Bændablaðið - 27.03.2001, Page 12

Bændablaðið - 27.03.2001, Page 12
12 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 27. mars 2001 Um fpjðlsa sölu greiQslumarks Mikið hefur verið rætt og nokkuð ritað um hagkvæmni og óhagkvæmni þess að greiðslumark í mjólk sé seljanlegt milli manna. Engum átti þó að blandast hug- ur um að frjáls verðmyndun á greiðslumarki myndi hafa margar skuggahliðar. Reynsla í því el'ni hefur ekkert sýnt sem ekki sást fyrir ef menn vildu. Þeir sem réðu því hinsvegar að þessi háttur var hafður á við framleiðslustýringu vildu gera stóra hluti á stuttum tfma. Margoft hefur komið fram að undirrótin var að fækka framleiðendum með auknum hraða og draga saman framleiðslusvæðin að stærstu mjólkursamlögunum. Þannig átti að vinna í nafni hagræðingar og ekki var spurt um aðrar afleiðing- ar, þar með talinn hinn nýja rekstr- arlið, kaup á greiðslumarki. Tugir miljóna króna hafa runnið út úr greininni og skuldsetning manna er víða komin á hættustig, ef ekki lengra. Markaðslögmálið virðist samt eiga að gilda í þessu efni sem annarsstaðar með öllum fylgifisk- um þess. Þessi nýlegi kostnaður við mjólkurframleiðslu kemur m.a. í veg fyrir að hægt sé að lækka framleiðslukostnað. Verð til neyt- enda og verð á greiðslumarki vega víðast hvar þyngra en hagræðingin sem verið gæti við hóflega bústækkun og aukna veltu. I sjávarútvegi er svo komið að veiðiréttur er að mestu leyli kom- inn í hendur fárra aðila. Þessir aðilar eru farnir að sjá að milj- arðaverðmæti í kvóta getur orðið verðlaust í höndum þeirra innan skamms nema selja megi þessa „þjóðareign" útlendingum. Ekki eru allir klígjugjamir þegar pen- ingar eru annarsvegar. I íslenskri mjólkurframleiðslu verður varla farin sama leið, en ef ekkert er að gert mun verða löng bið eftir því að verð á greiðslu- marki lækki að einhverju marki. Jóhannes Torfason á Torfalæk skrifaði nýlega í Bændablaðið að mörgu leyti ágæta grein um frjálsa greiðslumarkssölu og áhrif hennar. Hann sá ekki annan kost úr ógöngunum en að slá þessa fram- leiðslustýringu af og gera greiðslu- markið verðlaust í einu vetfangi. Slík lausn er þó engan veginn sanngjörn fyrir þá sem keypt hafa á uppsprengdu verði með það að leiðarljósi að hægt væri að selja aftur ef illa gengi. Greiðslumarkið er í þeim tilfellum mikill vara- sjóður þess sem kaupir og hverjum þeim sem hyggst hætta fram- leiðslu. Hvað er þá til ráða sem sanngjamara væri og lækkaði þennan kostnað við meinta hagræðingu hjá framleiðendum? Eg hef áður beint til ráða- manna ákveðnum hugmyndum sem ég vil hér með koma á framfæri við hinn almenna lesenda Bændablaðsins í þeirri von að „grasrótin" komi á vitrænni hugs- un og segi fyrir verkum eins og gerst hefur nýlega, a.m.k. að hluta til í öðru máli sem allir þekkja. Frjálst markaðsverð sem af- urðastöðvar halda uppi hefur reynst illa. Frjáls framleiðsla yrði fram- leiðendum enn dýrari nema fram- leiðslugeta minnkaði verulega frá þvf sem nú er eða erlendir markaðir færu að gefa nær því sama og innlendur markaður og fáir munu reyna að leiða að því