Bændablaðið - 27.03.2001, Síða 16

Bændablaðið - 27.03.2001, Síða 16
16 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 27. mars 2001 Smitsjúkdómar sem berast með fæðu hafa valdið vaxandi áhyggjum víða um heim á undan- fömum árum. Útbreiðsla þessara sjúkdóma hefur tekið umtals- verðum breytingum. Sumir sjúk- dómsvaldar hafa breiðst um heim allan enda hafa alþjóðleg viðskipti með matvæli færst mjög í vöxt. Breytingar hafa orðið á búskapar- háttum og slátrun búfénaðar og stórframleiðsla færst í vöxt. Neyt- endur gera kröfur um ferskleika matvöru og lífræna ræktun. Tilkynningaskyldir sjúkdómar Vandamál sem tengjast matar- sýkingum snerta heilbrigðisyfir- völd, eftirlitsstofnanir, matvæla- framleiðslu og þá sem sjá um dreifingu og framreiðslu matvæla. Á herðum heilbrigðisyfirvalda hvílir sú lagalega skylda að greina með skjótum hætti hættulegar sýk- ingar í mönnum og er þeim jafn- framt skylt að grípa til viðeigandi aðgerða til að spoma við frekari útbreiðslu þeirra. Slíkir sjúkdómar eru nefndir tilkynningaskyldir sjúkdómar en undir þá l'alla mat- arsýkingar. Á langri leið fæðunnar frá haga, vatni eða sjó til maga neyt- andans hafa sýklar mörg tækifærin til að menga hana. Vöktun á sýkingavöldum í landbúnaði, sjávarútvegi og matvælum á markaði er í höndum yfirdýra- læknis, Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins, Hollustuverndar ríkis- ins og heilbrigðiseftirlits í landinu. Við búum því við margbrotið og flókið eftirlitskerfi með matvælum sem ýmist er á sveitastjómarstigi eða hjá mörgum ráðuneytum ríkis- valdsins. Breyting sem gerð var á sóttvarnarlögum á árinu 2000 miðar að því að auka viðbragðs- flýti og samhæfingu aðgerða gegn m.a. matarsýkingum sem ógna heilsu manna. Þá hafa komið fram hugmyndir um að einfalda opinbert eftirlit með matvælum með því að setja það undir einn hatt eða matvælastofnun. Reynsla undanfarinna tveggja ára af matarsýkingum á íslandi skýrir vel þann vanda sem við er að etja. Farsóttir af hvaða toga sem er geta birst sem stök tilfelli sem greinast á mismunandi stöðum á mismunandi tíma eða sem atsótt eða hópsýking þar sem fjöldi manna sýkist á sama stað og svipuðum tíma. Einfaldasta (og besta) skilgreiningin á slíkum farsóttum er þegar fjöldi sjúkdómstilfella verður meiri en búast má við. Á árinu 1998 greindust fleiri tilfelli af kampýlóbaktersýkingum í mönnum en áður hafði þekkst hér á landi. Sjúkdómstilfellin voru dreifð um landið og virtust ekki tengjast innbyrðis. Það var ekki fyrr en í ársbyrjun 1999, þegar gögn voru tekin saman um sýkingar á árinu áður, að umfang vandans varð ljóst. Á sama tíma tók gildi reglugerð um tilkynningaskylda sjúkdóma sem byggðist á nýjum sóttvamarlögum en þar voru kampýlóbakter- sýkingar í fyrsta sinn gerðar tilkynningaskyldar. I samræmi við þessi nýju lög var viðkomandi eftirlitsstofnunum gert viðvart um vandann. Það sýndi sig að þessar stofnanir höfðu takmarkaða ijármuni til að gera kannanir á mengun matvæla og drógust þær því á langinn. Þær takmörkuðu kannanir sem gerðar höfðu verið á matvælum á markaði sýndu að kampýlóbakter hefði einungis fundist í kjúklingum. Þegar Ieið á vorið 1999 varð ljóst að sjúkdóms- tilfellum af völdum kampýlóbakter fjölgaði umfram það sem verið hafði árið áður. Var þá almenning- ur upplýstur um það að mengaðir kjúklingar gætu valdið faraldrinum í mönnum og var það gert með þeirn hætti að eftir var tekið. Var fólki bent á