Bændablaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið Þriðjudagur 18. mars 1997 Baendablaðiðl Útgefandi: Bændasamtök íslands Bændahöll við Hagatorg, 127 Reykjavík Sími 5630300 Bréfasími 562 3058 Kennitala: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Beinn sími ritstjóra: 563 0375 GSM 893 6741 Netfang: ath@bi.bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason Beinn sími auglýsingastjóra: 563 0303 Blaðstjórn: Sigurgeir Þorgeirsson, Hörður Haröarson, Haukur Halldórsson Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins. Það er prentað í 7000 eintökum og fara 6.719 (miðað viö 15. október 1996) eintök í dreifingu hjá Pósti og síma. Bændablaðinu er dreift frítt til þeirra er búa utan þéttbýlis. Prentun: Dagsprent Akureyri ISSN 1025-5621 Ritstjórnargrein Mjólkuriðnaður Nýlokið er aðalfundi samtaka afurðastöðva í mjólkur- iðnaði, SAM. Þótt ekkert væri þar lagt fram um aíkomu ein- stakra mjólkuriðnaðarfyrirtækja var á forráðamönnum mjólkur- búanna að skilja að afkoma iðnaðarins væri viðunandi. Hitt var greinilega áhyggjuefni fundarins að afkoma mjólkur- framleiðendanna hefur versnað og eignir þeirra dregist saman ár frá ári allt frá 1991. Vart er við öðru að búast en a.m.k. for- ráðamenn þeirra búa sem algjörlega eru í eigu og á ábyrgð bænda muni nú leita leiða til að jal'na með einhverjum hætti afkomu iónaðar og bænda, enda augljóst að góð af- koma mjólkurbús er til lítils ef afkoma framleiðenda í héraði er með þeim hætti að framtíðin er í óvissu. Raunar mun þegar vera nokkur munur milli héraða að því er varðar flutningsgjöld mjólkur og ýmsa þjónustu mjólkurbúanna við framleiðendur, en komi til frekari stuðnings einstakra mjólkurbúa við sína framleiðendur mun sá munur væntanlega vaxa. Það kann síðan aftur að hafa áhrif á það samstarf sem verið hefur innan iðnaðarins sem óneitanlega hefur bæði tryggt afkomu hans og vöruþróun sem er viður- kennd bæði af innlendum neytendum og þeim sem landið sækja heim. Þessar umræður á aðalfundi SAM tengdust þeirri umræðu sem fram fer um nýjan búvörusamning og ekki síst hvort og hvaða kröfur verða gerðar til iðnaðarins í tengslum við hann. Veruleg hagræðing hefur átt sér stað í mjólkuriðnaði sunnan- lands og vestan- og ekki óeðlilegt að búast við að sú lækkun vinnslukostnaðar sem þar hefur náðst muni ganga yfir norð- lensku búin einnig, hvort sem þau kjósa að mæta henni með endurskipulagningu iðnaðarins eða með lækkuðu verði til bænda. Þessi umræða tengist umræðu um fyrirkomulag viðskipta með greiðslumark. I umQöllun um þau mál í Morgunblaðinu nýlega kom fram að skiptar skoðanir eru um hvort skynsamlegt sé að halda þar áfram frjálsum viðskiptum eins og verðlagi greiðslumarks er nú háttað. Vitað er að einhver mjólkursamlög hafa að undanfömu aðstoðað við kaup á greiðslumarki inn á sitt svæði og sá slagur kann að harðna. Annar kostur er að mjólkur- búin velji þá leið að styrkja sína framleiðendur með öðrum hætti í trausti þess að þá muni þeir til frambúðar gegnum sína afkomu hafa möguleika á að viðhalda framleiðslunni og þannig tryggja viðkomandi mjólkurbúi rekstrargmnn. Næstu misseri kunna að vera afdrifarík fyrir mjólkuriðnað- inn í landinu en við blasir m.a. aukinn innflutningur mjólkur- vara og en gegn honum duga ekki gæðin ein og sér - umtals- verð hagræðing verður að eiga sér stað. Þar verða bændur og mjólkurbú að vera samstíga - vinna saman. Rannsúknin á ástandi hrossahana Veruleg aukning hefur orðið á hrossaeign landsmanna undan- fama áratugi og er svo komið að víða um land sjást merki um of- nýtingu hrossahaga. Þessi þróun hefur kallað á aukið eftirlit með högum og rannsóknir á hrossabeit. Árið 1993 hófst samvinna á milli Rannsóknastofnunar land- búnaðarins og Landgræðslu ríkis- ins um mat á ástandi hrossahaga. Ákveðið var að þróa einfalda og fljótvirka aðferð sem nota mætti við mat á ástandi hrossahaga og væri um leið leiðbeinandi um meðferð landsins. Til að undirbyggja aðferðina fóru fram rannsóknir á hrossabeit haustið 1996. Safnað var 40 dæmum úr hrossahögum í mis- munandi ástandi á alls 9 jörðum. Athuguð voru gróður- og rofein- kenni og gerðar mælingar á upp- skeru, svarðhæð, beitarummerkj- um og rofdílum. Auk þess voru teknar ljósmyndir. Niðurstöðumar voru síðan notaðar við þróun aðferðarinnar og er þeirri vinnu að ljúka um þessar mundir. Aðferðin byggir á einföldum skala þar sem landi er skipað niður í flokka (0 - 5) eftir jarðvegs- og gróðureinkennum. Megineinkenn- in eru rofdílar, þúfur, beitarum- merki, puntur, sina og uppskera. Grunnflokkur (O) á við land þar sem ástand gróðurs og jarðvegs er með ágætum og undir