Bændablaðið - 27.03.2001, Page 10

Bændablaðið - 27.03.2001, Page 10
10 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 27. mars 2001 i nyjum fjarhusum a Skjoldolfsstoðum a Jokuldal Dokablótið var haldið í fjárhúsum sem feðgarnir Þorsteinn Snædal og Vilhjálmur Snædal eru að byggja. Blótið var með hefðbundnu þorrablótssniði, etinn þoixamatur og flutt heimasmíðað skemmtiefni. Einnig var boðið upp á hreindýrapottrétt og Kái*i Ólason, verktaki úr Tungunni og maðurinn á bak við blótið, sagði að þar hefðu verið étin sönnunargögnin úr óupplýstu sakamáli síðan í haust. Síðan var stiginn dans þar til klukkan var farin að ganga fimm um morguninn, við undirleik Nefndarinnar frá Fellabæ. Elst gesta var Ingunn á Aðalbóli sem er 87 ára. Hún fór ekki heim fyrr en með seinustu mönnum og voru þá farin að bíða eftir henni bæði synir og ömmuböm. Nokkur smáböm vom á staðnum og voru þau höfð á vöggustofu sem var inn af eldhúsi. Þegar mest var vom þar fjögur böm í vögnum. Sum voru reyndar það vaxin að þau fengu að kíkja í salinn til að sjá hvaða læti þama voru á ferðinni. Veislugestir sögðust aðspurðir aldrei hafa sótt annan eins gleðskap. Mjög létt var yfir mönnum og engan bilbug á unga bóndanum á bænum og fjölskyldu hans að finna, þrátt fyrir að ekki blási alltaf byrlega fyrir bændum. Á bænum Skjöldólfsstöðum á Jökuldal er ungur bóndi að reisa sér fjárhús. Þorsteinn Snædal er nýfluttur í sveitina nteð fjölskyldu sína, hann festi fyrir tæpum tveim- ur árum kaup á jörð og er bjartsýnn á framtíðina. Hvenœr var byrjað að byggja húsin og hvencer er œtlunin að taka þau í notkun ? „Byrjað var að taka grunninn í júníbyrjun 2000. Eg vonast til að taka a.m.k. hluta þeirra í notkun í mars nk. og klára afganginn með vorinu, fyrir sauðburð.“ Eru þetta ekki gríðarmikil hús? „Þau eru 900 m2 og eru skráð fyrir 720 fjár, með vel rúmt á hverri kind. Undir þeim er steypt haughús, 1,80 m djúpt undir gólfbita, og stálgrind ofan á. Síðan eru þau einangruð með fjögurra tommu steinull og klædd að innan með hvítu bárujámi. Fóðurgangur- inn er undir mæninum fyrir miðju og sex sextíu kinda hús hvoru megin við hann. Húsin voru teiknuð eftir okkar hugmyndum, þótt auðvitað megi finna svipuð hús annars staðar.“ Þú varst líka að kaupa jörð, er það ekki? „Jú, ég keypti samliggjandi jörð og maður sá auðvitað mögu- leikann á því að nýta jarðirnar og öll ærgildin, við erum nú með 750 ærgildi samanlagt. Hins vegar fæ ég ekki ennþá leyfi til að sameina hjarðimar og flytja fé þaðan hingað úteftir. Það kom þvert nei við því. Það er talað um smitvarnir en samt hefur aldrei komið upp riða á þessum bæjum. Leyfið kem- ur sjálfsagt fyrir rest, það er nýlega búið að leyfa flutning á fé milli bæja annars staðar í sveitinni. Það virðist bara stundum sem allt sé gert manni til óþæginda, hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir." A hvaða forsendum fá aðrir leyfi en þú ekki? „Það em engar forsendur. Þetta em bara kúnstir. Þetta eru voða- lega einkennilegir menn. í upphafi var reynt að koma í veg fyrir húsbygginguna og henni fundið ýmislegt til foráttu. Húsin eiga að skapa slysa- og smithættu, bæði af því að þjóðvegurinn er hér fyrir of- an og svo á að vera meiri hætta á smiti í svona stómm húsum.“ Hvernig líst fólki á þessar framkvœmdir hjá þe'r? „Flestir halda að ég sé bara geggjaður, en auðvitað voru marg- ir tilbúnir að hjálpa til. Það er samt miklu minna um það núna en áður þegar allir komu saman og hjálpust að. Nú eru allir á fullu í einhverju öðm. Svo kom reyndar fram á bændafundi í Valaskjálf í haust að Ari Teitsson telur vitlaust að byggja svona fín hús, en vill bara byggja óeinangruð hús á taði. Það er kannski lýsandi dæmi fyrir hugsunarháttinn innan bændafor- ystunnar, það má ekki þróa neitt eða koma upp neinni aðstöðu. Afhverju eru ungir menn þá að fara úl í þetta? „Eg hef trú á þessu; þetta er ákveðinn lífsstfll. Þetta er afar fjölskylduvænt því ég get verið meira með fjölskyldunni. Áður var ég alltaf í vinnu og aldrei heima. Fjölskyldan getur tekið miklu meiri þátt í þessum rekstri. Að vísu er ekki komin nein reynsla á það ennþá en ég held að þetta verði svoleiðis þegar búið er að koma upp góðri aðstöðu.