hvernig það gæti forðast sýkingu með því að meðhöndla kjúklinga og önnur matvæli á réttan hátt. Kjúklinga- iðnaðurinn brást illa við þessum tilmælum og taldi sig órétti beittan. Frekari rannsóknir fóru fram á orsök faraldursins síð- surnars 1999 með sérstökum stuðningi ríkisstjórnarinnar. Jafn-r framt þessu stóð yfir rannsókn á vegum ranrisóknastofnunar banda- ríska landbúnaðaráðuneytisins og Háskóla íslands á kampýlóbakt- ermengun í kjúklingaeldi og sláturhúsum hér á landi. Rann- sóknir þessar staðfestu á endanum þá fyrirliggjandi vitneskju að kjúklingar voru eina matvaran á markaði þar sem mengun af völdum kampýlóbakter fannst og að kjúklingar voru sú matvara sem flestir þeirra sem sýktust höfðu neytt. Vöktun á sýkingum í mönnum þjónar þeim tilgangi að greina vandamál sem upp kunna að koma Á langri leið fœðunnarfrá haga, vatni eða sjó til maga neytandans hafa sýklar mörg tœkifœrin til að menga hana. Vöktun á sýkinga- völdum í land- búnaði, sjávar- útvegi og matvœlum á markaði er í höndum yfirdýra- lœknis, Rann- sóknastofnunar fisk- iðnaðarins, Hollustuverndar ríkisins og heil- brigðiseftirlits í landinu. eins fljótt og auðið er. Fjölgi tilfellum óeðlilega mikið, er gerð faraldsfræðileg rannsókn. Rannsókn á kampýlóbakter- faraldinum var fyrst og fremst lýsandi. Erfitt var um vik að beita samanburðarrannsókn (case- control study) í þessum faraldri þar sem stór hluti þjóðarinnar var útsettur (exposed) fyrir smiti og tilfelli sem greindust yfirleitt stök. DNA rannsóknir staðfestu á endanum að sá kampýlóbakter sem greindist í mönnum var í flestum tilvikum af sama toga og hafði mengað kjúklingana. 1 kjölfarið var lögð fram sérstök að- gerðaáætlun til draga úr mengun í kjúklingarækt og slátrun. Voru þessar aðgerðir unnar í góðri samvinnu við kjúklingaiðnaðinn með þeim árangri að verulega dró úr sýkingum í mönnum á árinu 2000. Á undanfömum árum hafa innlendar sýkingar af völdum salmonella montivideo verið landlægar í Skagafirði og víðar á Norðurlandi. Tilfellin hafa verið tiltölulega fá en einkum bundin við þennan landshluta. Við eftirlit sem tengdist rannsókn á mengun matvæla fundust þessar bakteríur í sviðum sem áttu uppruna sinn á Sauðárkróki. Rannsókn stendur nú yfir á uppruna þessara sýkinga. Annar sýkill sem nefnist salmonella typhimurium hefur í auknum mæli valdið sýkingum í mönnum á svæðinu frá Reykjavík til Hafnar í Homafirði. Þessi sýkill hefir einnig valdið sýkingum í búfénaði á Suðurlandi og á suðvesturhorninu. Má þar nefna sýkingu nautgripa á Suðurlandi haustið 1999 og svína á svínabúi á Vesturlandi haustið 2000. Hingað til hefur ekki verið hægt að sýna fram á með hvaða hætti menn hafa sýkst en rannsóknir benda til þess að um sömu bakteríur sé að ræða í mönnum, dýrum og í umhverfi. I september á árinu 2000 varð fyrst vart við faraldur af salmonella typhimurium DT204b á Reykjavíkursvæðinu. Sýkillinn var sérstakur því að hann var ónæmur fyrir mörgum sýklalyfjum og því ólíkur þeim baktenum af sömu tegund sem greinst höfðu hér á landi. Sú ályktun var dregin að hann ætti uppruna sinn erlendis enda óþekktur hér á landi. Þá þegar var hafist handa við faraldsfræðilega rannsókn. Þeir sem sýktust voru aðallega ungt fólk á aldrinum 15-30 ára. Það sem nánast allir hinna sýktu áttu sameiginlegt var að þeir höfðu borðað á veitinga- og skyndibitastöðum skömmu fyrir veikindin. Útbreiðsla sjúkdómsins benti til þess að hér væri um atsótt að