Bændablaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 27. mars 2001 BÆNDABLAÐIÐ 5 Spurt iim ðform jslandspósts Mikil umræða hefur orðið um þau áform íslandspósts hf. að leggja niður pósthúsin á Hofsósi og í Varmahiíð. í framhaldi af því hefur Jón Bjarnason, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, lagt fram á Alþingi fyrirspurn til sam- gönguráðherra um póstþjón- ustu en Jón telur margt óljóst í sambandi við niðurskurðar- áform fyrirtækisins. Fyrirspurnin er svohljóðandi: 1. Hvenær verða settar ákveðnar gæðakröfur um grunnpóstþjón- ustu í landinu sem taki meðal annars til póstmóttöku, póst- dreifingar, aðbúnaðar, öryggis- mála, póstleyndar og aðgengis almennings að þessari þjón- ustu? 2. Hvaða skilgreindar kröfur eru nú gerðar um póstmóttöku og póstdreifingu, sem og fjöida, aðbúnað og þjónustustig póst- stöðva í landinu? 3. Hver tekur út og samþykkir færslu póstafgreiðslna, aðbún- að, öryggi, rekstrarform og þjónustustig nýrra póststöðva og hvernig er formlega staðið að þeirri úttekt? 4. Mun ráðherra láta afturkalla lokun pósthúsanna á Hofsósi og í Varmahlíð ef breytingin sem þar á að verða þýðir minni gæði eða beinan niðurskurð póst- þjónustu á þessum stöðum frá því sem áður var eða hún samræmist ekki ákvæðum í starfsleyfi Islandspósts hf. frá 28. janúar 1998? Stundum hefur borið við í veislum hjá Búnaðarbanka íslands, að þingfulltrúar á búnaðarþingi verða fullir - af andagift og góðum krásum. Því sagði einn úr þeirra hópi: Saddur vel með þökk í þanka með þingfulltrúum öðrurn sit. Það að selja svona banka sýnist ekki nokkurt vit! (Úr fórum Leifs Kr. Jóhannessonar). Um miðjan mars var efnt til gæðastýringarnámskeiðs í sauðfjárrækt í Öxi, fundarsal Öxarfjarðarhrepps. Björn Víkingur Björnsson í Sandfellshaga lagði leið sína á námskeiðið og tók meðfylgjandi myndir fyrir Bændablaðið. Á innfelldu myndinni má sjá þau Sigurð og Maríu sem stýrðu námskeiðlnu af röggsemi en á þeirri stóru eru nokkrir bændanna sem sóttu námskeiðið. Úr húsasafni Þjóðminjasafnsins Hjallur í Vatns- firði Á Vestfjörðum er á stórum svæðum mikið af prýðilegu hleðslugrjóti og var þar víða eingöngu notað grjót í veggi torfhúsa. Hjallurinn er gott dæmi um þetta. Hann er með stærstu og veglegustu húsum sinnar tegundar á landinu en hann er talinn reistur um 1880. Þjóðminjavörður beitti sér fyrir því að hjallurinn yrði tekinn á fornleifaskrá árið 1976. Síðar sama ár var gert rækilega við hann og hefur hann síðan verið í vörslu og umsjá Þjóðminjasafnsins. SPÍHIUP MUP SPÍÍÚ Stubbarnir standist á Fyrir um þremur áratugum kom upp umræða unt það á Norðurlandi hvar hringvegurinn ætti að liggja milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, þ.e. hvort hann ætti að liggja um Óxnadal eða Hörgárdal, og sýndist sitt hverjum. Sanngjarn framámaður hélt þá fram þeirri skoðun að hvert byggðarlag skyldi hafa sjálfdæmi um hvar meginjtjóðleið lægi um héraðið. Annar benti þá á að það væri þá gott að stubbarnir stæðust á. Þessi saga rifjast upp nú þegar ráðslagað er um framtíð Revkjavíkurflugvallar. A Norðmiandi leystust mál farsællega að bestu manna yfirsýn og stubbarnir standast á en í Reykjavík er enn óséð hvernig mál munu skipast og skýrði almenn atkvæðagreiðsla Revkvíkinga um síðustu helgi málið lítið. Það sjónarmið sem virðist hafa fallið í skugga í þessu máli er að heildarhagsmunir allra sem málið er varðar séu í fyrirrúmi; að stubbarnir standist á. Hvergi stendur skrifað í stjörnurnar hvernig flugsamgöngum innanlands skuli háttað. Við, hin misframsýna mannkind, þjóðin í sameiningu, verðum að leysa úr því. Reykjavík er ekki fríríki sem getur ákveðið slíkt upp á sitt eindæmi og allra síst geta tæp 400 umframatkvæði af 80.000 manns á kjörskrá og 30.000 kjósendum skyldað borgarstjóra siðferðilega til að þurrka Reykjavíkurflugvöll út af aðalskipulagi borgarinnar. Leikreglurnar sem settar voru fyrirfram sögðu annað. Um framtíð Reykjavíkurflugvallar er auðvitað enn allt í óvissu og verður það uns fyrir liggur hvað við tekur; Keflavík, Álftanes, Hvassahraun, Engey eða eitthvað enn annað. Á kjördag var borinn í hús í nokkrum hverfum borgarinnar miði frá samtökum þeirra sem vilja völlinn burt þar sem frarn kom að samkvæmt útreikningum verkfræðideildar Háskóla Islands muni húsnæði í þessum borgarhverfum hækka um 3-10% í verði, ef völlurinn hverfur á braut. Slíkt kostaboð hefur án efa freistað einhverra. Að minnsta kosti þeirra sem eru andlega skyldir þursunum í Dofrafjöllum, eins og þeim er lýst í leikriti Henriks Ibsens, Pétri Gaut, í þýðingu Einars Benediktssonar: „Þursi ver sjálfum þér nógur". Grímur eiues pm ja pjsojq ua pe>t>jæ; ujnunjeq jn;aq uepjs 'sue|0><s -ejpæuisnq 66aA jjpun ueuuns uj>ja; jba uipuAui 6o jn6n;iAj jba jniijd je6acj 6Þ6L JBa enaq 'jpjj} -je6jog j jpueieuueA e uinue|o>|s -eUU3A>| I |3ABSO!| UOSSHjJQjJJ uo[jn6is uujjn6ujpjj}udoA jpessed Einu sinni ...

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.