“ Eru menn ekki ánœgðir með að fá unga og drífandi fjölskyldu í sveitina? „Eg held að menn hljóti að vera ánægðir, þótt manni finnist kannski stefnan vera sú að búskap- ur eigi bara að lognast útaf. Bændur vilja það ekki en kerfið býður ekki upp á að nein endur- nýjun verði í sveitum. Það er eng- inn grundvöllur fyrir ungt fólk að kaupa sér jörð. Það er svo dýrt að koma sér af stað. Ég gat þetta af því að hér eru öll tæki og tól til og ég þarf því ekki að leggja í þann kostnað, en þetta er nógu dýrt samt.“ Er einhver markaður fyrir lambakjöt? „Já. En auðvitað þarf að gera eitthvað í markaðsmálum. Bændur em reiðubúnir að komar til móts við neytendur og kröfur þeirra. Það er alveg rétt sem Fjóla Runólfs- dóttir benti á, kjöt er ekki snyrt al- mennilega og rnenn eru að kaupa hækla og hálsabita sem ætti bara að henda. Ég held að það eigi að verka kjötið öðruvísi, snyrta það meira og henda meiru frá í upp- hafi. Þá væri hægt að hafa kjötið frekar dýrara en hitt en neytendur að sama skapi ánægðari nteð það. Ég held líka að bændur séu tilbúnir að koma til móts við það sem markaðurinn vill. Þeir þurfa bara að taka þetta meira í sínar eigin hendur." Hvað fmnst þér um lífrœna rœktun lambakjöts og rekjanleika kjöts? „Ég lít t.d. svo á að okkar kjöt sé lífrænt. Þetta er kjöt sem kemur beint af fjalli og í sláturhús. Það er nú ekkert flóknara en það. Auðvitað má merkja það sem slíkt, en það þarf þá bara að gera beint, þarf ekki að vera með neina sérstaka vottun. Ég held að það sé alveg möguleiki að merkja hvaðan kjöt kemur og með eigin sláturhús væri það auðvelt. Ég held að það yrði mjög erfitt í framkvæmd í stóru sláturhúsunum. Ástæða er til að óttast kostnað sem því fylgdi, það er ekki ótrúlegt að hann yrði klipinn af hlut bænda. Heldur þú að í framtíðinni verðirþú með eigið sláturhús? „Já. Sláturkostnaður er óheyri- lega hár. 136 kr. á kílóið af lambi á móti 35 kr. á kílóið af svíni og 48 af nauti er bara geggjun. Miðað við þann lambafjölda sem við verðum að leggja inn héðan, a.m.k. 1200 lömb, þá er sláturkostnaður tvær og hálf milljón miðað við 15 kflóa meðalvigt. Þetta sér hver maður að er ekki nokkurt vit.“ Hvernig heldur þú að framtíðin verði fyrir sauðfjár- bœndur? „Ég held að afkoman eigi eftir að batna mikið og kjötið verði mun vinsælla en nú er. Það eiga örugglega eftir að verða miklar breytingar á slátur- markaði. Kerfið er alltof dýrt núna og það þarf að breyta sölumálum. Þeir sem sjá um sölumál fyrir bændur vita ekkert hvað þeir eru að gera. Ég er alveg viss um að það er hægt að fá hærra verð fyrir afurðirnar, ég held bara að bændur þurfi að selja sjálfir. Þetta verða minni einingar og menn sleppa milliliðunum og selja sitt kjöt beint. Maður þarf að koma sér upp sláturhúsi og sjá um þetta sjálfur því að hinum er ekki treystandi til þess. Það er t.d. aurnt í þetta miklu landbúnaðarhéraði að kaupfélagið skuli ekki hafa getað rekið slátur- hús og kjötvinnslu skammlaust. Þeir eru búnir að glutra þessu út úr höndunum með röngum ákvörðun- um. Þeir hafa kastað tugum milljóna í sláturhús á Fossvöllum og kjötvinnslu og sláturhús á Eg- ilsstöðum og eftir standa þessi tvö hús ónothæf að mestu. Þau hafa ekki útflutningsleyfi. Alltaf er verið að hagræða og sameina, eftir síðustu sameiningu undir rnerki Goða eru þeir nú ekki beysnari en svo að geta varla borgað þetta út. Maður spyr sig hvar hagnaðurinn í þessari sameiningu lá, ég sé hann ekki. Þetta er andvana fæðing. Það er dapurt að hafa haldið þannig á spöðunum að bændur á Héraði eru komnir aftast hvað slátrun varðar. Við ættum að hafa fyrsta flokks hús og meiri möguleika á útflutn- ingi. I staðinn er fyrirliggjandi að húsin verði lögð niður.“ /1S Skemmtaninn Lárus Brynjar Dvalinsson bóndi á Vörðubrún í Jökulsár- hlíð var potturinn og pannan í skemmtidagskránni. Varþetta ekki mikil vinna? „(Andvarp) Þeir sem sjá þetta sjá náttúrulega að það var óhemju vinna að koma þessu öllu upp, veggjum og klósettum og eldhúsi. Við vorum að í þrjár vikur nánast upp á hvern dag. Áuðvitað mættu ekki allir alltaf. Þá daga sem verið var að koma upp aðstöðunni voru þrír til fjórir hér á hverjum degi af þeim ca. fimmtán sem í nefndinni voru. Eldhúskonur og skáld unnu náttúrulega heima hjá sér.“ Hvernig höguðuð þið vinn- unni? „Við reyndum að fara tíman- lega af stað. Maður vaknaði klukk- an hálf átta og fór í fjárhúsin, keyrði svo hingað uppeftir, vann

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.