líkur. Greiðslumark verður því áfram að vera söluvara en verðið verður að lækka í áföngum. Trúin á að markaðurinn skapi ásættan- legt verð hlýtur að vera dauð eða líflítil. Kaup og sala á framleiðslurétti verður því að fara fram hjá einum aðila (B.I. eða L.K.). Þegar sú ákvörðun yrði tekin þyrfti einnig að ákveða hámarksverð á greiðslu- marki fyrir hvert næstu ára, t.d. samningstímabilið. Þetta hámarks- verð væri þá auglýst strax fyrir öll ár sem ákvörðunin næði _yfir og færi lækkandi ár frá ári. A fyrsta ári gæti það hugsanlega verið kr. 200,-, en stefndi t.d. niður í kr. 50,- síðasta árið. Með þessari aðlögun kæmi eðlileg fyrning á keyptan rétt og hver og einn gæti reiknað betur hvenær og hvort honum hentaði kaup cða sala. Búast má við að með lækkuðu verði vildu fleiri kaupa en framboð leyfði. Lausn þess máls er einföld og ætti að vera flestum geðþekk en hún er sú að sá sem byði viðkom- andi hámarksverð og væri næstur seljanda fengi kaupin. Ef menn telja þessa lausn ekki eðlilega má ætla að viðkomandi telji vaxandi byggðaröskun ekki skaðlega íslensku þjóðfélagi og þurfi enn frekar að leggjast á þær árar sem henni valda. Byggðin væri hinsvegar önnur í kringum landið ef þessi leið verðbindingar á greiðslumarki hefði verið valin frá byrjun og ekki síður á kvóta í sjávarútvegi. Minni fjármunir hefðu þá runnið frá þess- um mikilvægu atvinnugreinum. Birkir Friðbertsson Birkihlíð Þekkingarleit og þrúunarstarf í þágu íslensks landbúnafiar Aukin arðsemi íslensks búfjár dregur úr þrýstingi á innfiutning búfjárafurða og minnkar þar með sjálfkrafa hættu á nýjum búfjársjúkdómum. Um áratuga skeið hefur inn- fiutningur búfjár og búfjárafurða til íslands verið háður ströngum takmörkunum. Vegna þessara vamaraðgerða, legu lands okkar og þeirrar ein- angrunar sem af henni leiddi áður fyrr, hefur Island sloppið við ýmsa búfjársjúkdóma sem hjá öðrum þjóðum hafa valdið erfiðleikum og þrásinnis miklu tjóni og afföllum á bústofnum. Skal þar öðrum fremur nefnd gin- og klaufaveiki sem nú geisar í Bretlandi með ógnvænleg- um afieiðingum. Varnaraðgerðir stjórnvalda gegn búfjársjúkdómum sættu til skamms tíma harðri og oft óvæginni gagnrýni. Neikvæð af- leiðing af þeim aðgerðum er þó að íslenskir bændur hafa til skamms tíma ekki getað notið til jafns við starfsbræður sína í nálægum lönd- um árangurs af öflugu kynbóta- starfi á sviði ýmissa búgrcina sem fyrst og fremst beinist að því að auka arðsemi búfjár. Samanburður á verði og af- urðamagni búfjár á íslandi við ná- læg lönd hefur stöðugt orðið óhag- stæðari auk þess sem hnattræn lega landsins veldur því að framleiðslu- kostnaður er meiri en annarra framleiðenda sem sækja inn á ís- lenska markaði. Framleiðsla mjólkur og sauðfjárafurða hefur lengi notið stuðnings af fram- lögurn úr landssjóði. Jafnlengi hef- ur sá stuðningur sætt gagnrýni og þau sjónarmið verið uppi að ís- lenskar búfjárafurðir eigi að keppa á samkeppnismörkuðum við inn- íluttar afurðir án fjárframlaga úr ríksissjóði. Á fundi um málefni land- búnaðarins fyrir skömmu sagði framkvæmdastjóri