litlum áhrifum beitar. Síðan lýsir skalinn frávikum frá því ástandi (1. - 2. flokkur) og þeirri hnignun lands sem ofbeit getur leitt til (3. - 5. flokkur). Helstu kostir þessarar flokkunaraðferðar eru þeir að hún byggir á sjónmati þar sem notast er við auðgreinanleg einkenni er flestir sem land skoða hafa til- finningu fyrir. Sérfræðiþekkingu þarf ekki til að nota aðferðina og ættu landeigendur og landnotendur að geta nýtt sér hana milliliðalaust. Þá krefst hún ekki mælinga á vett- vangi, niðurstaða mats liggur strax fyrir og bent er á leiðir til úrbóta. Á komandi vori verður gefinn út bæklingur sem lýsir þessari að- ferð og birt verða dæmi, í máli og myndum, um land í mismunandi ástandi. Einnig verður bent á til hvaða ráðstafana er hægt að grípa, ef aðgerða er þörf. Þá eru helstu niðurstöður rannsókna frá haustinu 1996 kynntar. Vonast er til að að- ferðin verði handhæg fyrir alla þá er nýta hrossahaga og að hún auki skilning á þeirri nauðsyn að nýta land á hóflegan hátt. Útgáfa bæklingsins ætti að stuðla að bættu landlæsi, það er að menn þekki þau einkenni sem gefa vísbend- ingu um ástand lands. Mönnum má ljóst vera að góðum árangri í gróður- og jarðvegsvemd verður einungis náð ef landeigendur og landnotendur hafa vakandi auga með landinu og sjá til þess að nýting gangi ekki úr hófí og reyni að bæta það sé þess þörf. Bæklingnum verður dreift til sem flestra hrossaeiganda en að auki verður hægt að nálgast hann hjá Rannsóknastofnun landbúnað- arins og Landgræðslu ríkisins. í bígerð er að kynna aðferðina einnig á alnetinu. Verkefni þetta hefur verið styrkt af Tæknisjóði Rannís og Framleiðnisjóði. Borgþór Magnússon og Asrún Elmarsdóttir, RALA. Aburður úr Gufunesi - söun eða sjálfbæri? Framanvert á þessari öld dreymdi íslenska bændur um að eignast sína eigin áburðarverk- smiðju. Draumur þeirra rættist árið 1954 er ræst var gangverkið í Gufunesi. Síðan hefur það malað túnum bænda samviskusamlega og skapað hundrað manns ársvinnu. Nú ríkir hins vegar óvissa um framhald áburðarframleiðslu hér í landi. Eigendur Áburðarverk- smiðjunnar hyggjast selja hana. Vera má að einhver sjái peninga í fyrirtækinu og haldi framleiðsl- unni áfram. Sé svo þarf þessi grein ekki að verða lengri. Hins vegar óttast ég að með þeirri einföldu hagfræði, sem nú stýrir athöfhum samfélaganna, sé takmörkuð von um að vandalausir aðilar sjái hag í ffamleiðslu fáeinna poka af köfnunarefhisáburði uppi á Islandi með „gamaldags“ aðferð. Ég kem betur að henni en gætum að öðru. Um þessar mundir er títt efnt til málþinga um sjálfbæri og aðra umhverfishyggju. Ráðamenn ferðast líka víða um heim til undir- ritunar ýmissa yfirlýsinga og sátt- mála um betri hegðan þjóðanna gagnvart umhverfinu. Állt eru þetta mikilvæg mál og þakkar- verðar athafnir. Löngum hefúr þó listin verið sú að koma góðum áformum í framkvæmd - ekki síst ef þau brjóta í bág við hinn þunga straum tímans. Nú er langmest af köfnunar- efnisáburði heimsins framleitt sem hliðargrein olíuvinnslu. í Gufúnesi er hins vegar notuð eldri aðferð sem byggist á rafgreiningu: endur- nýjanleg orka fallvatna er notuð til þess að vinna köfnunarefni úr and- rúmsloftinu. Obbinn af öðrum köfnunarefnisáburði verður hins vegar til við notkun olíuforða sem sóttur er í takmarkaða auðlind. Það er talað um að gera íslenskan landbúnað vistvænni og lífrænni en hann þó hefúr verið. Stjómvöld hafa meira að segja komið á sérstökum lagabálki í þá veru og þingmenn allra flokka hafa nýverið sameinast um þings- áíyktunartillögu sem m.a. gengur í þessa átt. Af þessum sökum bíð ég enn dálítið spenntur eftir því að sjá hvort ráðamenn greina samhengið á milli orða hér og athafna þar: hvort góssið í Gufunesi verður bara selt til einhvers sem gjalda vill á annan milljarð fyrir án frekari kvaða ellegar hvort þeir meti þann þátt sem Gufúnessverk- smiðjan hefur átt í því að gera mat- vælaframleiðslu landsins lífrænni og en annarra og stuðli að frekari þróun verksmiðjunnar sem sjálf- bærs áburðargjafa, t.d. við hlið smárans og lúpínunnar? Að sjálfsögðu greiða íslenskir bændur ekki hvaða verð sem er fyrir tilbúinn áburð. Stendur enda ekki til. En það kostar að vera til og það kostar að ganga þannig um umhverfið að sjálfbæris sé gætt. Það vita þeir líka vel sem undirrita þjóðasamninga er snerta um- hverfisdagfar okkar. Væri nú ekki rétt að kanna þennan þátt áður en ríkið sleppir með öllu hönd af vistvænni áburð- arframleiðslu í Gufunesi? Jafnvel kann hann að gera málið fýsilegra en ella í höndum manna sem vel kunna til framleiðslu og markaða? Bjarni Gudmundsson

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.