess meta margir að verð-
leikum þá umhverfis- og búfjár-
vemd sem felst í viðurkenndum
lífrænum búskaparháttum.
Á dagskrá fundarins voru
einkum þau mál er varða þátt
stjómvalda og annarra opinberra
aðila í þróun lífræns landbúnaðar á
Norðurlöndunum en fúndurinn var
haldinn á vegum Norrænu ráð-
herranefndarinnar og skipulagður í
Bændablaðsmynd/ÓRD
Kýr á lifrœnt vottuðu búi i Noregi.
norska landbúnaðarráðuneytinu.
Meðal helstu efnisþátta var yfirlit
um þróunina síðustu árin, mögu-
leika og annmarka, reglur Evrópu-
sambandsins, norræna samvinnu í
framtíðinni og sambandið á milli
framleiðenda og neytenda með
áherslu á gæði vottunarþjónustu og
notkun lífrænna vörumerkja.