Bændasamtaka íslands, Sigurgeir Þorgeirsson að helsta ógn við íslenskan landbúnað væri bág afkoma bænda og óvissa um framtíðarþróun. Hafið er yfir vafa að innlend búvöruframleiðsla og reyndar afurðir landbúnaðar al- mennt verða ekki varðar í framtíðinni með tollaálögum og sjúkdómavörnum að því marki sem til skamms tíma hefur verið. Með aðild sinni að Alþjóðavið- skiptastofnuninni (WTO) hefur ís- land opnað greiðari leið fyrir er- lendar landbúnaðarafurðir inn á markaði landsins. Samið hefur verið um lækkun tolla á ákveðnu magni búfjárafurða. Á þessu ári nær sá samningur til 95 tonna af nautakjöti og heildarmagn kjöts og kjötafurða með lækkuðum tolla- álögum er tæp 700 tonn. Mjólkurafurðir frá erlendum framleiðendum sem njóta tolla- ívilnana í ár eru um 170 tonn skv. sama samningi. Ásókn innflytj- enda sem leitast eftir að koma er- lendri búvöruframleiðslu inn á íslenskan markað er um þessar mundir tvöföld á við það sem tollaívilnanir fást fyrir. Flestum bændum og forystumönnum fé- lagasamtaka þeirra hefur lengi verið ljóst að búvöruframleiðsla ,hér á landi hafi engan veginn þá arðsemi sem þarf til þess að stand- ast samanburð við landbúnað þar sem ríkt hafa margfalt rýrnri aðstæður um ræktun búfjár, m.a. með blöndun kynja, fyrst og fremst í því skyni að auka arðsemi. Búgreinafélög hafa lengi knúð á um innfiutning dýra og erfðaefn- is til þess að bæta innlenda bú- fjárstofna og auka arðsemi þeirra vegna erfiðrar samkeppnisaðstöðu. Mikið hefur áunnist á þeim vettvangi á síðustu árurn, en alls ekki allt sem gæti orðið. Allur inn- flutningur í þessu skyni hefur lotið ströngum skilyrðum sérfróðra manna í sjúkdómafræðum búfjár og eftirliti þegar til íslands er komið. Loðdýrastofn á Islandi sem al- inn er til arðs og afkomu byggist á innfiuttum dýrum, bæði í upphafi og síðar til kynbóta Rekstur kjúklinga- og eggja- framleiðslubúa byggist alfarið á innfiuttum stofnum síðustu ár. Þar hefur slíkur árangur náðst að eld- istími kjúklinga að sláturþyngd er nú fimm vikur, en fyrir röskum áratug þurfti tíu til tólf vikur til að ná sömu þyngd kjúklinga. Allt miðað við sama fóðurmagn. Svínabændur hafa sýnt mikla samstöðu um að bæta svínastofn í landinu með innflutningi kynbóta- gnpa, bæði frá Noregi og Finn- landi. Með kynbótastarfinu hefur þeim tekist að laga framleiðslu sína mjög vel að kröfum neytenda og lækka framleiðslukostnað svo að hann stenst samanburð við er- lenda framleiðslu. Síðasti stór- áfangi þeirra í kynbótum er að auka vaxtarhraða gripa úr 400 gr. í 600 gr. á dag af sama fóðurmagni. Nú er svo komið að engin ásókn mun vera í innflutning svínakjöts. Framleiðsla nautakjöts af ís- lenskum stofni stenst engan sam- anburð við það sem erlendir naut- gripastofnar gefa af sér. Kyn- blöndun við Galloway-gripi sem bændur hafa alllengi átt kost á hef- ur ekki skilað ásættanlegum árangri hvað varðar kjötmagn og gæði. Nautgripabændum tókst áriðl994 að fá innfiutta fósturvísa úr Angus og Limosin nautgripum frá ræktunarbúum í Danmörku. Itarlegar samanburðarrannsóknir liggja nú fyrir frá Rannsóknastofn- un