Bændablaðið - 27.03.2001, Qupperneq 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. mars 2001
Vinsældir íslenska hestsins aukast
stöðugt, bæði hériendis og erlend-
is, og eftirspum eftir hverskonar
fræðslu sem honum tengist jafn-
framt. Þekking á þörfum hestsins,
getu og fjölhæfni er forsenda fram-
fara og jafnframt lykill að vel
heppnaðri markaðssetningu á þeim
dýrgrip sem íslenski hesturinn er.
Fram til þessa hefur fræðsla á er-
lendum vettvangi verið mest á
námskeiðsformi, yfirleitt með
megináherslu á reiðmennsku en
öðrum þáttum gerð minni skil.
Reyndar hafa fjölmargir erlendir
hestamenn sótt nám í hesta-
mennsku hérlendis, flestir við
Hólaskóla, ásamt þeim mikla
Qölda sem unnið hafa um lengri
eða skemmri tíma með hross
hérlendis og öðlast þannig mikla
reynslu.
Helgina 24. og 25. febrúar var
haldinn að Hólum í Hjaltadal
samráðsfundur fulltrúa nokkurra
framhalds- og búnaðarskóla á
Norðurlöndunum. Markmið fund-
arins var að kanna möguleika á að
innleiða kennslu í hrossarækt,
reiðmennsku og meðferð á
íslenska hestinum inn í mennta-
stofnanir í nágrannalöndunum.
Þeir skólar sem áttu fulltrúa á
fundinum auk Hólaskóla voru:
Toppidretsgymnas í Lillehammer
og Söve Naturbruksskole frá Nor-
egi, Finsta Naturbruksgymnasium
frá Svíþjóð, Ypajá reiðskólinn í
Finnlandi og Höng landbrugsskole
í Danmörku. Einnig mættu
fulltrúar frá íslandshestafélögum
viðkomandi landa og formaður
Félags tamningamanna.
Nokkur undirbúningsvinna
hefur farið fram nú þegar, en á
þessum fundi var megináhersla
lögð á að hver skóli kynnti starf-
semi sína og stöðu innan mennta-
kerfis viðkomandi lands. Þar sem
um mjög mismunandi uppbygg-
ingu á námi er að ræða á milli
landa er hugmyndin að koma upp
nokkurskonar norrænum grunni,
þ.e. sambærilegu grunnnámi sem
skólamir gætu sameinast um en
framhaldsnám yrði við Hólaskóla.
Asltor iiu Ií 1 ínnlf ritlra st-rn t-rh-mJr;i ft-r 0;mi;tnna
- komum í veg fyrir að nýir og hættulegir
dýrasjúkdómar berist til landsins!
Víða erlendis eru landlægir dýrasjúkdómar
sem íslenskir dýrastofnar hafa sloppið við fram til þessa.
Gin-og klaufaveiki
sem nú breiðist út í Bretlandi og e.t.v. víðar er einn þessara hættulegu sjúkdóma.
Ef hann bærist til íslands hefði það ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér.
Þeir sem hafa ferðast
um landbúnaðarsvæði í Bretlandi
skulu auk þess forðast snertingu
við dýr hér á landi í að minnsta
kosti fimm daga eftir heimkomu.
2> Allur innflutningur á hráum
matvælum er bannaður.
Minnsta brot á þessum reglum
getur valdið óbætanlegu tjóni.
Ferðist fólk um landbúnaðarsvæði
í Bretlandi skal setja öll föt
sem notuð eru í plastpoka strax
að lokinni notkun og þvo og hreinsa
í fatahreinsun strax eftir heimkomu.
Skófatnað þarf einnig að sótthreinsa.
Yfirdýralæknir
Sölvhólsgata 7-150 Reykjavík - Sími 560 9750 - Fax
Fólk sem hyggur á ferðir
til Bretlands er varað við
að heimsækja bóndabæi
og landbúnaðarsvæði vegna
smithættu.
Ekki er ráðið hvenær slíkt nám
mun hefjast, en mikið er óunnið
við samræmingu og samningagerð
á milli stofnananna.
Hér er augljóslega komin af
stað mjög athyglisverð umræða
sem leitt getur til verulegrar aukn-
ingar á námsframboði í Islands-
hestaheiminum. Sú tilraun sem á
að hefjast á komandi hausti með
kennslu í hestamennsku á fram-
haldsskólastigi við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
og Fjöibrautaskóla Suðurlands á
Selfossi sem liður í „Átaksverk-
efni“ er enn eitt skrefið og fróðlegt
verður að fylgjast með hvemig
þessi menntamál munu skipast á
komandi árum./GR
Vorum að
taka upp
varahluti í
Vicon- PZ
og
Greenland
tæki
GREENLAND
Ingvar
Helgasonht
Vélavarahlutir,
Sími 525-8040
Til sölu Case IH CS 75, 4x4
nýskráð 10/1999.
Ekinn 511 tíma.
Verð 1.800.000 kr. án vsk.
Upplvsinaar í
síma 560-8834.
Lokar og tengi fyrir
haugsugur og lagnir
VÉLAVAL-Varmahlíö m
Simi 453 8888 Fax 453 8828
Vetfang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is