ræða, bundna við smitefni sem var í umferð síðustu dagana í ágúst og fyrstu átta til tíu dagana í september á árinu 2000. Niðurstöður samanburðarrann- sóknar sem gerð var snemma í faraldrinum leiddu í ljós töl- fræðilega marktækt samband sýkinga við innflutt jöklasalat. Þessi atsótt hefur líka sýnt fram á mikilvægi alþjóðlegs samstarf í sóttvömum. Sýkillinn, afar fátíður sjúkdómsvaldur í mönnum, hafði einnig látið á sér bera í litlum mæli í Bretlandi um svipað leyti og hér á landi. Gefin var út viðvörun í ríkjum Evrópusambandsins í samræmi við ný Evrópulög um sóttvamir. Kom þá í ljós að vart hefði orðið við sýkingar af völdum þessarar sérstöku bakteríu í Hollandi og Þýskalandi. Ekki tókst þessum þjóðum að greina orsök sýkinganna enda voru aðstæður þar ekki eins góðar til þess og á Islandi. Það er brýnt að faraldsfræðileg rannsókn á uppruna smits sé ekki eingöngu bundin við að finna hina menguðu fæðu heldur þarf að útskýra þá atburðarrás sem leiddi til mengunarinnar. Við rannsókn málsins er þörf á samvinnu við þá sem framíeiða matvæli, dreifa þeim og framreiða þau. Það er staðreynd að matvælaiðnaður er áhættuiðnaður. Þegar sótt sem skaðar fjölda manna brýst út er brýn nauðsyn á að gripið sé til aðgerða sem stundum þurfa að byggjast á faraldsfræðilega rökstuddum gruni um uppruna smits þótt endanleg sönnun liggi ekki fyrir um hann. Er þá stundum óhjákvæmilegt að þeir sent tengjast framleiðslu eða dreifingu viðkomandi matvæla hafi af því óþægindi. Affarasælast er að allir aðilar málsins leggist á eitt við að komast að hinu sanna með almannaheill í huga. Með þeim hætti er hægt að byggja upp traust á matvælaframleiðslu, dreifingu matvæla og framreiðslu. Það er nokkuð útbreiddur mis- skilningur að sýna verði fram á sýkingavald með beinum hætti í þeim mat eða drykk sem neytt var og leiddi til sjúkdóms áður en gripið var til aðgerða. Oft á tíðum er hægt að sýna fram á hvað olli sýkingu með tölfræðilega marktækum faraldsfræðilegum rannsóknum. Ekki er síður mikilvægt að vakta sýklamengun í dýraríkinu og umhverfinu en í mönnum. Þá starfsemi þarf að stórefla hér á landi. Tilgangurinn er ná skilvirkri vöktun hættulegra smitsjúkdóma svo að unnt sé að grípa til lögbundinna sótt- varnaaðgerða reynist þeirra þörf. Lögum samkvæmt skal gera faraldsfræðilega rannsókn á uppruna smits sem sýkir menn og ógnar heilsu þeirra og eru heimildir til þess víðtækar. Þessar rannsóknir eru nu gerðar í náinni samvinnu sóttvarnalæknis við sýklafræðideild Landspítalans og eftir atvikum við heilbrigðiseftirlit, Hollustuvernd ríkisins og yfirdýralækni. Haraldtir Briem sóttvarnalœknir Verðskrá yfir nautgripakjöt helstu sláturleyfishafa í mars Sláturfélag Vesturlands Goðl Norölenska KS Sölufélag A-Hún. ss Meöalverö UNI Ú A - holdanaut 337 351 344 UNI Ú A 323 327 325 327 312* 323 UNI Ú A > 230 kg 303 J „ . : '' . 303 UNI Ú A < 230 kg 298 318 302* 306 UNI A 323 315 305* 314 UNI A > 275 kg 321 321 UNI A > 250 kg - 1 323 1 :■ • ! 323 UNI A > 230 kg 293 293 UNI A > 200 kg 303 ‘ 305 304 UNI A < 200 kg 288 300 290 293 UNI A < 230 kg 291 310 296* 299 UNI M 253 252 264 260 249 251* 255 UNI M+ 261 272 284 282 273 269* 274 KIU A 214 230 229 215 228 229 224 Kl A 205 221 217 205 215 217 213 UKI 169 216 220 200 210 210 204 Heimtaka, kr/kg 65 63 38 40 60 45 52 Tekið saman af Landssambandi kúabænda * 5% lækkun frá fyrra mánuði

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.