landbúnaðarins um fallþunga alíslenskra gripa samanborið við Angus og Limosin blendinga. Niðurstöður sýna að blendings- gripir skila miklu meiri og betri af- urðum í kjöti heldur en íslenskir gripir. Munur á fallþunga sem byggist alfarið á betri fóðurnýtingu blendingsgripa er með ólíkindum. Tveggja ára gamall reyndist hver blendingur 100 kg þyngri en al- íslenskir gripir. Samkvæmt framansögðu hefur umtalsverður innfiutningur á kyn- bótadýrum og erfðaefni átt sér stað, einkum síðasta áratug. Árangur er eftir fremstu vonum því að í öllum tilvikum hefur tekist að auka framlegð og arðsemi og styrkja þannig stöðu innlendra framleiðenda í síliarðnandi sam- keppni. Mikill ávinningur felst einnig í því sem of fáir hafa gefið gaum, að ef arðsemi íslensks þúfjár eykst dregur úr þrýstingi á innflutning búfjárafurða og þar með minnkar hætta á nýjum búfjársjúkdómum sjálfkrafa. Ekki er vitað til að sjúkdómar hafi borist með innflutningi kynbótadýra eða erfðaefnis, enda öll framkvæmd á þeim vettvangi háð samþykki sérfróðra manna um búfjár- sjúkdóma eins og áður segir. En betur má ef duga skal. ís- lenska kýrin. Búkolla, Huppa, Skjalda og allar hinar sem hér hafa þraukað í þúsund ár og eiga fjölda formælenda mjólka samkvæmt nýjustu. skýrslum 4.600 lítrum mjólkur á ári að meðaltali. Vitað er um kyn í nágrannalöndum okkar sem rnjólka mun meira. Það er því ekki að undra að nautgripabændur sækist eftir að fiytja inn fósturvísa í tilraunaskyni úr norskum kúm sem mjólka um 8000 lítra að meðaltali séu þær fóðraðar sambærilega við íslenskar kýr. Heimild er fengin fyrir tilrauninni og er fyrirætlað að framkvæma hana á einangrunarstöðinni í Hrísey. Sérfræðingar þeir sem hingað til hefur verið treyst til að meta áhættuþætti varðandi sjúk- dóma við innfiutning hafa sam- þykkt að þessi tilraun verði gerð. Hópur fólks hefur á síðustu vikum magnað upp andstöðu við framkvæmd tilraunarinnar. Mun í þeim hópi fjöldinn mestur sem lítt þekkir hvaða hagsmunir eru hér í húfi fyrir atvinnuveginn. Verra er að margir bændur sem ætla má að stefni að framtíðar- búrekstri við mjólkurframleiðslu hafa lagst gegn hinum áformuðu tilraunakynbótum. Samningur við mjólkurfram- leiðendur rennur úl eftir fjögur ár. Enginn veit nú við hverja verður þá að semja eða urn hvað kann að semjast. Vitað er að vegna alþjóðasamningá og þrýstings af ýmsum toga vérður áfram knúð á um rýmkun innfiutnings landbún- aðarafurða og að dregið verði úr innlendum stuðningi og vernd- araðgerðum fyrir íslenskan land- búnað. Mikið andvaraleysi væri af hálfu mjólkurframleiðenda að ganga að því vísu að fá áfram senda ávísun úr ríkissjóði mánað- arlega fyrir nær helmingsandvirði mjólkurframleiðslunnar, eins og þeir fá samkvæmt núgildandi samningi. Illt væri ef niðurstaða réðist af þeim sem hafa í máli þessu asklok fyrir himin. Stöðug þekkingarleit, þekkingarmiðlun og þróunarstarf eru forsendur fyrir bjartri fram- tíðarsýn í íslenskum Iandbúnaði. Sveinbjörn Dagfinnsson. Greinarhöfundur er jyrrverandi ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.